Morgunblaðið - 23.10.2020, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020 61
Atvinnuauglýsingar 569 1100
Þjóðkirkjan – Biskupsstofa leitar að jákvæðum, framsýnum, og skipulögðum leiðtoga til þjónustu við Hafnarfjarðarprestakall.
Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á málefnum þjóðkirkjunnar og vera tilbúinn til að leiða gróskumikið safnaðarstarf
í Hafnarfjarðarprestakalli. Framúrskarandi samskiptahæfileikar og skilningur á mikilvægi góðrar þjónustu eru lykilatriði.
Um er að ræða áhugavert og krefjandi starf í skemmtilegu umhverfi. Í Hafnarfjarðarprestakalli starfa alls 7 einstaklingar,
sóknarprestur auk 6 annarra.
• Mótar stefnu og framtíðarsýn kirkjunnar í samvinnu
við sóknarnefnd og ber ábyrgð á að framfylgja henni.
• Frumkvæði að fjölbreyttu helgihaldi og annarri
þjónustu kirkjunnar.
• Stuðlar að traustu samstarfi, samskiptum og
upplýsingagjöf við sóknarnefnd.
• Byggir upp sterka liðsheild á meðal starfsfólks
prestakallsins.
• Leitar tækifæra til að auka fjölbreytni í starfi
sóknarinnar og skapa tengingar við nærsamfélagið.
• Þátttaka í að efla starf innan sóknarinnar svo sem
barna- og unglingastarf, sálgæslu og aðra þjónustu
fyrir nærsamfélagið.
• Embættispróf frá guðfræðideild Háskóla Íslands eða frá viðurkenndri
guðfræðideild eða guðfræðiskóla. Biskup Íslands leitar umsagnar
guðfræðideildar Háskóla Íslands um hið síðarnefnda.
• Önnur almenn skilyrði til ráðningar í prestsstarf skv. 38. gr. laga nr.
78/1997, sbr. lög nr. 153/2019.
• Reynsla af því að leiða hóp og skapa sterka liðsheild.
• Vilji til að þjóna og mætir fólki af skilningi og virðingu.
• Hæfileiki til að tjá sig í ræðu og riti á áhugaverðan og sannfærandi hátt.
• Áhugi á starfi og uppbyggingu Þjóðkirkjunnar.
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar.
• Vilji til að mynda tengsl og vera virkur í hafnfirska samfélaginu.
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
• Innsýn og áhugi á ólíkum samskiptamiðlum.
Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 9. nóvember. Nánari upplýsingar gefur sr. Þórhildur Ólafs í síma 694 8655, Magnús Gunnarsson,
formaður sóknarnefndar, s 665 8910 og Biskupsstofa, s. 528 4000 eða mannaudur@biskup.is. Sækja ber rafrænt um starfið á vef kirkjunnar,
www.kirkjan.is, og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram.
Starfssvið: Menntunar- og hæfniskröfur:
Í Hafnarfjarðarprestakalli, sem tilheyrir
Kjalarnesprófastsdæmi, er fjölmenn sókn með
um átta þúsund sóknarbörn. Í prestakallinu
er ein kirkja, Hafnarfjarðarkirkja sem er eitt af
megin kennileitum Hafnarfjarðar og á sér langa
og viðburðarríka sögu innan samfélagsins.
Kirkjan sjálf er afar vel staðsett í hjarta
Hafnarfjarðar og er allur aðbúnaður og aðstaða
til mikillar fyrirmyndar. Gróskumikið starf er
unnið innan kirkjunnar og má þarf nefna barna-
og unglingastarf sem hefur verið í miklum vexti
undanfarin ár. Fjárhagsstaða kirkjunnar er sterk.
Íslandsstofa er sjálfseignarstofnun sem stofnsett var í samstarfi atvinnulífsins og
stjórnvalda og er hún samstarfsvettvangur um stefnu og aðgerðir til þess að auka
útflutningstekjur og hagvöxt. Ný útflutningsstefna var mörkuð og kynnt árið 2019
og starfar Íslandsstofa eftir áherslum hennar í þágu íslenskra útflutningsgreina.
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla og/eða þekking á að starfsumhverfi alþjóðlegra fyrirtækja
Þekking á fjármögnunarumhverfi fyrirtækja er kostur
Þekking á störfum stjórnsýslunnar er kostur
Haldgóð reynsla af breytingastjórnun og uppbyggingu nýrrar þjónustu
Framúrskarandi ensku- og íslenskukunnátta skilyrði, kunnátta í norðurlandamáli er kostur
Færni í að setja fram og miðla upplýsingum og halda kynningar á íslensku og ensku
Frumkvæði, metnaður, færni í að starfa í hóp og góð samskiptahæfni
Brennandi áhugi á íslensku viðskiptalífi og starfssviði Íslandsstofu