Morgunblaðið - 23.10.2020, Qupperneq 74
74 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Modal náttfötin komin!
Frí heimsending um land allt
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun: selena.is
Vefverslunselena.is
AF BÓKMENNTUM
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Bókmenntaverðlaun Norð-urlandaráðs verða afhentnæstkomandi þriðjudag,
27. október. Í gær var fjallað um
þær skáldsögur sem tilnefndar
eru en nú beini ég sjónum ljóða-
bókunum þremur.
Johan Jönson - Marginalia/
Xterminalia
Fyrir nokkrum árum kallaði
Aftonbladet Johan Jönson „sér-
kennilegasta“ rithöfund Svía og
vísaði til þess að hann fór eigin
leiðir í textavinnslu og ljóðagerð,
braut upp hefðbundna framsetn-
ingu texta, tvinnaði saman ljóðum,
hugleiðingum, hugsanastreymi og
hatrammri ádeilu á kapítalismann.
Það síðastnefnda er og rauður
þráður í gegnum bókatvennuna
Ljóð, ljóðbrot og ljóðræn uppreist
Xterminalia/Marginalia, sér-
staklega í Marginalia þar sem
Jönson tætir í sig nútímann og
sjálfan sig og skýtur inn á milli
erindanna klifunarkenndu sífri um
fjárskort og -þrá. Xterminalia er
aftur á móti prósakennd; hug-
myndastreymi, minningabrot,
minnispunktar, athugasemdir um
bækur og höfunda. Þar má finna
setningu sem lýsir verkinu vel:
„En bok måste vilja det omöjliga,
det ogennomförbara, det extremt
dialetiska.“
Yahya Hassan - YAHYA
HASSAN 2
Fyrsta ljóðabók Yahya Hassan
vakti gríðarlega athygli í Dan-
mörku og seldist meira en dæmi
eru um ljóðbækur eða dönsk
skáldverk almennt. Hún vakti ekki
síst athygli og fögnuð þeirra sem
höfðu andúð á múslimum, enda
gagnrýndi hann íslam harkalega,
og þeirra sem ömuðust við inn-
flytjendum, enda gagnrýndi hann
innflytjendastefnu danskra stjórn-
valda harkalega. Í viðtölum sagði
hann að þótt ljóðin væru vissulega
sprottin af reiði, væri líka í þeim
sorg, gleði, kímni og ást á orðum.
Hugmyndaheimur annarrar ljóða-
bókar hans, sem heitir einfaldlega
YAHYA HASSAN 2, er víðari en í
fyrri bókinni. Hassan er fyrst og
fremst að lýsa lífi sínu frá því
fyrri bókin kom út, en gagnrýnir
líka samtímann, hræsni danska
samfélagsins gagnvart flótta- og
farandfólki, hræsni heimsins gagn-
vart Palestínu. Stundum sigar efn-
ið nánast andann, til að mynda í
lokaljóðinu GERNINGSTEDER,
en í því eru samt magnaðir sprett-
ir sem minna á höfuðljóð Amiri
Baraka. Frábær bók.
Mikaela Nyman - När vänd-
krets läggs mot vändkrets
Þessi fyrsta ljóðabók Mikaelu
Nyman er tileinkuð Mariku systur
hennar og fyrri hluti bókarinnar,
Hvarfbaugur krabbans, hefst þar
sem Nyman situr á eyju í hvarf-
baugi krabbans, Álandseyjum, við
dánarbeð systur sinnar. Ljóðin í
þeim hluta eru þrungin sorg og
söknuði: „Når man älskar någon
så hårt/finns del altid risk att nå-
got går sönder,“ en þau segja líka
frá minningum um gleði. Í seinni
hluta bókarinnar, Hvarfbaugur
steingeitarinnar, er ljóðmælandi
staddur á annarri eyju mun sunn-
ar, eins og heitið ber með sér, í
Vanuatu, en Nyman bjó í Port
Vila í mörg ár. Í þeim hluta er
sorgin enn til staðar, en líka
áhyggjur af hnattrænni hlýnun
aukinheldur sem hún fléttar inn í
ljóðin orðum og hugtökum úr bisl-
ama og maorískri þjóðtrú og þjóð-
háttalýsingum. Fyrri hluti bók-
arinnar er afbragð, en Nyman
nær ekki að tengja hlutana nógu
vel saman, nær ekki að leggja
hvarfbaug við hvarfbaug.
Þrjár ljóðabækur tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Yaha Hassan Mikaela NymanJohan Jönson
Paul McCartney mun senda frá sér
nýja sólóplötu, McCartney III, 11.
desember næstkomandi. Er það
þriðja platan í útgáfuröð sem teyg-
ist nú yfir hálfa öld (McCartney I
kom út 1970 og McCartney II árið
1980) þar sem tónlistarmaðurinn
dáði ekki bara semur lög og texta,
heldur leikur líka á hljóðfærin,
syngur, útsetur og hljóðritar aleinn
í heimahljóðveri sínu. Hann dund-
aði sér við upptökurnar á heimili
sínu í Sussex á Bretlandi eftir að
kóronuveirufaraldurinn brast á.
Í lögunum á plötunni syngur
McCartney við eigin gítar- eða pí-
anóundirleik og bætti síðan bassa
og trommum inn á upptökurnar.
„Þetta snerist um að skapa tón-
list fyrir mann sjálfan frekar en
tónlist sem á að hafa eitthvert hlut-
verk,“ er haft eftir McCartney í
Loud and Quiet-tímaritinu um plöt-
una. „Ég átti einhverja lagabúta
sem hafa safnast upp yfir árin og ég
hef unnið að en hafa samt dagað
uppi ókláraðir og ég kom nú aftur
að þeim. Ég byrjaði á hverjum degi
að taka upp með hljóðfærinu sem
ég samdi lögin á og hlóð smám sam-
an ofan á það. Sem var gaman,“
segir McCartney sem er nú 78 ára.
Afkastamikill Paul McCartney á sviði með
Hofner-bassann fræga frá Bítlaárunum.
Ný sólóplata
frá McCartney