Morgunblaðið - 28.10.2020, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 8. O K T Ó B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 254. tölublað 108. árgangur
HAGNAST Á
SJÁLFVIRKNI Í
VERSLUNUM
STÓR
FRAM-
KVÆMD
VANDRÆÐA-
LEGAR HAFNANIR
OG HAMINGJA
SNJÓFLÓÐAVARNIR 6 NÝ PLATA MYRKVA 24VIÐSKIPTAMOGGINN
Snaraukin útgjöld í velferð
Fjórðungur skatttekna og tryggingagjalda í almannatryggingar Útgjalda-
vöxturinn ekki sjálfbær segir Bjarni Benediktsson Tvöföldun frá árinu 2013
„Þessi þróun hefur átt sér stað
jafnt og þétt í takt við mannfjölda, en
útgjöldin hafa snarhækkað. Við höf-
um verið að styrkja þessi kerfi, og
þau hafa fylgt launaþróun í landinu,
en við höfum hækkað launin undan-
farinn áratug meira en nokkurt
annað land OECD, segir Bjarni
Benediktsson í samtali við Morgun-
blaðið. „Þess vegna skýtur skökku
við að heyra suma tala um skerðing-
ar í þessu samhengi, þegar allar
tölur sýna hið gagnstæða.“ Hann
bætir við að auk þess séu Íslending-
ar að eldast sem þjóð, sem hafi mikil
áhrif.
„Við viljum ræða við vinnumark-
aðinn um heildarendurskoðun á líf-
eyriskerfinu, þar á meðal hækkun
lífeyristökualdurs í áföngum. Það má
öllum vera ljóst að þessi vöxtur er
ekki sjálfbær. Það er mjög sláandi
þegar ¼ teknanna fer í málaflokk,
sem hefur verið í 14-15%.“
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Síaukinn hluti verðmætasköpunar
rennur til tilfærslukerfa og fjárfram-
laga ríkissjóðs, en í minnisblaði, sem
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra kynnti í ríkisstjórn í gær, kem-
ur fram að um fjórðungur allra
skatttekna og tryggingagjalda fer
nú til almannatrygginga. Þau hafa
nær tvöfaldast frá árinu 2013.
Framlög til velferðar
» Framlög til almannatrygg-
inga hafa tvöfaldast frá 2013.
» Fjölgun lífeyrisþega og
hærri bætur helsta skýringin.
» Örorku- og endurhæfing-
arlífeyrisþegar 25% fleiri nú.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tapaði
sínum fyrsta leik í undankeppni EM þegar liðið
atti kappi við topplið Svíþjóðar í Gautaborg í
gær. Leiknum lauk með 2:0-sigri sænska liðsins.
Sara Björk Gunnarsdóttir fyrirliði lék sinn
134. landsleik og sló leikjamet liðsins. »22
Ljósmynd/Bildbyran
Sara sló leikjametið
í tapi gegn Svíum
Bandaríski flugvélaframleiðandinn
Boeing kannar nú hvort rétt sé að
hefja þróun og framleiðslu á nýrri
tegund vélar sem gæti betur fyllt
skarð 757-þotunnar vinsælu sem
komin er til ára sinna en hefur ekki
verið í framleiðslu frá árinu 2004.
Heimildir ViðskiptaMoggans herma
að fyrirtækið hafi m.a. átt samtöl við
Icelandair Group um fýsileika verk-
efnisins. Vitað er að flugfélagið hefur
til alvarlegrar skoðunar að skipta al-
farið yfir í viðskipti við Airbus, sem
um þessar mundir býður upp á
breiðara úrval millistórra véla sem
hentað gætu inn í leiðakerfi fyrir-
tækisins. Ljóst er að ef áætlanir Bo-
eing munu hverfast um vél af þessu
tagi munu líða mörg ár þar til hug-
myndin færist af teikniborðinu og yf-
ir í smíði raunverulegra véla. Það er
hins vegar til marks um það í hversu
mikilli vörn félagið er gagnvart aðal-
keppinauti sínum, Airbus, að þessi
hugmynd skuli viðruð nú, mitt í kór-
ónuveirufaraldrinum og á sama tíma
og enn er verið að greiða úr hinu
mikla MAX-hneyskli sem skók gjör-
vallan flugheiminn í mars í fyrra.
Kannar
flöt á
nýrri vél
Boeing hefur rætt
við Icelandair Group
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Samstarf Boeing og Icelandair
Group hafa átt í farsælu viðskipta-
sambandi svo áratugum skiptir.
Rafbílaframleiðandinn Tesla mun í
komandi viku opna nýja ofurhleðslu-
stöð fyrir viðskiptavini sína við Stað-
arskála í Hrútafirði. Afl hverrar
hlöðu, sem eru átta talsins, er 250 kW
en það er fimmfalt það sem fyrstu
hraðhleðslustöðvarnar sem settar
voru upp hér á landi gátu annað. Þá
eru þessar hlöður tæplega 70% afl-
meiri en aðrar hlöður sem önnur
fyrirtæki eru að setja upp hér á landi
með stuðningi Orkusjóðs. Tesla fær
ekki greiðslur úr ríkissjóði í upp-
byggingarferilnu.
Ole Gudbrann Hempel, sem stýrir
uppbyggingu ofurhleðslustöðvanna á
Norðurlöndum, segir í samtali við
ViðskiptaMoggann að fyrirtækið
stefni á uppbyggingu af þessu tagi á
Akureyri, Egilsstöðum, Höfn í
Hornafirði, á Kirkjubæjarklaustri og
svæðinu nærri Selfossi. Þar sé ekki
horft til margra ára uppbyggingar-
ferlis heldur eigi að ganga hreint til
verks. Hins vegar setji kórónuveiran
strik í reikninginn. Nýju stöðvarnar
eru svo öflugar að ef Tesla 3 bíl er
stungið í samband má bæta drægni
hans um 120 kílómetra á fimm mínút-
um. Þá ætti flestum Tesla-eigendum
að duga 15 mínútna stopp milli
Reykjavíkur og Akureyrar. Staðarskáli Í næstu viku verða átta ofurhlöður Tesla teknar í notkun.
Tesla opnar ofurhleðslu í Hrútafirði
Átta nýjar hlöður við Staðarskála Langöflugasti búnaðurinn hérlendis
Lögreglan á Spáni hefur handsam-
að Íslending sem flúði Danmörku
og á yfir höfði sér allt að tólf ára
fangelsisdóm fyrir að hafa misnotað
dóttur sína kynferðislega. Maður-
inn átti yfir höfði sér fangelsi í Dan-
mörku en hann er sakaður um að
hafa nauðgað dóttur sinni tíu sinn-
um og beitt hana öðru ofbeldi.
Gefin var út evrópsk handtöku-
skipun á hendur manninum í byrjun
sumars eftir að hann flúði Dan-
mörku. Meint brot áttu sér stað frá
2006 til 2010 á Íslandi og í Dan-
mörku. Í tilkynningu spænsku lög-
reglunnar segir að rannsóknir síð-
ustu daga hafi skilað því að
maðurinn var handsamaður í bæn-
um Benisa á Alicante á Spáni.
Grunaður níðingur
handtekinn á Spáni