Morgunblaðið - 28.10.2020, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. OKTÓBER 2020
Marseille á hinum glæsilega Or-
ange Velodrome-leikvangi. Ilkay
Gundogan og Ferrán Torres skor-
uðu báðir í 3:1-sigri City á Porto í
1. umferðinni og þeir voru aftur á
ferðinni. Torres kom City yfir á 18.
mínútu og Gundogan bætti við
öðru markinu á 76. mínútu. Ra-
heem Sterling gulltryggði 3:0-sigur
City níu mínútum fyrir leikslok.
Kevin De Bruyne lagði upp tvö
mörk fyrir enska liðið.
Í sama riðli vann Porto 2:0-sigur
á Olympiacos. Ögmundur Krist-
insson var ekki í leikmannahópi
Olympiacos, þrátt fyrir að liðið
væri með tvo varamarkverði á
bekknum. Ögmundur kom til
Olympiacos frá Larissa á dög-
unum.
Real í veseni
Real Madrid bjargaði jafntefli
gegn Borussia Mönchengladbach í
lokin eftir að þýska liðið komst í
2:0 á heimavelli. Marcus Thuram,
sonur Lilian Thuram, skoraði tví-
vegis fyrir Mönchengladbach á
fyrstu 58 mínútunum. Karim Ben-
zema minnkaði muninn á 87. mín-
útu og Casemiro jafnaði í uppbót-
artíma og þar við sat. Real er
aðeins með eitt stig eftir tvo leiki. Í
sama riðli skildu Shakhtar Donetsk
og Inter Mílanó jöfn, 0:0. Shakhtar
er óvænt í toppsætinu með fjögur
stig eftir leiki við Real Madrid og
Inter Mílanó. Inter og Real eru í
þriðja og fjórða sæti með tvö og
eitt stig.
Evrópmeistarar Bayern Münc-
hen eru með fullt hús stiga eftir
tvo leiki en þýska liðið þurfti að
hafa meira fyrir 2:1-útisigri á Lo-
komotiv Moskvu en flestir áttu von
á. Joshua Kimmich skoraði sig-
urmarkið á 79. mínútu. Atlético
Madrid er í öðru sæti riðilsins með
þrjú stig eftir 3:2-sigur á Salzburg
á heimavelli. Marcus Llorente
skoraði fyrsta mark Atlético og
Portúgalinn ungi Joao Félix bætti
við tveimur mörkum. Kom sig-
urmark Félix á 85. mínútu.
Liverpool með fullt hús
AFP
Mark Diogo Jota skorar fyrra mark Liverpool gegn dönsku meisturunum í Midtjylland á Anfield í gærkvöldi.
Mikael Anderson lék á Anfield Sannfærandi hjá Manchester City Evrópu-
meistararnir þurftu að hafa fyrir sigrinum Real í botnsætinu eftir jafntefli
MEISTARADEILDIN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Liverpool er með fullt hús stiga í
Meistaradeild Evrópu í fótbolta eft-
ir 2:0-heimasigur á dönsku meist-
urunum í Midtjylland á Anfield í 2.
umferð riðlakeppninnar í gær-
kvöldi. Englandsmeistararnir
þurftu heldur betur að hafa fyrir
sigrinum en staðan var 1:0 þangað
til í uppbótartíma þegar Mo Salah
gulltryggði sigur enska liðsins úr
víti sem hann náði í sjálfur. Diogo
Jota hafði komið Liverpool yfir á
55. mínútu með 10.000. marki
enska liðsins í keppnisleik frá upp-
hafi. Anders Dreyer fékk dauða-
færi til að jafna metin rétt áður en
Salah skoraði, en hann skaut fram
hjá eftir fallega sendingu frá Mika-
el Anderson sem kom inn á sem
varamaður á 66. mínútu.
„Þetta var erfitt kvöld, en eins
og í hjónabandi færðu góða daga og
slæma daga. Þetta var erfiður leik-
ur en við erum afar ánægðir með
að vinna 2:0. Það síðasta sem við
þurftum hins vegar var að missa
Fabinho út af vegna meiðsla,“ sagði
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri
Liverpool, eftir leik.
Í sama riðli skildu Atalanta og
Ajax jöfn, 1:1, á Ítalíu. Dusan Tadic
og Lassina Traore komu Ajax í 2:0
í fyrri hálfleik en kólumbíski lands-
liðsmaðurinn Duván Zapata skoraði
tvö mörk á fyrsta kortérinu í seinni
hálfleik og jafnaði metin. Atalanta
er í öðru sæti riðilsins með fjögur
stig, Ajax í þriðja með eitt og Midt-
jylland rekur lestina án stiga.
Sannfærandi hjá City
Manchester City gerði góða ferð
til Frakklands og vann 3:0-sigur á
hans var 2:02,94
en sá tími er þó
innan við árs
gamall. Á listan-
um yfir bestu
tímana frá upp-
hafi í heiminum
fór Anton fram
úr Bandaríkja-
manninum Ed
Moses og Ástr-
alanum Christian
Sprenger svo einhverjir séu nefndir.
Báðir áttu þeir heimsmet í greininni
um tíma og tími Antons er betri en
heimsmetstími Sprengers sem sett-
ur var fyrir ellefu árum. Moses varð
ólympíumeistari árið 2000 og Spren-
ger vann til verðlauna á ÓL í Lond-
on 2012 en einnig á heimsmeist-
aramótum.
Rússneskur heimsmethafi
Fyrir ofan Anton á listanum yfir
bestu tímana eru tveir Rússar, Þjóð-
verji, Ungverji, Kínverji, Japani og
Breti. Kirill Prigoda frá Rússlandi á
gildandi heimsmet frá því 13. des-
ember árið 2018 og var sett í Kína.
Metið er 2:00,16 mínútur.
Einungis þrír hafa farið undir
2,1 mínútu en það hafa einnig gert
Marco Koch frá Þýskalandi og
Ungverjinn Daniel Gyurta.
Anton Sveinn er kominn í
huggulegan félagsskap og miðað
við bætinguna í 200 metrunum er
hann enn að taka miklum fram-
förum. Anton hafði reyndar lítið
keppt á árinu og því var erfitt að
átta sig á við hverju mætti búast.
Ólympíuleikarnir í Tókýó eiga að
hefjast í júlí og því er enn ágætur
tími fyrir Anton til að vinna í þátt-
um sem hann vill bæta.
Sjö hafa synt hraðar
Tími Antons Sveins McKee í 200 metra bringusundi í 25 metra laug er betri
en heimsmetstíminn árið 2009 Anton er kominn í huggulegan félagsskap
Anton Sveinn
McKee
SUND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Anton Sveinn McKee er í áttunda
sæti yfir þá sundmenn sem náð hafa
bestu tímum í heiminum frá upphafi
í 200 metra bringusundi í 25 metra
laug. Eins og Morgunblaðið greindi
frá synti Anton Sveinn á 2.01,73
mínútum þegar hann sigraði í grein-
inni í atvinnumannadeildinni í Ung-
verjalandi á laugardaginn.
Anton stórbætti sig en eldra met
Danska liðið GOG fagnaði sínum
fyrsta sigri í D-riðli Evrópudeildar
karla í handbolta í gær er Pelister
frá Norður-Makedóníu kom í heim-
sókn. Urðu lokatölur 30:29, GOG í
vil. Viktor Gísli Hallgrímsson varði
fimm skot í marki GOG og var með
26% markvörslu. Þá var hann með
eina skráða stoðsendingu. GOG er
með tvö stig í öðru sæti riðilsins.
Kristianstad er með 2 stig eftir
tvo leiki í B-riðli en liðið vann Di-
namo Búkarest 31:22. Teitur Örn
Einarsson skoraði fjögur mörk og
gaf þrjár stoðsendingar en Ólafur
Guðmundsson var ekki með.
Fyrsti sigurinn hjá GOG
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Danmörk Viktor Gísli öðlast fína
reynslu í Evrópuleikjum GOG.
Gianni Infantino, forseti Alþjóða-
knattspyrnusambandsins FIFA, er
með kórónuveiruna en FIFA
greindi frá tíðindunum í gær. Ítal-
inn er sagður vera með væg ein-
kenni og í einangrun.
Verður Infantino í einangrun í að
minnsta kosti tíu daga. Hefur öllum
sem hafa verið nálægt Infantino
undanfarna daga verið greint frá
stöðu mála.
Infantino stendur á fimmtugu og
tók við forsetaembættinu hjá FIFA
af Sepp Blatter árið 2016, en In-
fantino starfaði áður hjá Knatt-
spyrnusambandi Evrópu, UEFA.
Forseti FIFA með veiruna
AFP
Smitaðist Gianni Infantino verður í
einangrun næstu daga.
Haukur Helgi Pálsson átti góðan
leik fyrir Andorra þegar það hafði bet-
ur gegn Lietkabelis í Evrópubikarnum í
körfuknattleik í gær, 76:66. Haukur
skoraði níu stig, tók sjö fráköst, stal
boltanum tvívegis og varði eitt skot á
rúmlega 21 mínútu. Var hann alls með
16 framlagspunkta, næstflesta hjá An-
dorra. Liðið er í fjórða sæti af sex lið-
um í C-riðli með tvo sigra og þrjú töp
eftir fimm fyrstu leikina.
Josep Bartomeu, forseti FC Barce-
lona, og öll stjórn félagsins hefur sagt
af sér eftir slaka byrjun karlaliðs fé-
lagsins í knattspyrnu á tímabilinu.
Bartomeu tilkynnti um ákvörðun sína
á blaðamannafundi í gær. Bartomeu
hefur verið forseti Barcelona í sjö ár,
en kjörtímabil hans átti að ljúka í mars
á næsta ári. Mikið hefur gengið á hjá
félaginu, ekki síst eftir að kreppa skall
á með heimsfaraldrinum.
EHF, Handknattleikssamband Evr-
ópu, tilkynnti í gær að ekkert verði úr
Evrópumótum U18 og U20 ára lands-
liða karla. Hafði Ísland tryggt sér þátt-
tökurétt á báðum mótum. Áttu mótin
upprunalega að fara fram í sumar en
var frestað fram í janúar vegna kór-
ónuveirunnar.
Knattspyrnumaðurinn ungi Andri
Fannar Baldursson var í fyrsta skipti í
byrjunarliði ítalska liðsins Bologna er
það fékk Reggina í heimsókn í ítalska
bikarnum í gær. Andri lék fyrri hálfleik-
inn í 2:0-sigri, en hann fór af velli í
hálfleik í stöðunni 0:0.
Leikmaður knattspyrnuliðs Þórs/
KA er með kórónuveiruna en félagið
tilkynnti það á samfélagsmiðlum í
gær. Samkvæmt fréttatilkynningunni
æfði leikmaðurinn sem er smitaður
með liðinu á föstudaginn síðasta en
fór að finna fyrir einkennum veirunnar
um nýliðna helgi. Hún fór í próf á
mánudag og reyndist niðurstaðan já-
kvæð og eru nú allir leikmenn liðsins
komnir í úrvinnslusóttkví.
Þór/KA á að mæta KR hinn 8. nóv-
ember næstkomandi í úrvalsdeild
kvenna, Pepsi Max-deildinni, en stefnt
er að því að deildin hefjist að nýju í
nóvember eftir rúmlega mánaðar hlé.
Sergio Agüero, framherji enska
knattspyrnufélagsins Manchester
City, fór meiddur af velli í hálfleik þeg-
ar liðið gerði 1:1-jafntefli við West Ham
í London í ensku úrvalsdeildinni um
síðustu helgi. Framherjinn byrjaði
tímabilið á sjúkralistanum en var því
fjarri góðu gamni þegar City heimsótti
Marseille í Meistaradeild Evrópu í gær.
Agüero glímir við vöðvameiðsli en
hann var að jafna sig á hnémeiðslum.
Hann gæti því misst af stórleik Man-
chester City og Liverpool sem fram fer
hinn 8. nóvember næstkomandi á Eti-
had-vellinum í Manchest-
er.
„Agüero er meiddur og
verður frá næstu tvær
til þrjár vikurnar,“
sagði Pep Guar-
diola, knatt-
spyrnu-
stjóri
City, á
blaða-
manna-
fundi fyrir
leikinn gegn
Marseille.
Eitt
ogannað