Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Þ að gleður Kristján Þ. Davíðsson að fyrirtæki hans skuli hafa tekist að vera í hópi Framúrskarandi fyrir- tækja allt frá því að Creditinfo hleypti verkefninu af stokkunum. „Við kapp- kostum alltaf að standa okkur vel og gera sífellt betur. Er hvetjandi þegar eftir því er tekið með viðurkenningu eins og þessari,“ segir hann. Kristján er formaður stjórnar Brims og seg- ir að á undanförnum árum hafi það komið sér vel fyrir félagið að starfsemin er fjölbreytt og hægt að aðlaga hana sveiflum. „Það felst í því viss áhættudreifing að hafa ekki öll eggin í sömu körfu. Þetta sáum við vel á þessu ári og í fyrra þegar loðnubrestur varð en hægt að sækja í aðrar tegundir í staðinn. Við höfum ný- lokið síldarvertíðinni og gekk hún bæði hratt og vel, og í makrílnum veiddum við það magn sem við þurftum að veiða, en geymum eitthvað á milli fiskveiðiára.“ Brim hefur líka þurft að aðlagast breyttum aðstæðum á markaði fyrir bolfiskafurðir. Kristján segir kórónuveirufaraldurinn hafa breytt áherslum kaupenda og að mikilvægir hlutar markaðarins hafi sama sem gufað upp. „Sumar tegundir og afurðir seljast í miklu magni til hótela og veitingastaða á ferða- mannastöðum sem í dag eru mannlausir. Framleiðendur sitja því uppi með birgðir af óseldum fiski og þurfa að leita nýrra markaða ella að hægja á veiðum. Hér kemur í ljós einn af mörgum kostum íslenska kvótakerfisins sem leyfir okkur að láta fiskinn vera áfram í sjónum og bíða veiða þangað til markaðsaðstæður batna.“ Smásölumarkaður vex í faraldri Þótt sala á fiski til hótela og veitingastaða hafi dregist mikið saman þá hefur orðið aukn- ing í sölu á fiski í matvöruverslunum og mælist í tugum prósenta á sumum markaðssvæðum. „Smásölumarkaðurinn hefur ekki náð að bæta að fullu samdráttinn hjá hótelum og veit- ingastöðum og áhrifin eru misjöfn eftir því hvaða fisktegund er um að ræða. Þannig virðist vöxtur á neytendamarkaði ekki síst snúa að þorski, ýsu og laxi.“ Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott og bendir Kristján á að kórónuveiru- faraldurinn kunni að auka fiskneyslu til lengri tíma litið. „Þegar má greina merki um það á stöðum eins t.d. Bandaríkjunum að neytendur eru að uppgötva það núna að úti í búð geta þau fengið hollan og bragðgóðan fisk í roðlausum og beinlausum bitum sem einfalt og fljótlegt er að elda,“ segir hann og bætir við að faraldr- urinn hafi líka minnt rækilega á mikilvægi heilsusamlegs mataræðis en leitun sé að hollari próteingjafa en fiski. Fiskurinn leitar á netið Þá má reikna með að faraldurinn breyti því hvernig almenningur kaupir fisk, og að salan færist í auknum mæli yfir á netið. Kristján seg- ir að íslensk útgerðarfyrirtæki eigi að vera í góðri stöðu til að grípa það tækifæri sem felst í auknu vægi netverslunar enda er greinin tæknivædd og á því hægt um vik með að sníða vöruna að óskum neytenda, með bitum af öllum mögulegum stærðum og gerðum, ferskum, frystum eða söltuðum, með roði eða roðfletta, beinlausa og snyrta eins og best verður á kosið. „Margir af viðskiptavinum okkar eru að vinna hörðum höndum að því að nýta tækifærin sem þetta nýja umhverfi hefur skapað, en um árabil hafa áhugaverðar tilraunir verið gerðar með sölu á fiskbitum í heimsendingu og jafnvel í áskrift. Nú upplifa flestir matvælaframleið- endur mikinn vöxt í þessum geira.“ ai@mbl.is Hafa þurft að aðlagast breyttum aðstæðum Morgunblaðið/Eggert 8. sæti BRIM HF. Stórt 8. sæti Kristján Þ. Davíðsson Morgunblaðið/Helgi Bjarnason „Sumar tegundir og afurðir seljast í miklu magni til hótela og veitingastaða á ferðamannastöðum sem í dag eru mannlausir. Framleiðendur sitja því uppi með birgðir af óseldum fiski og þurfa að leita nýrra markaða ella að hægja á veiðum,“ útskýrir Kristján. Í faraldrinum hefur sala á fiski í matvöruverslunum og netverslunum tekið kipp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.