Morgunblaðið - 22.10.2020, Side 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Í
slenska þjóðin eldist hratt og á sama
tíma eykst þörfin fyrir stoð- og hjálp-
artæki ýmiss konar sem auðveldað geta
fólki daglegt líf. Það fyrirtæki sem er
hvað atkvæðamest í þessum geira er Stoð í
Trönuhrauni í Hafnarfirði, en félagið veitir
þessum hópi og öðrum, ótrúlega fjölbreytta
þjónustu.
Eins og Ása Jóhannesdóttir fram-
kvæmdastjóri útskýrir, þá er Stoð rótgróið
fyrirtæki, upphaflega stofnað af stoðtækja-
fræðingum árið 1982. Ása, sem tók við
stjórnartaumum í félaginu í júní sl. af Elíasi
Gunnarssyni, segir að viðskiptavinahópur
Stoðar sé breiður. „Þetta er allt frá fólki sem
er á fullu í sínum íþróttum, útivist og annarri
heilsueflingu yfir í fólk sem þarf ráðgjöf við
að koma sér af stað í hreyfingu, vill fá sér
réttu skóna, þarf innlegg eða hlífar og slíkt.
Okkar skjólstæðingar eru svo líka ein-
staklingar sem sökum fötlunar eða hindrunar
þurfa á stoð- og hjálpartækjum að halda. Við
erum þjónustufyrirtæki á breiðu sviði heil-
brigðisþjónustu.“
Vinna með Sjúkratryggingum Íslands
Ása segir að Stoð vinni náið með Sjúkra-
tryggingum Íslands, sem styrkja kaup á
stoð- og hjálpartækjum fyrir marga af skjól-
stæðingum fyrirtækisins.
Stoð- og hjálpartæki eru margvísleg eins
og Ása útskýrir. Þar er t.d. um að ræða
spelkur, hjólastóla, göngugrindur og bað-
hjálpartæki. „Stoð er líka framleiðslufyr-
irtæki þar sem við sérsmíðum til dæmis
spelkur, skó, gervilimi og sérmót fyrir fólk
sem bundið er í hjólastól.“
Stoð hefur verið í eigu heilbrigðisfyrirtæk-
isins Veritas síðan árið 2018. Undir hatti
Veritas eru einnig lyfjaheildsalan Vistor,
dreifinga- og innflutningsfyrirtækið Distica,
sölu- og markaðsfyrirtækið Artasan og lækn-
inga- og rannsóknarvörufyrirtækið MEDOR.
Hjá því síðastnefnda starfaði Ása einmitt áð-
ur en hún réð sig til starfa hjá Stoð.
Ása segir að það hafi margvíslega kosti í
för með sér að vera hluti af Veritas-
samsteypunni, en með því nái Stoð að ein-
beita sér enn betur að því sem mestu máli
skiptir í rekstrinum.
Ása segir að Stoð eigi sér bjarta framtíð. Í
fyrirtækinu búi mikil þekking og innan
veggja þess starfi ótal sérfræðingar, þar á
meðal sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfi, stoðtækja-
fræðingar og stoðtækjasmiðir. „Á þessu vilj-
um við byggja og horfa til framtíðar. Þar sem
öldruðum er að fjölga viljum við styðja þann
hóp betur, þannig að fólk geti komið hingað
og fengið ekki bara hjólastóla, heldur einnig
aðrar vörur og þjónustu, eins og til dæmis
sjúkrarúm fyrir heimili, og vörur eins og
þvagleggi og stómapoka. Þangað erum við að
fara.“
Vill bjóða heildrænni þjónustu
Með nýjum framkvæmdastjóra koma nýj-
ar áherslur. Hugmyndir Ásu miða að því að
bjóða upp á heildrænni þjónustu í fyrir-
tækinu en verið hefur. „Við viljum horfa á
heilbrigði og heilbrigðislausnir í sinni víðustu
mynd. Við bjóðum til dæmis upp á bækl-
unarskó, en það væri gaman að bjóða líka
upp á þjónustu fótaaðgerðafræðinga. Þá yrð-
um við komin með „allt á einn stað“, og engin
þörf fyrir fólk að fara annað.“
Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt á þeim
tæpum 40 árum sem það hefur verið í rekstri.
Fyrst um sinn voru einungis stoðtæki í boði,
en síðar komu hjálpartækin til sögunnar. Í
stuttu máli má lýsa muninum á stoð- og
hjálpartækjum þannig að stoðtæki eru föst
við líkamann, eins og gervilimir, en hjálp-
artæki eru það ekki. Þar má nefna hjólastóla
og göngugrindur.
Eitt af því sem er mikilvægt til að stuðla að
heilbrigði eru forvarnir, en þar haslaði Stoð
sér völl fyrr á árinu þegar það tók yfir rekst-
ur Flexor á Bíldshöfða. „Þar seljum við vörur
eins og hlaupaskó, lífsstílsvörur ýmiss konar,
æfingatæki, gönguskó og slíkt. Þá bjóðum við
upp á göngugreiningu hjá sjúkraþjálfurum
og íþróttafræðingum,“ segir Ása.
Vilja kynna fyrirtækið betur
Eitt af því sem verður liður í að auka
tekjur fyrirtækisins er að sögn Ásu að kynna
fyrirtækið betur á almennum markaði. Hún
vill að almenningur viti að hjá Stoð sé hægt
að fá margs konar stuðningsvörur, t.d. fyrir
fólk sem hefur orðið fyrir hnjaski í útihlaup-
um, golfi eða leikfimi. „Það er hluti af fram-
tíðarstefnumótuninni, að gera vörumerkið
sýnilegra.“
tobj@mbl.is
Björt framtíð í stoðtækjageiranum
444. sæti
STOÐ
Meðalstórt 201. sæti
Ása Jóhannesdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrirtæki sem hafa alltaf verið Framúrskarandi
63 fyrirtæki hafa alltaf
verið Framúrskarandi
49 eru staðsett
á höfuðborgar-
svæðinu
8 á Norðurlandi
eystra
2 á Austurlandi
1 á Norðurlandi
vestra
1 á Suðurlandi,
1 á Suðurnesjum
1 á Vesturlandi
14% eru
með konu
sem fram-
kvæmdastjóra
Meðalaldur fyrirtækja
29 ár (miðgildi)
49
8
21
1 1
1
29
Meðalaldur
framkvæmdastjóra
58 ár