Morgunblaðið - 22.10.2020, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Þ
að eru líklega ekki margir kvenkyns
framkvæmdastjórar þrjátíu ára og
yngri á lista Creditinfo yfir Fram-
úrskarandi fyrirtæki, en Gerður
Huld Arinbjarnardóttir er ein þeirra. Hún seg-
ist hafa stofnað kynlífstækjafyrirtæki sitt
Blush þegar hún var aðeins tuttugu og eins árs
gömul. „Áður en ég stofnaði fyrirtækið hafði ég
ekki unnið við neitt í líkingu við þetta. Ég
renndi algjörlega blint í sjóinn. Auk þess hafði
ég ekki hugmynd um hvernig ætti að reka
fyrirtæki, hvað þá fyrirtæki með þrettán
starfsmönnum sem vinna við það allan daginn
að selja titrara, sleipiefni og önnur kynlífstæki.
Ég kom sjálfri mér á óvart,“ segir Gerður.
Lærði á því að gera hlutina
Gerður er hvorki með stúdentspróf né há-
skólapróf. „Ég prófaði menntaskóla en það
hentaði mér ekki. Ég á ekki auðvelt með nám.
Ég lærði frekar á því að gera hlutina. Það kost-
aði mig alls konar mistök, en ég lærði líka af
þeim.“Áður en Gerður stofnaði Blush vann hún
aðallega við ýmiss konar sölustörf. En hvernig
fékk hún hugmyndina að því að fara út í kyn-
lífstækjageirann?
„Ég fór að bera Ísland saman við aðra mark-
aði, og sá að það var gat á markaðnum á Ís-
landi. Hér voru engar flottar kynlífsvörur í
boði. Í fyrstu var hugmyndin ekki að fara sjálf
út í svona rekstur, en það æxlaðist þannig. Ég
hugsaði sem svo að ef mér fyndist eitthvað
vanta væri ekki ólíklegt að öðrum fyndist það
líka. Einkenni á góðri viðskiptahugmynd er
einmitt að átta sig á því að það sé raunveruleg-
ur skortur á vörunni.“
Hún segir að þegar hún hafi farið af stað hafi
verið auðvelt að komast í samband við birgja
úti í heimi og fá vörur sendar til landsins til að
prófa. Í dag sé það erfiðara. „Birgjarnir voru
mjög viljugir að vinna með mér. Það var mín
upplifun. Fæst vörumerkin sem ég vildi selja
voru til hér á landi, en í dag eru hins vegar flest
þekktustu merkin komin á íslenska mark-
aðinn.“
Spurð hvort einhverjar vörur henti Íslend-
ingum betur en aðrar segir Gerður að Íslend-
ingar leiti eftir gæðum og geri kröfur.
Fólk er mun opnara í dag
Spurð um umræðuna um kynlífstæki í sam-
félaginu segist Gerður finna mikinn mun nú og
fyrir tíu árum þegar hún byrjaði með Blush.
„Fólk er mun opnara í dag. Það áttar sig betur
á að kynhvötin er hluti af mannlegu eðli. Fólk
er orðið opnara fyrir því að krydda kynlífið til
að viðhalda neistanum í sambandinu. Þar koma
tækin einmitt sterk inn.“
En fyrir byrjendur í þessum efnum, hvaða
tæki ætti par að byrja á að fá sér?
„Ég myndi mæla með einu tæki fyrir hann
og einu fyrir hana, ef um er að ræða karl og
konu. Til dæmis typpahring fyrir hann og
eggi fyrir hana til að örva snípinn. Það er sí-
gild byrjun. Það er mikilvægt þegar fyrsta
tækið er valið að það sé einfalt og þægilegt,
og upplifunin af notkuninni verði góð. Svo fer
fólk í að kaupa sérhæfðari tæki í kjölfarið, þar
sem leggöngin eru örvuð til dæmis. Það er
staðreynd að 75% kvenna þurfa örvun á sníp-
inn til að fá fullnægingu. Við leiðbeinum ein-
staklingum með píkur varðandi bestu leiðina í
þeim efnum.“
Spurð hvort fólk komi aftur og aftur, ef það
á annað borð byrjar að kaupa kynlífstæki,
segir Gerður svo vera. Sumir komi í hverjum
mánuði, aðrir árlega. „Það fer eftir áhuga
fólks. Stór hluti af fólki á aldursbilinu 18-55
ára á kynlífstæki.“
Rekstur Blush hefur gengið eins og í sögu,
bæði nú á Covid-tímum og á síðustu árum.
„Við höfum selt kynlífstæki fyrir meira en
milljarð króna frá því við byrjuðum. Í ár
sjáum við fram á 30% tekjuaukningu.“
Er aukningin út af því að fólk er meira heima
hjá sér vegna kórónuveirunnar?
„Já, en líka út af öðru. Fyrirtækið verður sí-
fellt þekktara og það eru alltaf að bætast við nýir
viðskiptavinir. Þá erum við líka að læra meira
inn á markaðinn og markaðurinn að læra meira
inn á okkur.“
Netverslun er stór hluti af tekjum Blush.
„Hún er svona 40% af veltunni. Heimakynn-
ingar eru 10-15% og svo er salan í búðinni það
sem eftir stendur. Það kemur mörgum á óvart
hvað búðin er stór hluti af sölunni.“ Á næsta ári
ætlar Blush að flytja í nýja 860 fermetra verslun
á höfuðborgarsvæðinu. Í dag er verslunin í
Hamraborg í Kópavogi í mun minna húsnæði.
Gerður segir að Blush sé mjög samkeppnis-
hæf í verði við erlendar sambærilegar netversl-
anir.
Hvað heimakynningar varðar segir Gerður að
þær hafi verið vinsælar, en vegna veirunnar og
samkomutakmarkana vegna hennar hafi verið
minna að gera á þeim vettvangi á þessu ári. Auk-
in velta í netverslun vegi þar upp á móti. „90% af
þeim sem mæta á heimakynningar eru konur.
Karlar mættu alveg bæta sig í þessum efnum.“
Stefna á tvö þúsund jóladagatöl
Fram undan er stærsti verslunartími ársins,
jólin. „Við erum að drukkna í jóladagatölum í
versluninni eins og er. Við höfum alltaf selt á
bilinu 1.200-1.500 dagatöl fyrir jólin en stefnum
á tvö þúsund í ár. Í þessum dagatölum, sem
kosta 24.990 krónur, er einn pakki fyrir hvern
dag í desember fram að jólum. Þetta er í bland
sleipiefni og kynlífstæki ýmiss konar. Það eru
alls 8-9 kynlífstæki í dagatalinu. Þetta er til-
valið til að krydda kynlífið í desember. Ég full-
yrði að dagatalið í ár er það flottasta sem við
höfum verið með til þessa.“ Að lokum langar
blaðamann að vita hver galdurinn er við að
reka Framúrskarandi fyrirtæki. „Ég held að
það sé bara að fylgja hjartanu og þora að fara
út fyrir kassann.“
tobj@mbl.is
Kynhvötin er hluti af mannlegu eðli
Morgunblaðið/Eggert
Blush er til húsa í Hamraborg í Kópavogi en flytur í stærra húsnæði á næsta ári.
Gerður segir að stór hluti af fólki á
aldursbilinu 18-55 ára eigi kynlífstæki.
455. sæti
BLUSH
Lítið 29. sæti
Gerður Huld
Arinbjarnardóttir