Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Þ
að er leitun að litríkari og líflegri
verslunum en Garðheimum og það
virðist engu máli skipta hvaða árstíð
er: Alltaf má finna blómailm og
áminningu um að gróskan er á næsta leiti. Þann-
ig er það einnig í rekstri fyrirtækisins sem hefur
frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldunnar þótt
fyrir nokkrum árum hafi orðið þar kyn-
slóðaskipti.
„Við erum gamalt fjölskyldufyrirtæki og bygg-
ist á ákvörðun foreldra minna sem þau tóku árið
1991 um að kaupa verslun Sölufélags garðyrkju-
manna sem var til húsa á Smiðjuveginum í Kópa-
vogi. Það var svo átta árum síðar sem þau færðu
sig yfir Reykjanesbrautina og stofnuðu Garð-
heima. Hér hefur fyrirtækið verið síðan.“
Með þessum orðum lýsir Kristín Helga Gísla-
dóttir, framkvæmdastjóri og einn eigenda fyrir-
tækisins, tilurð þess. Hún hefur alla tíð staðið í
rekstrinum með foreldrum sínum og þekkir hann
því frá a til ö.
„Ég man í raun ekki eftir mér öðruvísi en fyrir
aftan búðarborðið hjá þeim. Ég fékk líka
snemma að axla ábyrgð og þegar þau fóru út eða
í frí bar ég ábyrgð á rekstrinum á meðan. Það er
því innan Garðheima sem ég hef fengið mína
rekstrar- og stjórnunarreynslu.“
Systkinin standa vaktina saman
Kristín bendir hins vegar á að hún ber ekki ein
hitann og þungann af rekstrinum.
„Það var fyrir á að giska fimm árum sem við
systkinin tókum við rekstrinum af foreldrum
okkar og erum nú aðaleigendur fyrirtæksins. Við
vinnum öll hjá fyrirtækinu. Ég og bróðir minn
höfum verið hér lengst en síðar bættust systur
okkar tvær við.“
Stundum er því haldið fram að fyrirtæki fari
halloka þegar önnur eða þriðja kynslóð taki við
keflinu, ekki síst þegar fleiri en einn af nýjum
stjórnendum koma úr sama ranni. Kristín segir
það ekki reynslu þeirra.
„Þótt ég sé framkvæmdastjóri þá erum við
saman í þessu og við fundum að minnsta kosti
einu sinni í viku til þess að fara yfir málin. Þetta
hefur gengið vel og við höfum náð að snúa stöð-
unni okkur í hag. Fyrirtækið hafði raunar alltaf
gengið vel fram að hruni. Þá tóku við mjög krefj-
andi tímar, ekki síst vegna gríðarlegrar hækk-
unar húsaleigunnar en hún var til hálfs bundin
gengi krónu gagnvart erlendum gjaldmiðlum.
Það hefur allt lagast mikið á síðustu árum og við
komumst fyrir vind.“
Spurð út í góðan árangur fyrirtækisins á síð-
ustu árum segir Kristín að það hafi reynst mikið
lán hversu vel þeim hafi haldist á góðu starfsfólki.
„Hjá okkur starfa að jafnaði um 60 manns og
starfsaldurinn er hár. Og hér er hugsunin sú að
við vinnum hlutina í góðu samstarfi. Það á við um
allan starfsmannahópinn, rétt eins og okkur
systkinin,“ segir hún í léttum dúr.
Hagnaðurinn tvö- eða þrefaldast
Kristín segir að kórónuveiran hafi breytt starf-
seminni mikið og að þá hafi sannast mikilvægi
þess að vera með stuttar boðleiðir innan fyrir-
tækisins.
„Það sem hefur verið einkennandi fyrir þetta
ár og verið stærsta áskorunin er að maður þarf
að vera mjög fljótur að taka ákvarðanir og frjór
að finna nýjar lausnir til þess að leysa úr hlut-
unum. Það tvennt hefur staðið upp úr á þessu ári.
Við höfum stöðugt þurft að gera breytingar á því
hvernig við gerum hlutina og hvað við leggjum
áherslu á. Okkur hefur tekist það ótrúlega vel
þótt ég segi sjálf frá.“
Hún tekur dæmi af fyrstu vikum faraldursins
og að þá hafi strax verið tekin ákvörðun um að
leggja stóraukinn þunga í heimasíðu fyrir-
tækisins og vefverslun.
„Við vorum komin í gang með þessa vinnu
þegar faraldurinn kom yfir en við settum alla
áherslu á að setja sem flestar vörur þangað inn.
Við vorum á tímabili með fjóra til fimm starfs-
menn á fullu í þeirri vöruskráningu en alla jafna
er bara einn starfsmaður í því verkefni. Það
hjálpaði okkur heilmikið við að halda dampi þeg-
ar þetta var allt saman að fara úr skorðum í sam-
félaginu.“
Hún segir að veltan hafi aukist talsvert í net-
versluninni en að sveiflurnar á þeim vettvangi
hafi verið töluvert miklar.
„Hún var heilmikil í apríl en þegar ástandið
batnaði þá minnkaði veltan aftur gegnum netið.
Það eru mjög margar heimsóknir á vefsíðuna og
okkar viðskiptavinir nota hana greinilega sér-
staklega til þess að skoða vörur og bera saman
en svo koma þeir til okkar og kaupa vöruna á
gamla mátann. Oft koma þeir með myndir af vef-
síðunum og segja okkur með því hvað þeir vilja
kaupa. Þegar ástandið versnaði svo aftur í sept-
ember þá jókst salan aftur mjög hratt gegnum
netið.“
Spurð út í áhrif faraldursins á afkomuna segir
Kristín að þau liggi ekki að fullu fyrir en flest
bendi til þess að hagnaðurinn muni tvö- eða þre-
faldast og að veltuaukningin liggi á bilinu 20-30
prósent.
Meðal þess sem leynist í undraveröldinni á
Stekkjarbakka er veitingahúsið Spíran sem nýt-
ur mikilla vinsælda. Sú starfsemi er ekki beint á
vegum Garðheima að sögn Kristínar.
„Við rákum þetta veitingahús fyrst sjálf en við
komumst að því að veitinga- og verslunarrekstur
er mjög ólíkur í eðli sínu. Við fengum því Kokk-
ana í hús sem leigja af okkur rýmið og það sam-
starf hefur gengið mjög vel.“
Nýtt húsnæði á teikniborðinu
Líkt og áður greinir lenti fyrirtækið í vanda
vegna hárrar húsaleigu. Fyrir örfáum árum
keyptu svo Hagar húsnæðið og beinast liggur við
að spyrja af hverju Garðheimar hafi ekki tryggt
sér húsnæðið til frambúðar með því að kaupa
það.
„Verðmiðinn var alltof hár. Það er búið að
breyta aðalskipulagi þessarar lóðar og hér má
byggja mikið íbúðarhúsnæði. Það eru þau rétt-
indi sem sprengdu verðið upp en ekki húsnæðið
sem slíkt. Við höfum hins vegar fengið vilyrði fyr-
ir lóð í Álfabakka og við vonumst til þess að geta
kynnt fyrstu uppdrætti að nýju húsnæði þar á
næstu vikum.“
Kristín segir að flutningur starfseminnar geti
falið í sér mikil tækifæri. Gert sé ráð fyrir að
verslunin stækki um 2.000 fermetra og að hús-
næðið með öllu verði um 7.000 fermetrar að
stærð.
„Við erum mjög spennt fyrir þessu verkefni og
vonumst til þess að þetta verði komið í gagnið
innan eins til tveggja ára. Við höfum verið með
mjög góða arkitekta með okkur í þessu, bæði ís-
lenska og svo hollenska ráðgjafa sem sérhæfa sig
í hönnun húsnæðis undir starfsemi eins og okkar
um allan heim. Við getum eiginlega ekki beðið
eftir að geta kynnt þessar fyrirætlanir okkar,“
segir Kristín og ljóst að gróskan er ekki aðeins í
blómapottunum í Garðheimum eða núverandi
rekstri heldur einnig áætlunum framtíðarinnar.
ses@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Mikil uppbygging í farvatninu
Hjá Garðheimum starfa 60 manns á hverjum tíma og Kristín Helga segir starfsmannaveltuna lága.
575. sæti
GARÐ-
HEIMAR
Meðalstórt 267. sæti
Kristín Helga Gísladóttir
Kristín Helga hefur kom-
ið að rekstri Garðheima
allt frá stofnun fyrir-
tækisins árið 1999.