Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Í slendingar elska popp. Þar getur blaða- maður verið sammála Sigurjóni Dag- bjartssyni, framkvæmdastjóra fjölskyldu- fyrirtækisins Iðnmarks í Hafnarfirði, en fyrirtækið framleiðir hið rómaða Stjörnupopp og Stjörnusnakk. Fyrirtækið er eitt af fáum fyrirtækjum sem verið hefur á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki frá upphafi, enda gengur reksturinn vel, meira að segja núna þegar kreppir að í samfélaginu vegna kórónuveirunnar. Íslendingar þurfa sitt popp og snakk hvað sem á bjátar. Tvö hundruð þús- und pokar af poppi og snakki renna af færi- bandi Iðnmarks í hverjum einasta mánuði. Byrjuðum að borða popp árið 1940 Sigurjón upplýsir blaðamann um þá sögu- legu staðreynd að Íslendingar hafi byrjað að borða popp í kringum árið 1940, þegar Kaninn steig hér á land. „Faðir minn Dagbjartur Björnsson stofnaði Iðnmark ásamt eiginkonu sinni Eyrúnu Sigurjónsdóttur og fjölskyldu árið 1988, og við erum búin að vera í þessu síð- an, eða í þrjátíu og tvö ár,“ segir Sigurjón, og kveðst hvergi nærri hættur, enda sé gaman að framleiða popp og snakk. „Stjörnupopp og Ostapopp var fyrsta varan sem fyrirtækið sendi frá sér árið 1988.“ Spurður að því hvernig hugmyndin hafi kviknað segir Sigurjón að faðir hans hafi verið á vörusýningu í Bandaríkjunum, og þar hafi poppvélar verið til sýnis. Margir hafi veitt þeim athygli, og þar á meðal hann. „Hann átt- aði sig á að það var gat á markaðnum hér heima. Það var ekki til tilbúið popp í versl- unum. Þannig fór þetta af stað.“ Næsta vara sem kom á markað frá Iðn- marki var hið vinsæla Stjörnusnakk. „Það var upp úr 1990. Svo hefur þetta þróast jafnt og þétt síðan. Við reynum að koma með þrjár til fjórar nýjar vörur á hverju ári á markaðinn. Það er alltaf áhugi fyrir nýjungum, og stund- um er nóg að breyta kryddinu eða löguninni á snakkinu.“ Meðal vörutegunda sem komið hafa frá Iðn- marki og fást í búðum í dag eru Fitness-popp, Prótein-popp, Karamellupopp og alls konar snakktegundir. „Þar má nefna papr- ikustjörnur, ostastjörnur, Sour Créme-snakk, og svo Partý mix og skrúfur,“ útskýrir Sig- urjón, en það er greinilega lengi hægt að halda áfram að þróa snakk í ýmsar áttir. „Topparnir í sölunni eru á gamlárskvöld og þegar Eurovision er í gangi. Þá fer mikið af snakki og þegar fólk fer að streyma í útileg- urnar í júlí á hverju ári. Þessir toppar hafa eiginlega haldist þeir sömu frá upphafi.“ Harður slagur um hillupláss Spurður um samkeppnina á markaðnum segir Sigurjón að hún sé mikil, og oft sé harð- ur slagur inni í verslununum sjálfum að halda góðu hilluplássi. Til þess þurfi að sinna versl- unum vel og mæta á staðinn a.m.k. tvisvar í viku. „Þar kemur til sögunar okkar besti mað- ur Örn Hafsteinn Baldvinsson sem sinnir okk- ar vörum í verslunum. Við erum búin að vera svo lengi í bransanum, og fólk er farið að venj- ast okkar vörum. Við höfum náð að halda okk- ar sérstöðu og ég finn að á síðustu árum velur fólk meira íslenskt. Það er enda umhverfis- vænni vara en sú innflutta.“ Aðspurður segir Sigurjón að ekki sé hægt að nota hvaða kartöflur sem er til snakk- gerðar. Til dæmis séu þær íslensku ekki nógu mjölmiklar. Í þeim sé of mikil sterkja, sem veldur því að þær brenna of auðveldlega. „Það er sérstakt afbrigði af kartöflum notað í snakk. Við fáum okkar kartöflur forunnar frá Frakklandi. Síðan klárum við að búa til snakk úr þeim. Við erum með tuttugu metra langa framleiðslulínu fyrir bæði snakk og popp.“ Maísinn kemur frá Bandaríkjunum en ekki er hægt að poppa hvaða maís sem er. „Það er sérstakur poppmaís sem við notum. Hann er sér ræktaður fyrir okkur, óerfðabreyttur. Við eigum í góðu samstarfi við maísbónda í Ne- braska og hann ræktar alltaf sama maísinn fyrir okkur þarna úti, og við flytjum inn um 100 tonn á ári af poppmaís.“ Fyrstu árin keypti Iðnmark poppmaísinn sinn af íslenskum heildsala, en þegar umfang rekstrarins jókst, byrjaði Iðnmark að flytja sjálft inn maís. Fyrst um sinn voru flutt inn 40 til 60 tonn á ári, sem fylltu tvo til þrjá heila gáma. „Poppneysla á Íslandi er alltaf að aukast, væntanlega á kostnað örbylgjupopps, sem þykir ekki eins hollt. Stjörnupoppið okkar er poppað í heitu loftstreymi, og sýður ekki í olíu. Svo úðum við 30 gráðu heitri kókosolíu ásamt salti á það. Það sama er með ostapoppið, þá úðum við ostadufti og salti á það eftir á.“ Ostapoppið dregur vagninn Mest selda vara Iðnmarks er osta- stjörnupopp. Það stendur fyrir 20% af ársvelt- unni. „Ostapoppið hefur alltaf dregið vagninn, og sló í gegn strax í byrjun. Svo fylgja í kjöl- farið Stjörnupoppið, Fitness-poppið, Prótein- poppið og svo karamellupoppið.“ Nýjasta varan af þeim popptegundum sem taldar voru upp hér að framan er Prótein- poppið. „Við fáum próteinduft frá KS á Sauð- árkróki og blöndum því við kókósolíu og úðum á poppið. Þetta er eðalvara ef maður vill auka próteinneyslu, auk þess sem þú færð flókin kolvetni, trefjar og engan sykur.“ Ekki er heldur langt síðan byrjað var að framleiða stökkt og bragðgott karamellupopp. „Markaðurinn hefur tekið vel í það. Þetta er seinlegri framleiðsla. Við framleiðum tíu kíló í einni lotu. Það þarf að sjóða karamellluna, og svo er poppinu blandað út í og það húðast í karamellunni. Þetta er meiri handavinna.“ Átta manns vinna hjá Iðnmarki, og mögu- lega þarf að bæta fljótlega við starfsfólki að sögn Sigurjóns. „Salan nánast tvöfaldaðist í mars og apríl, því það voru svo margir heima vegna veirunnar. Þá þurftum við að vinna á vöktum til að anna eftirspurn.“ Eins og sjá má þegar ársreikningar Iðn- marks eru skoðaðir er fyrirtækið vel statt fjárhagslega, og reksturinn stöðugur. Tekjur hafa síðustu ár verið í kringum 370 milljónir á ári og hagnaður ávallt um og yfir eitt hundrað milljónir króna. Eigið féð er 881 milljón og eignir 940 milljónir, sem ætti að segja alla söguna um stöðu félagsins. „Okkur hefur fundist best að vera íhaldssöm í okkar ákvörð- unum.“ Spurður um hlutdeildina á snakkmark- aðnum telur Sigurjón að hún sé um 20-25% ef allt er talið. „Það er talsvert hér af snakki frá Hollandi, Noregi, Danmörku og víðar að.“ Popp og snakk spyr ekki um aldur eða kyn. Fólk á öllum aldri er í viðskiptavinahópnum. „Eldra fólk kaupir mikið af stjörnupoppi. Þá fær það trefjarnar og próteinið. Þetta er bráð- hollt. Við erum búin að ala upp eina popp- kynslóð, og nú eru það börnin hennar sem eru farin að taka við. Þetta er þolinmæðisvinna.“ Þróunarferli hafið fyrir næsta vor Framtíðin er björt hjá Iðnmarki, og nýjar vörur, sem Sigurjón getur ekki upplýst um hverjar eru, verða settar á markað með vor- inu. „Síðasta vor komum við með laukhringi og buffalo-beikonsnakk á markaðinn, ásamt prótein-poppinu. Nú erum við í þróunarferli með vörur fyrir næsta vor. Það tekur átta til tólf mánuði að koma vöru á markað frá því að hugmyndin fæðist. Það þarf að prófa ýmsar kryddtegundir, og setja vörurnar svo í smökk- un, til að vita hvað markaðurinn vill.“ tobj@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Höfum náð að halda okkar sérstöðu 200.000 pokar af poppi og snakki renna af færibandi Iðnmarks í hverjum mánuði. Pat- rycja Flejterska er hér við framleiðslulínuna. Sigurjón Dagbjartsson fram- kvæmdastjóri og Jóhanna Dagbjartsdóttir fjármálastjóri. 252. sæti fyrirtæki Meðalstórt 66. sæti Dagbjartur Björnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.