Morgunblaðið - 22.10.2020, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Í
slendingar elska popp. Þar getur blaða-
maður verið sammála Sigurjóni Dag-
bjartssyni, framkvæmdastjóra fjölskyldu-
fyrirtækisins Iðnmarks í Hafnarfirði, en
fyrirtækið framleiðir hið rómaða Stjörnupopp
og Stjörnusnakk. Fyrirtækið er eitt af fáum
fyrirtækjum sem verið hefur á lista Creditinfo
yfir framúrskarandi fyrirtæki frá upphafi,
enda gengur reksturinn vel, meira að segja
núna þegar kreppir að í samfélaginu vegna
kórónuveirunnar. Íslendingar þurfa sitt popp
og snakk hvað sem á bjátar. Tvö hundruð þús-
und pokar af poppi og snakki renna af færi-
bandi Iðnmarks í hverjum einasta mánuði.
Byrjuðum að borða popp árið 1940
Sigurjón upplýsir blaðamann um þá sögu-
legu staðreynd að Íslendingar hafi byrjað að
borða popp í kringum árið 1940, þegar Kaninn
steig hér á land. „Faðir minn Dagbjartur
Björnsson stofnaði Iðnmark ásamt eiginkonu
sinni Eyrúnu Sigurjónsdóttur og fjölskyldu
árið 1988, og við erum búin að vera í þessu síð-
an, eða í þrjátíu og tvö ár,“ segir Sigurjón, og
kveðst hvergi nærri hættur, enda sé gaman að
framleiða popp og snakk. „Stjörnupopp og
Ostapopp var fyrsta varan sem fyrirtækið
sendi frá sér árið 1988.“
Spurður að því hvernig hugmyndin hafi
kviknað segir Sigurjón að faðir hans hafi verið
á vörusýningu í Bandaríkjunum, og þar hafi
poppvélar verið til sýnis. Margir hafi veitt
þeim athygli, og þar á meðal hann. „Hann átt-
aði sig á að það var gat á markaðnum hér
heima. Það var ekki til tilbúið popp í versl-
unum. Þannig fór þetta af stað.“
Næsta vara sem kom á markað frá Iðn-
marki var hið vinsæla Stjörnusnakk. „Það var
upp úr 1990. Svo hefur þetta þróast jafnt og
þétt síðan. Við reynum að koma með þrjár til
fjórar nýjar vörur á hverju ári á markaðinn.
Það er alltaf áhugi fyrir nýjungum, og stund-
um er nóg að breyta kryddinu eða löguninni á
snakkinu.“
Meðal vörutegunda sem komið hafa frá Iðn-
marki og fást í búðum í dag eru Fitness-popp,
Prótein-popp, Karamellupopp og alls konar
snakktegundir. „Þar má nefna papr-
ikustjörnur, ostastjörnur, Sour Créme-snakk,
og svo Partý mix og skrúfur,“ útskýrir Sig-
urjón, en það er greinilega lengi hægt að
halda áfram að þróa snakk í ýmsar áttir.
„Topparnir í sölunni eru á gamlárskvöld og
þegar Eurovision er í gangi. Þá fer mikið af
snakki og þegar fólk fer að streyma í útileg-
urnar í júlí á hverju ári. Þessir toppar hafa
eiginlega haldist þeir sömu frá upphafi.“
Harður slagur um hillupláss
Spurður um samkeppnina á markaðnum
segir Sigurjón að hún sé mikil, og oft sé harð-
ur slagur inni í verslununum sjálfum að halda
góðu hilluplássi. Til þess þurfi að sinna versl-
unum vel og mæta á staðinn a.m.k. tvisvar í
viku. „Þar kemur til sögunar okkar besti mað-
ur Örn Hafsteinn Baldvinsson sem sinnir okk-
ar vörum í verslunum. Við erum búin að vera
svo lengi í bransanum, og fólk er farið að venj-
ast okkar vörum. Við höfum náð að halda okk-
ar sérstöðu og ég finn að á síðustu árum velur
fólk meira íslenskt. Það er enda umhverfis-
vænni vara en sú innflutta.“
Aðspurður segir Sigurjón að ekki sé hægt
að nota hvaða kartöflur sem er til snakk-
gerðar. Til dæmis séu þær íslensku ekki nógu
mjölmiklar. Í þeim sé of mikil sterkja, sem
veldur því að þær brenna of auðveldlega. „Það
er sérstakt afbrigði af kartöflum notað í
snakk. Við fáum okkar kartöflur forunnar frá
Frakklandi. Síðan klárum við að búa til snakk
úr þeim. Við erum með tuttugu metra langa
framleiðslulínu fyrir bæði snakk og popp.“
Maísinn kemur frá Bandaríkjunum en ekki
er hægt að poppa hvaða maís sem er. „Það er
sérstakur poppmaís sem við notum. Hann er
sér ræktaður fyrir okkur, óerfðabreyttur. Við
eigum í góðu samstarfi við maísbónda í Ne-
braska og hann ræktar alltaf sama maísinn
fyrir okkur þarna úti, og við flytjum inn um
100 tonn á ári af poppmaís.“
Fyrstu árin keypti Iðnmark poppmaísinn
sinn af íslenskum heildsala, en þegar umfang
rekstrarins jókst, byrjaði Iðnmark að flytja
sjálft inn maís. Fyrst um sinn voru flutt inn 40
til 60 tonn á ári, sem fylltu tvo til þrjá heila
gáma.
„Poppneysla á Íslandi er alltaf að aukast,
væntanlega á kostnað örbylgjupopps, sem
þykir ekki eins hollt. Stjörnupoppið okkar er
poppað í heitu loftstreymi, og sýður ekki í olíu.
Svo úðum við 30 gráðu heitri kókosolíu ásamt
salti á það. Það sama er með ostapoppið, þá
úðum við ostadufti og salti á það eftir á.“
Ostapoppið dregur vagninn
Mest selda vara Iðnmarks er osta-
stjörnupopp. Það stendur fyrir 20% af ársvelt-
unni. „Ostapoppið hefur alltaf dregið vagninn,
og sló í gegn strax í byrjun. Svo fylgja í kjöl-
farið Stjörnupoppið, Fitness-poppið, Prótein-
poppið og svo karamellupoppið.“
Nýjasta varan af þeim popptegundum sem
taldar voru upp hér að framan er Prótein-
poppið. „Við fáum próteinduft frá KS á Sauð-
árkróki og blöndum því við kókósolíu og úðum
á poppið. Þetta er eðalvara ef maður vill auka
próteinneyslu, auk þess sem þú færð flókin
kolvetni, trefjar og engan sykur.“
Ekki er heldur langt síðan byrjað var að
framleiða stökkt og bragðgott karamellupopp.
„Markaðurinn hefur tekið vel í það. Þetta er
seinlegri framleiðsla. Við framleiðum tíu kíló í
einni lotu. Það þarf að sjóða karamellluna, og
svo er poppinu blandað út í og það húðast í
karamellunni. Þetta er meiri handavinna.“
Átta manns vinna hjá Iðnmarki, og mögu-
lega þarf að bæta fljótlega við starfsfólki að
sögn Sigurjóns. „Salan nánast tvöfaldaðist í
mars og apríl, því það voru svo margir heima
vegna veirunnar. Þá þurftum við að vinna á
vöktum til að anna eftirspurn.“
Eins og sjá má þegar ársreikningar Iðn-
marks eru skoðaðir er fyrirtækið vel statt
fjárhagslega, og reksturinn stöðugur. Tekjur
hafa síðustu ár verið í kringum 370 milljónir á
ári og hagnaður ávallt um og yfir eitt hundrað
milljónir króna. Eigið féð er 881 milljón og
eignir 940 milljónir, sem ætti að segja alla
söguna um stöðu félagsins. „Okkur hefur
fundist best að vera íhaldssöm í okkar ákvörð-
unum.“
Spurður um hlutdeildina á snakkmark-
aðnum telur Sigurjón að hún sé um 20-25% ef
allt er talið. „Það er talsvert hér af snakki frá
Hollandi, Noregi, Danmörku og víðar að.“
Popp og snakk spyr ekki um aldur eða kyn.
Fólk á öllum aldri er í viðskiptavinahópnum.
„Eldra fólk kaupir mikið af stjörnupoppi. Þá
fær það trefjarnar og próteinið. Þetta er bráð-
hollt. Við erum búin að ala upp eina popp-
kynslóð, og nú eru það börnin hennar sem eru
farin að taka við. Þetta er þolinmæðisvinna.“
Þróunarferli hafið fyrir næsta vor
Framtíðin er björt hjá Iðnmarki, og nýjar
vörur, sem Sigurjón getur ekki upplýst um
hverjar eru, verða settar á markað með vor-
inu. „Síðasta vor komum við með laukhringi
og buffalo-beikonsnakk á markaðinn, ásamt
prótein-poppinu. Nú erum við í þróunarferli
með vörur fyrir næsta vor. Það tekur átta til
tólf mánuði að koma vöru á markað frá því að
hugmyndin fæðist. Það þarf að prófa ýmsar
kryddtegundir, og setja vörurnar svo í smökk-
un, til að vita hvað markaðurinn vill.“
tobj@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Höfum náð að halda okkar sérstöðu
200.000 pokar af poppi og snakki renna af
færibandi Iðnmarks í hverjum mánuði. Pat-
rycja Flejterska er hér við framleiðslulínuna.
Sigurjón Dagbjartsson fram-
kvæmdastjóri og Jóhanna
Dagbjartsdóttir fjármálastjóri.
252. sæti
fyrirtæki
Meðalstórt 66. sæti
Dagbjartur Björnsson