Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 76
76 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Í
Grindavík er fyrirtækið TG raf sem byggir
á gömlum merg og á rætur sínar að rekja
allt til ársins 1940. Sem löggiltur rafverk-
taki veitir það þjónustu í sinni heimabyggð
og hefur vaxið og dafnað samhliða blómlegri
sjósókn sem þaðan er stunduð.
Framkvæmdarstjórinn er Áslaug Rós Guð-
mundsdóttir, sem segir að fyrirtækið hafi
skapað sér sérhæfingu og sérstöðu sem byggir
á faglegu samstarfi og trausti við sína við-
skiptavini. Í dag sé starfsemin af tvennum
toga: mannvirkjasvið, þar sem veitt er almenn
rafþjónusta til fyrirtækja og nýbygginga; og
svo skipa- og iðnaðarsvið, sem starfar mest
með útgerðum, fiskvinnslum og verksmiðjum.
Aðspurð hvar fyrirtækið staðsetji sig á
markaði segir Áslaug það vera mitt á milli þess
að vera hefðbundinn rafverktaki og sérhæft
tæknifyrirtæki. Verandi með öflugt starfsfólk
úr „hvoru liðinu“ þá geti fyrirtækið komið víða
við í virðiskeðjunni s.s. við hönnun, forritun,
stýringar, uppsetingar og framleiðslu lausna:
auk þess sem það sinni viðhaldi til lengri tíma.
Því sé hægt að segja að TG raf sé fyrirtæki
sem bjóði upp á heildarlausnir á sínu sviði.
Taka vel á móti ungum nemum
Hjá fyrirtækinu starfa 30 starfsmenn. Tíu
prósent eru tæknifræðingar, önnur tíu eru vél-
fræðingar og aðrir eru almennir rafvirkjar
með mismunandi sérhæfingu. Margir bera
langa reynslu undir belti og hafa starfað í sínu
fagi í 25-30 ár.
Spurð um áherslu í starfsmannamálum segir
Áslaug að þar á bæ snúist allt um heildina og
allir hafi sína rödd sem „megi og eigi að
brúka“, enda sé það ein meginforsendan fyrir
því að fyrirtækið nái árangri.
Hún segir einnig að mikið sé lagt upp úr
góðri þekkingu og menntun og það sér skýr
stefna að halda því á lofti eins og best verður á
kostið. Tekið er sérstaklega á móti ungum
nemum sem ráða sig til fyrirtækisins; þeir fá
aðstoð við skólagjöld, fá bíl að láni og á skrif-
stofu félagsins er lítið heimatilbúið bókasafn.
Þannig lýsir Áslaug að haldið sé um unga fólkið
sem myndi grunninn að framtíðinni. Hún
bendir einnig á að rafmagn komi alls staðar við
sögu og fagið sé mjög breitt í eðli sínu. „Það
skipti máli að finna styrkleika hjá hverjum og
einum og áhugasvið, sem megi styrkja enn
frekar til þess að öllum líði vel í sínu hlutverki
og fái verkefni við sitt hæfi,“ segir Áslaug.
Spurð að því hvort það skili sér í aukinni
tryggð þ.e. hvort ungt fólk sem vinnur á náms-
mannasamningi sé líklegra til að staldra við til
lengri tíma, segir hún að það geti skilað sér á
tvennan hátt. Annaðhvort með því að fólk
staldri við til lengri tíma, sem séu auðvitað
væntingar til, eða leiti á ný mið. Hið síðar-
nefnda sé alltaf óumflýjanlegt en þá segir Ás-
laug að markmiðið sé að halda áfram góðu
sambandi, enda séu allar líkur á því að leiðir
beggja krossist aftur í sameiginlegum verk-
efnum.
Vöruþróun fyrir skip og báta
Eldmóður og framsækni eru hluti af gildum
TG raf sem Áslaug segir mjög mikilvæg í
starfsumhverfi sem einkennist af hraðri
tækniþróun og örum breytingum. Fyrirtækið
hefur tekið þátt í vöruþróun þar sem saman er
teflt meginþekkingu þess í raf-, vél- og hug-
búnaði. Sem dæmi nefnir hún þróun á sjálf-
virku útleiðsluvöktunarkerfi fyrir skip og báta,
sem auðveldar vinnu vélstjóra og eykur skil-
virkni í viðhaldi. Einnig hefur fyrirtækið hann-
að svokallað „vaktfrítt vélarrúm“ sem er vottað
af Samgöngustofu. Kerfið gefur þann mögu-
leika að skipstjóri annist vöktun á vélarrúmi
meðan vélstjóri hvílist í stað þess að þurfa sér-
stakan vélarvörð á vakt. Þannig skapist betri
vöktun og stöðugildi sparist.
Áslaug segir þessi dæmi um lausnir sem þró-
aðar eru með útgerð og hafa það að marki að
auka skilvirkni og bæta rekstraröryggi og sé
hægt að ná fram með aukinni sjálfvirkni kerfa.
Áskoranir í núverandi ástandi
„Við höfum náð að vinna í kringum þetta“
segir Áslaug, spurð um áhrif faraldursins, þó
að það geti reynst krefjandi að laga starfsem-
ina að sóttvörnum hverju sinni. Hún segir að
fyrri bylgjunni hafi fylgt meiri óvissa, þar sem
mörg fyrirtæki hafi dregið saman seglin, en úr
hafi ræst eftir því sem atvinnulífið hafi lært að
lifa með ástandinu. Nú segir hún verkefna-
stöðuna góða og mörg verkefni sé hægt að
vinna fram í tímann á verkstæði fyrirtækisins,
sem lágmarki þær flækjur sem fylgja því að
vinna á útstöð í miðjum faraldri.
Horft fram í tímann
Áhersla dagsins í dag eru í heildarlausnum
og einstaka vörum sem tryggja rekstraröryggi
viðskiptavina og segir Áslaug að til staðar sé
mjög breiður hópur til staðar fyrir stór verk-
efni. Augljóst er að taug hennar til Grindavíkur
er sterk en spurð um útvíkkukn starfseminar
segir hún að fyrirtækið hafi þegar starfað með
öðrum fyrirtækjum í t.d. stýringarvinnu fyrir
rækjuvinnslu erlendis. Einnig hafi á síðustu
misserum verið horft meira til höfuð-
borgarsvæðisins, sem hún segist vilja kanna
betur í þeirri viðleini að víkka út starfsemina í
smáum skrefum.
sighvaturb@mbl.is
Vel hlúð að menntun starfsmanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
599. sæti
TG RAF
Lítið 88. sæti
Áslaug Rós
Guðmundsdóttir
Mikil áhersla er lögð á menntun starfsfólks og að hver finni sína hillu í faginu.
Áslaug Rós Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri TG rafs, stýrir vösku
liði tækni-, vélfræðinga og rafvirkja.