Morgunblaðið - 22.10.2020, Síða 76

Morgunblaðið - 22.10.2020, Síða 76
76 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Í Grindavík er fyrirtækið TG raf sem byggir á gömlum merg og á rætur sínar að rekja allt til ársins 1940. Sem löggiltur rafverk- taki veitir það þjónustu í sinni heimabyggð og hefur vaxið og dafnað samhliða blómlegri sjósókn sem þaðan er stunduð. Framkvæmdarstjórinn er Áslaug Rós Guð- mundsdóttir, sem segir að fyrirtækið hafi skapað sér sérhæfingu og sérstöðu sem byggir á faglegu samstarfi og trausti við sína við- skiptavini. Í dag sé starfsemin af tvennum toga: mannvirkjasvið, þar sem veitt er almenn rafþjónusta til fyrirtækja og nýbygginga; og svo skipa- og iðnaðarsvið, sem starfar mest með útgerðum, fiskvinnslum og verksmiðjum. Aðspurð hvar fyrirtækið staðsetji sig á markaði segir Áslaug það vera mitt á milli þess að vera hefðbundinn rafverktaki og sérhæft tæknifyrirtæki. Verandi með öflugt starfsfólk úr „hvoru liðinu“ þá geti fyrirtækið komið víða við í virðiskeðjunni s.s. við hönnun, forritun, stýringar, uppsetingar og framleiðslu lausna: auk þess sem það sinni viðhaldi til lengri tíma. Því sé hægt að segja að TG raf sé fyrirtæki sem bjóði upp á heildarlausnir á sínu sviði. Taka vel á móti ungum nemum Hjá fyrirtækinu starfa 30 starfsmenn. Tíu prósent eru tæknifræðingar, önnur tíu eru vél- fræðingar og aðrir eru almennir rafvirkjar með mismunandi sérhæfingu. Margir bera langa reynslu undir belti og hafa starfað í sínu fagi í 25-30 ár. Spurð um áherslu í starfsmannamálum segir Áslaug að þar á bæ snúist allt um heildina og allir hafi sína rödd sem „megi og eigi að brúka“, enda sé það ein meginforsendan fyrir því að fyrirtækið nái árangri. Hún segir einnig að mikið sé lagt upp úr góðri þekkingu og menntun og það sér skýr stefna að halda því á lofti eins og best verður á kostið. Tekið er sérstaklega á móti ungum nemum sem ráða sig til fyrirtækisins; þeir fá aðstoð við skólagjöld, fá bíl að láni og á skrif- stofu félagsins er lítið heimatilbúið bókasafn. Þannig lýsir Áslaug að haldið sé um unga fólkið sem myndi grunninn að framtíðinni. Hún bendir einnig á að rafmagn komi alls staðar við sögu og fagið sé mjög breitt í eðli sínu. „Það skipti máli að finna styrkleika hjá hverjum og einum og áhugasvið, sem megi styrkja enn frekar til þess að öllum líði vel í sínu hlutverki og fái verkefni við sitt hæfi,“ segir Áslaug. Spurð að því hvort það skili sér í aukinni tryggð þ.e. hvort ungt fólk sem vinnur á náms- mannasamningi sé líklegra til að staldra við til lengri tíma, segir hún að það geti skilað sér á tvennan hátt. Annaðhvort með því að fólk staldri við til lengri tíma, sem séu auðvitað væntingar til, eða leiti á ný mið. Hið síðar- nefnda sé alltaf óumflýjanlegt en þá segir Ás- laug að markmiðið sé að halda áfram góðu sambandi, enda séu allar líkur á því að leiðir beggja krossist aftur í sameiginlegum verk- efnum. Vöruþróun fyrir skip og báta Eldmóður og framsækni eru hluti af gildum TG raf sem Áslaug segir mjög mikilvæg í starfsumhverfi sem einkennist af hraðri tækniþróun og örum breytingum. Fyrirtækið hefur tekið þátt í vöruþróun þar sem saman er teflt meginþekkingu þess í raf-, vél- og hug- búnaði. Sem dæmi nefnir hún þróun á sjálf- virku útleiðsluvöktunarkerfi fyrir skip og báta, sem auðveldar vinnu vélstjóra og eykur skil- virkni í viðhaldi. Einnig hefur fyrirtækið hann- að svokallað „vaktfrítt vélarrúm“ sem er vottað af Samgöngustofu. Kerfið gefur þann mögu- leika að skipstjóri annist vöktun á vélarrúmi meðan vélstjóri hvílist í stað þess að þurfa sér- stakan vélarvörð á vakt. Þannig skapist betri vöktun og stöðugildi sparist. Áslaug segir þessi dæmi um lausnir sem þró- aðar eru með útgerð og hafa það að marki að auka skilvirkni og bæta rekstraröryggi og sé hægt að ná fram með aukinni sjálfvirkni kerfa. Áskoranir í núverandi ástandi „Við höfum náð að vinna í kringum þetta“ segir Áslaug, spurð um áhrif faraldursins, þó að það geti reynst krefjandi að laga starfsem- ina að sóttvörnum hverju sinni. Hún segir að fyrri bylgjunni hafi fylgt meiri óvissa, þar sem mörg fyrirtæki hafi dregið saman seglin, en úr hafi ræst eftir því sem atvinnulífið hafi lært að lifa með ástandinu. Nú segir hún verkefna- stöðuna góða og mörg verkefni sé hægt að vinna fram í tímann á verkstæði fyrirtækisins, sem lágmarki þær flækjur sem fylgja því að vinna á útstöð í miðjum faraldri. Horft fram í tímann Áhersla dagsins í dag eru í heildarlausnum og einstaka vörum sem tryggja rekstraröryggi viðskiptavina og segir Áslaug að til staðar sé mjög breiður hópur til staðar fyrir stór verk- efni. Augljóst er að taug hennar til Grindavíkur er sterk en spurð um útvíkkukn starfseminar segir hún að fyrirtækið hafi þegar starfað með öðrum fyrirtækjum í t.d. stýringarvinnu fyrir rækjuvinnslu erlendis. Einnig hafi á síðustu misserum verið horft meira til höfuð- borgarsvæðisins, sem hún segist vilja kanna betur í þeirri viðleini að víkka út starfsemina í smáum skrefum. sighvaturb@mbl.is Vel hlúð að menntun starfsmanna Morgunblaðið/Árni Sæberg 599. sæti TG RAF Lítið 88. sæti Áslaug Rós Guðmundsdóttir Mikil áhersla er lögð á menntun starfsfólks og að hver finni sína hillu í faginu. Áslaug Rós Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri TG rafs, stýrir vösku liði tækni-, vélfræðinga og rafvirkja.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.