Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Þ að eru líklega ekki margir kvenkyns framkvæmdastjórar þrjátíu ára og yngri á lista Creditinfo yfir Fram- úrskarandi fyrirtæki, en Gerður Huld Arinbjarnardóttir er ein þeirra. Hún seg- ist hafa stofnað kynlífstækjafyrirtæki sitt Blush þegar hún var aðeins tuttugu og eins árs gömul. „Áður en ég stofnaði fyrirtækið hafði ég ekki unnið við neitt í líkingu við þetta. Ég renndi algjörlega blint í sjóinn. Auk þess hafði ég ekki hugmynd um hvernig ætti að reka fyrirtæki, hvað þá fyrirtæki með þrettán starfsmönnum sem vinna við það allan daginn að selja titrara, sleipiefni og önnur kynlífstæki. Ég kom sjálfri mér á óvart,“ segir Gerður. Lærði á því að gera hlutina Gerður er hvorki með stúdentspróf né há- skólapróf. „Ég prófaði menntaskóla en það hentaði mér ekki. Ég á ekki auðvelt með nám. Ég lærði frekar á því að gera hlutina. Það kost- aði mig alls konar mistök, en ég lærði líka af þeim.“Áður en Gerður stofnaði Blush vann hún aðallega við ýmiss konar sölustörf. En hvernig fékk hún hugmyndina að því að fara út í kyn- lífstækjageirann? „Ég fór að bera Ísland saman við aðra mark- aði, og sá að það var gat á markaðnum á Ís- landi. Hér voru engar flottar kynlífsvörur í boði. Í fyrstu var hugmyndin ekki að fara sjálf út í svona rekstur, en það æxlaðist þannig. Ég hugsaði sem svo að ef mér fyndist eitthvað vanta væri ekki ólíklegt að öðrum fyndist það líka. Einkenni á góðri viðskiptahugmynd er einmitt að átta sig á því að það sé raunveruleg- ur skortur á vörunni.“ Hún segir að þegar hún hafi farið af stað hafi verið auðvelt að komast í samband við birgja úti í heimi og fá vörur sendar til landsins til að prófa. Í dag sé það erfiðara. „Birgjarnir voru mjög viljugir að vinna með mér. Það var mín upplifun. Fæst vörumerkin sem ég vildi selja voru til hér á landi, en í dag eru hins vegar flest þekktustu merkin komin á íslenska mark- aðinn.“ Spurð hvort einhverjar vörur henti Íslend- ingum betur en aðrar segir Gerður að Íslend- ingar leiti eftir gæðum og geri kröfur. Fólk er mun opnara í dag Spurð um umræðuna um kynlífstæki í sam- félaginu segist Gerður finna mikinn mun nú og fyrir tíu árum þegar hún byrjaði með Blush. „Fólk er mun opnara í dag. Það áttar sig betur á að kynhvötin er hluti af mannlegu eðli. Fólk er orðið opnara fyrir því að krydda kynlífið til að viðhalda neistanum í sambandinu. Þar koma tækin einmitt sterk inn.“ En fyrir byrjendur í þessum efnum, hvaða tæki ætti par að byrja á að fá sér? „Ég myndi mæla með einu tæki fyrir hann og einu fyrir hana, ef um er að ræða karl og konu. Til dæmis typpahring fyrir hann og eggi fyrir hana til að örva snípinn. Það er sí- gild byrjun. Það er mikilvægt þegar fyrsta tækið er valið að það sé einfalt og þægilegt, og upplifunin af notkuninni verði góð. Svo fer fólk í að kaupa sérhæfðari tæki í kjölfarið, þar sem leggöngin eru örvuð til dæmis. Það er staðreynd að 75% kvenna þurfa örvun á sníp- inn til að fá fullnægingu. Við leiðbeinum ein- staklingum með píkur varðandi bestu leiðina í þeim efnum.“ Spurð hvort fólk komi aftur og aftur, ef það á annað borð byrjar að kaupa kynlífstæki, segir Gerður svo vera. Sumir komi í hverjum mánuði, aðrir árlega. „Það fer eftir áhuga fólks. Stór hluti af fólki á aldursbilinu 18-55 ára á kynlífstæki.“ Rekstur Blush hefur gengið eins og í sögu, bæði nú á Covid-tímum og á síðustu árum. „Við höfum selt kynlífstæki fyrir meira en milljarð króna frá því við byrjuðum. Í ár sjáum við fram á 30% tekjuaukningu.“ Er aukningin út af því að fólk er meira heima hjá sér vegna kórónuveirunnar? „Já, en líka út af öðru. Fyrirtækið verður sí- fellt þekktara og það eru alltaf að bætast við nýir viðskiptavinir. Þá erum við líka að læra meira inn á markaðinn og markaðurinn að læra meira inn á okkur.“ Netverslun er stór hluti af tekjum Blush. „Hún er svona 40% af veltunni. Heimakynn- ingar eru 10-15% og svo er salan í búðinni það sem eftir stendur. Það kemur mörgum á óvart hvað búðin er stór hluti af sölunni.“ Á næsta ári ætlar Blush að flytja í nýja 860 fermetra verslun á höfuðborgarsvæðinu. Í dag er verslunin í Hamraborg í Kópavogi í mun minna húsnæði. Gerður segir að Blush sé mjög samkeppnis- hæf í verði við erlendar sambærilegar netversl- anir. Hvað heimakynningar varðar segir Gerður að þær hafi verið vinsælar, en vegna veirunnar og samkomutakmarkana vegna hennar hafi verið minna að gera á þeim vettvangi á þessu ári. Auk- in velta í netverslun vegi þar upp á móti. „90% af þeim sem mæta á heimakynningar eru konur. Karlar mættu alveg bæta sig í þessum efnum.“ Stefna á tvö þúsund jóladagatöl Fram undan er stærsti verslunartími ársins, jólin. „Við erum að drukkna í jóladagatölum í versluninni eins og er. Við höfum alltaf selt á bilinu 1.200-1.500 dagatöl fyrir jólin en stefnum á tvö þúsund í ár. Í þessum dagatölum, sem kosta 24.990 krónur, er einn pakki fyrir hvern dag í desember fram að jólum. Þetta er í bland sleipiefni og kynlífstæki ýmiss konar. Það eru alls 8-9 kynlífstæki í dagatalinu. Þetta er til- valið til að krydda kynlífið í desember. Ég full- yrði að dagatalið í ár er það flottasta sem við höfum verið með til þessa.“ Að lokum langar blaðamann að vita hver galdurinn er við að reka Framúrskarandi fyrirtæki. „Ég held að það sé bara að fylgja hjartanu og þora að fara út fyrir kassann.“ tobj@mbl.is Kynhvötin er hluti af mannlegu eðli Morgunblaðið/Eggert Blush er til húsa í Hamraborg í Kópavogi en flytur í stærra húsnæði á næsta ári. Gerður segir að stór hluti af fólki á aldursbilinu 18-55 ára eigi kynlífstæki. 455. sæti BLUSH Lítið 29. sæti Gerður Huld Arinbjarnardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.