Morgunblaðið - 22.10.2020, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Þ
að gleður Kristján Þ. Davíðsson að
fyrirtæki hans skuli hafa tekist að
vera í hópi Framúrskarandi fyrir-
tækja allt frá því að Creditinfo
hleypti verkefninu af stokkunum. „Við kapp-
kostum alltaf að standa okkur vel og gera sífellt
betur. Er hvetjandi þegar eftir því er tekið með
viðurkenningu eins og þessari,“ segir hann.
Kristján er formaður stjórnar Brims og seg-
ir að á undanförnum árum hafi það komið sér
vel fyrir félagið að starfsemin er fjölbreytt og
hægt að aðlaga hana sveiflum. „Það felst í því
viss áhættudreifing að hafa ekki öll eggin í
sömu körfu. Þetta sáum við vel á þessu ári og í
fyrra þegar loðnubrestur varð en hægt að
sækja í aðrar tegundir í staðinn. Við höfum ný-
lokið síldarvertíðinni og gekk hún bæði hratt
og vel, og í makrílnum veiddum við það magn
sem við þurftum að veiða, en geymum eitthvað
á milli fiskveiðiára.“
Brim hefur líka þurft að aðlagast breyttum
aðstæðum á markaði fyrir bolfiskafurðir.
Kristján segir kórónuveirufaraldurinn hafa
breytt áherslum kaupenda og að mikilvægir
hlutar markaðarins hafi sama sem gufað upp.
„Sumar tegundir og afurðir seljast í miklu
magni til hótela og veitingastaða á ferða-
mannastöðum sem í dag eru mannlausir.
Framleiðendur sitja því uppi með birgðir af
óseldum fiski og þurfa að leita nýrra markaða
ella að hægja á veiðum. Hér kemur í ljós einn af
mörgum kostum íslenska kvótakerfisins sem
leyfir okkur að láta fiskinn vera áfram í sjónum
og bíða veiða þangað til markaðsaðstæður
batna.“
Smásölumarkaður vex í faraldri
Þótt sala á fiski til hótela og veitingastaða
hafi dregist mikið saman þá hefur orðið aukn-
ing í sölu á fiski í matvöruverslunum og mælist
í tugum prósenta á sumum markaðssvæðum.
„Smásölumarkaðurinn hefur ekki náð að bæta
að fullu samdráttinn hjá hótelum og veit-
ingastöðum og áhrifin eru misjöfn eftir því
hvaða fisktegund er um að ræða. Þannig virðist
vöxtur á neytendamarkaði ekki síst snúa að
þorski, ýsu og laxi.“
Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð
gott og bendir Kristján á að kórónuveiru-
faraldurinn kunni að auka fiskneyslu til lengri
tíma litið. „Þegar má greina merki um það á
stöðum eins t.d. Bandaríkjunum að neytendur
eru að uppgötva það núna að úti í búð geta þau
fengið hollan og bragðgóðan fisk í roðlausum
og beinlausum bitum sem einfalt og fljótlegt er
að elda,“ segir hann og bætir við að faraldr-
urinn hafi líka minnt rækilega á mikilvægi
heilsusamlegs mataræðis en leitun sé að hollari
próteingjafa en fiski.
Fiskurinn leitar á netið
Þá má reikna með að faraldurinn breyti því
hvernig almenningur kaupir fisk, og að salan
færist í auknum mæli yfir á netið. Kristján seg-
ir að íslensk útgerðarfyrirtæki eigi að vera í
góðri stöðu til að grípa það tækifæri sem felst í
auknu vægi netverslunar enda er greinin
tæknivædd og á því hægt um vik með að sníða
vöruna að óskum neytenda, með bitum af öllum
mögulegum stærðum og gerðum, ferskum,
frystum eða söltuðum, með roði eða roðfletta,
beinlausa og snyrta eins og best verður á kosið.
„Margir af viðskiptavinum okkar eru að vinna
hörðum höndum að því að nýta tækifærin sem
þetta nýja umhverfi hefur skapað, en um árabil
hafa áhugaverðar tilraunir verið gerðar með
sölu á fiskbitum í heimsendingu og jafnvel í
áskrift. Nú upplifa flestir matvælaframleið-
endur mikinn vöxt í þessum geira.“
ai@mbl.is
Hafa þurft að aðlagast
breyttum aðstæðum
Morgunblaðið/Eggert
8. sæti
BRIM HF.
Stórt 8. sæti
Kristján Þ. Davíðsson
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
„Sumar tegundir og afurðir seljast í miklu magni til
hótela og veitingastaða á ferðamannastöðum sem
í dag eru mannlausir. Framleiðendur sitja því uppi
með birgðir af óseldum fiski og þurfa að leita nýrra
markaða ella að hægja á veiðum,“ útskýrir Kristján.
Í faraldrinum hefur sala á
fiski í matvöruverslunum og
netverslunum tekið kipp.