Morgunblaðið - 22.10.2020, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
G
aman hefur verið að fylgjast með
vexti Urta Islandica (www.urta.is)
undanfarinn áratug. Þóra Þóris-
dóttir framkvæmdastjóri og eigin-
maður hennar Sigurður Magnússon hafa byggt
upp nokkuð stöndugan rekstur í kringum fram-
leiðslu gjafamatvöru úr íslenskum jurtum,
berjum og þara en fyrir ári tóku þau af skarið
og útvíkkuðu fyrirtækið með stofnun Matar-
búðarinnar Nándarinnar (www.matarbudin.is)
þar sem áhersla er lögð á að lágmarka um-
hverfisáhrif og notkun einnota umbúða. Árið
hefur verið erfitt fyrir Urta Islandica, rétt eins
og flest önnur fyrirtæki, en Þóra er bæði brött
og bjartsýn.
„Við opnuðum Urta Islandica formlega 10.
október 2010 en stofnuðum ekki einkahluta-
félagið fyrr en 2013. Hugmyndin kviknaði árið
2009 þegar ég stóð frammi fyrir verkefnaleysi í
kjölfar fjármálakreppunnar,“ útskýrir Þóra en
hún er myndlistarmaður og listfræðingur að
mennt og vann ýmis myndlistarverkefni í verk-
töku áður en hún sneri sér að framleiðslu hand-
verksmatvæla. „En allt frá upphafi hafa list-
rænar áherslur einkennt vöru- og umbúða-
þróunina og ég lít á vissan hátt á þennan
rekstur sem eitt allsherjar listaverk.“
Bætiefni úr íslenskri náttúru
Þóra minnir á að í kjölfar bankahrunsins hafi
fæðuöryggi landsmanna verið mörgum of-
arlega í huga og sumir jafnvel óttast að landið
gæti lokast. „Þá fór ég að hugsa hvað mætti til
bragðs taka ef allt færi á versta veg og hvernig
Íslendingar gætu fengið þau vítamín og stein-
efni sem líkaminn þarf á að halda. Í kjölfarið
hóf ég tilraunir með að þurrka ber og jurtir og
gera tilraunir með uppskriftir,“ segir hún.
„Amma mín var náttúrulækningakona og
óhætt að segja að sá áhugi hafi erfst á milli
kynslóða því bæði ég og yngsta systir mín höf-
um mikinn áhuga á jurtum og næringargildi
þeirra. Við vöruþróunina nýtti ég minningar
frá ömmu, gamlar jurtabækur og nýjar upplýs-
ingar á netinu.“
Í fyrstu hugðist Þóra búa til vörur fyrir
heilsubúðirnar en þegar á reyndi var áhuginn
hjá smásölum af skornum skammti. „Þetta er
um það leyti sem ferðamannastraumurinn tek-
ur að aukast og reyndist ágætur markaður fyr-
ir vörurnar okkar hjá ferðamannaverslunum.
Vorum við með þeim fyrstu til að framleiða
matarminjagripi fyrir ferðamannamarkaðinn.“
Fyrsta varan frá Urta Islandica sem náði
góðri fótfestu voru jurtasöltin. Þóra segir að í
fyrstu hafi portúgalskt salt verið notað í fram-
leiðsluna en um leið og íslenskt sjávarsalt fór
að vera fáanlegt var það notað í staðinn. Vöru-
þróunin tók mið af því að nota jurtir sem bæði
gerðu líkamanum gott og gæfu lokaafurðinni
fallegan lit og nýtti Þóra m.a. íslensk bláber,
reyniber og rabarbara til að búa til saltblöndur
sem neytendum þættu bæði fallegar og for-
vitnilegar. „Útlitið hönnuðum við sjálf og þvert
á allar reglur gerðum við nærri því allt í hönd-
unum frekar en að fjárfesta í tækjum til að fylla
umbúðir og merkja, enda byrjuðum við með
báðar hendur tómar. En fyrir vikið höfðum við
líka meiri sveigjanleika til að bæta inn vörum
og gera tilraunir – nokkuð sem væri ekki hag-
kvæmt að gera með mjög vélvædda framleiðslu
sem kallar á að framleiða miklu meira magn í
hvert skipti.“
Í dag framleiðir Urta Islandica margar gerð-
ir af jurtatei og saltblöndum, sultur, kex og
síróp. Nærri allt hráefnið sem fyrirtækið nýtir í
matvöruna er íslenskt ef undan er skilinn líf-
ræni reyrsykurinn sem myndar uppistöðuna í
sírópinu. Umbúðirnar eru umhverfisvænar og
ýmist úr niðurbrjótanlegum efnum sem má
nýta í heimajarðgerð eða úr endingargóðu gleri
sem má skila til verslunarinnar þar sem um-
búðirnar nýtast aftur í hringrásarkerfi.
Gæfuspor að opna matvöruverslun
Ekki ætti að koma lesendum á óvart að það
sem af er ári hefur salan á vörum Urta Is-
landica dregist mikið saman. Þóra segir að
bæði hafi erlendir ferðamenn borið söluna uppi
en Íslendingar haft gaman af að kaupa vörurn-
ar sem gjafir fyrir vini og ættingja í útlöndum.
Það varð fyrirtækinu til happs að opna Mat-
arbúðina Nándina á Austurgötu í Hafnarfirði
og þannig styrkja stöðu sína á innanlands-
markaði. „Við sáum það árið 2017 að veltan var
hætt að vaxa enda fleiri aðilar komnir inn á
okkar hillu á markaðinum. Árið 2019 hófum við
undirbúning nýs verkefnis og opnuðum í byrj-
un árs matarbúð með mikla sérstöðu. Þar
vinnum við út frá sömu áherslu og við höfum
gert undanfarinn áratug hjá Urta Islandica,
með umhverfisvænum og endurnýtanlegum
umbúðum, en höfum komið upp kerfi þar sem
fólk getur skilað inn krukkum og flöskum sem
við þvoum, sótthreinsum og fyllum aftur á.“
Matarbúðin Nándin byrjaði að taka á sig
mynd í Kolaportinu og stóð upphaflega til að
bjóða upp á gott úrval af þurrvöru og bæði
höfða til innlendra kaupenda og ferðamanna.
„En aðstæður í Kolaportinu urðu fljótt erfiðar í
faraldrinum svo við hröðuðum opnun á Austur-
götunni, þar sem framleiðsla Urta Islandica
var áður, en framleiðsluhlutinn er núna kominn
yfir til Keflavíkur,“ segir Þóra og bætir við að á
komandi vikum standi til að opna aðra verslun í
framleiðsluhúsnæði fyrirtækisins í Reykja-
nesbæ.
Viðtökurnar hafa verið góðar og eykst vöru-
framboðið jafnt og þétt. Vörur Urta Islandica
eru á sínum stað í búðinni en einnig umhverfis-
vænar hreinlætisvörur, kjöt og mjólkurvörur,
brauðmeti og grænmeti. „Ef við byggjum yfir
spádómsgáfu hefðum við byrjað á þessari veg-
ferð ári fyrr því það tekur tíma að byggja svona
starfsemi upp og gera hana arðbæra. En við
teljum að þetta hafi verið hárrétt ákvörðun hjá
okkur og miklir vaxtarmöguleikar í rekstri
matvöruverslana með umhverfisvænar
áherslur,“ segir Þóra en Nándin hlaut Bláskel-
ina, viðurkenningu umhverfisráðuneytisins,
fyrir að bjóða neytendum upp á góðar plast-
lausar lausnir. „Við tökum lítil skref og stækk-
um varlega, en gætum þess um leið að safna
ekki skuldum, og þó svo að við getum kannski
ekki keppt við lágvöruverðsverslanirnar í verði
er ekki annað að sjá en okkur hafi tekist að
hitta naglann á höfuðið með því að bjóða neyt-
endum upp á val um að kaupa plastlausar mat-
vörur.“
ai@mbl.is
„Eins og eitt stórt listaverk“
Morgunblaðið/Eggert
Vaxandi hópur neytenda vill lágmarka umbúðanotkun. Fólkið bak við búðarborðið: Sigurður Magnússon, Guðbjörg Lára Sigurðardóttir, Þóra Þórisdóttir og Kolbeinn Lárus Sigurðsson.
Í nýju búðinni eru seldar vörur bæði frá Urta Islandica og öðrum framleiðendum.
710. sæti
URTA
ISLANDICA
Lítið 148. sæti
Þóra Þórisdóttir