Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Þ að er lífsstíll að vera bakari segir Jón Rúnar Arilíusson eigandi Köku- listar. Hann hefur víða komið við á löngum ferli, bæði sem keppandi og dómari í stórum alþjóðlegum matarkeppnum. Fyrir 23 árum stofnaði hann til reksturs bak- arís ásamt konu sinni Elínu Maríu Nielsen, sem annast ýmis mál, s.s. starfsmanna- og fjár- málarekstur. Spurður um velgengni í rekstri segir hann mikilvægt að vera sjálfum sér samkvæmur og „hlaupa ekki upp til handa og fóta við að elta loftbólur“. Einnig segir hann mikilvægt að vera trúr sjálfum sér, viðskiptavinum og starfsfólki. Ný kynslóð af þroskuðu starfsfólki Hjá Kökulist starfa um 50 manns og verður Jóni Rúnari tíðrætt um þá þróun sem átt hefur sér stað í starfsmannahaldi. Hjá honum starfar ákveðinn kjarni sem hefur unnið lengi hjá fyrirtækinu og svo ungt fólk, 14-17 ára sem vinnur mest á álagstímum. Miklar sveiflur hafa verið í starfsmannaveltu í gegnum tíðina og rifjar Jón Rúnar upp að árin 2005-08 hafi verið „eins og hvirfilbylur“ hvað það varðar. Nú sé öldin önnur og fullyrðir Jón Rúnar að upp sé að koma kynslóð sem sé algerlega ein- stök. „Ungt fólk, strákar og stelpur sem bera mikla virðingu fyrir vinnunni sinni; eru sam- viskusöm, ábyrgðarfull og leggja sig öll fram,“ segir Jón Rúnar og bætir við að kynslóðin sem um ræðir komi honum fyrir sjónir sem félags- lega þroskuð og taki vel leiðsögn. Hann talar af reynslu því á 23 árum hefur hann kynnst mörgu ungu fólki og haft við það mikil sam- skipti. Aðspurður hvað valdi segir hann að þetta sé „kynslóðin sem byrjaði að skilja lífið í umtali eftirhrunsáranna, þegar fólk var að missa t.d. húsin sín og lífið var áþreifanlega hverfult“. Hjá Jóni Rúnari starfar einnig fólk úr ýms- um áttum, t.d. ungur Sýrlendingur sem kom hingað sem flóttamaður og pólsk stúlka sem er lærð í faginu. „Hér eru allir að byggja sama hús og ég,“ segir hann og leggur áherslu á mik- ilvægi þess að rækta mannlega hlutann og samskipti við starfsfólk, þá takist betur að kalla fram það besta í hverjum og einum. Hann segir að það hafi tekið mörg ár að læra að fók- usera á það besta í fari allra og finna þeirra réttu hillu í rekstrinum. Launakostnaður kominn úr böndunum Jón Rúnar er með bakarí á þremur stöðum, tvö í Reykjanesbæ og í Firðinum í Hafnarfirði, auk almennrar veisluþjónustu. Reksturinn segir hann einkennast af stöð- ugleika en lítilli framlegð. Faraldurinn hefur haft sitt að segja þar sem veislum hefur fækk- að og fækkun ferðamanna hafi dregið úr veltu í Fitjum. Hann segist hafa reynt að halda verð- um niðri og er enn með 2017 verðskrá á veislu- þjónustu sem hann segir „vera bilun en ætlar að reyna að halda út árið“. Hann er ómyrkur í máli þegar kemur að launakostnaði og segir það „rosalega tímaskekkju að fara í launa- hækkanir um næstu áramót“. Það hafi aldrei verið eins lítil framlegð og hverri krónu þurfi að velta ansi oft. Jón Rúnar rifjar upp að þegar hann hóf rekstur hafi laun verið um 31% af kostnaði, en í síðustu hækkun hafi þau verið komin í 54%. Með því að herða allar ólar og endurskipuleggja allt í þaula, hafi honum tek- ist að koma hlutfallinu niður í 47%. „Ef hækka á um áramót, veit ég ekki hvaðan peningarnir eiga að koma“ segir hann og bætir við að hann telji rekstur sinn þegar vera mjög straumlínu- lagaðan. Brauð er ekki bara brauð Margir heilsuþjarkar hafa sagt brauðmeti stríð á hendur og lagt bölvun á kolvetni. Jón Rúnar segir að slíkar bylgjur séu ekkert annað en tækifæri til að hlusta á viðskiptavininn og stuðli að vöruþróun. Sjálfur segist hann vel meðvitaður um hvað er í vörunni og bakar brauð úr súr, spelti og heilmöluðum rúg, sem sé „sannkölluð ofurfæða“. Einnig sýður hann öll fræ og nær þannig dýrmætri olíu t.d. úr hörfræjum í brauðdegið. „Það er fullt af læknum og hómópötum sem sverja fyrir hollustu slíkra brauða,“ segir Jón Rúnar, sem sendir slíkar vörur út á land í sér- pöntun til þeirra sem láta sig heilsuna varða. Verður að vilja vöruna sjálfur Sætabrauðið er auðvitað stór hluti af veltu bakaría og segist Jón Rúnar að það sé eitt af því síðasta sem fólk neitar sér alveg um. „Ég hef verið hundskammaður fyrir hversu góðir kanilsnúnarnir mínir eru“, segir hann hlæjandi og vitnar í kúnna sem lagði mikið á sig til að fá sinn skammt. Annars segir hann alvarlegur að þetta snúist um að vera trúr sínu og þar sé einn mælikvarði: „Ef mig langar ekki í þetta sjálf- um, ef þetta er ekki ógeðslega gott og langar í annað eftir hálftíma, þá framleiði ég það ekki.“ Ekki dugi að nota ódýr hráefni til að spara, þá sé maður að stela af kúnnanum og af sjálf- um sér á sama tíma. Þetta snýst alltaf um að reyna að gera betur segir hann ákveðinn. Hefur enn gaman af starfi sínu Ímynd bakarans er góðlegur miðaldra mað- ur sem leggur á sig að vakna fyrir allar aldir til að tryggja sínu fólki heitt brauðmeti við fyrsta hanagal. Jón Rúnar getur ágætlega samsvarað sér við þessa líkingu og segist svo heppinn að hafa enn gaman af sínu starfi og segir það vera mikil forréttindi. Reksturinn krefjist þess að yfir honum sé vakið og sofið, en þó segist hann aðeins farinn að slaka á klónni og leyfi sér jafnvel að sofa til klukkan sex á morgnana, enda sé mikill mann- auður innan fyrirtækisins sem hann treystir vel. sighvaturb@mbl.is Hrósar ungu starfsfólki í hástert Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 740. sæti KÖKULIST Lítið 165. sæti Jón Rúnar Arilíusson Kökulist er starfrækt á tveimur stöðum í Reykjanesbæ og við Fjörðinn í Hafnarfirði. Jón Rúnar Árelíusson, bakari og eigandi Kökulistar, hefur komið víða við í faginu. Hann segist ekki hafa neitt á boðstól- unum sem hann ekki vilji borða sjálfur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.