Morgunblaðið - 22.10.2020, Síða 80
80 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
F
lestir kannast við Birki Ívar Guð-
mundsson þar sem hann hefur stað-
ið á milli stanganna í handboltanum,
bæði fyrir íslenska landsliðið á
mörgu stórmótinu en einnig fyrir félagslið
hér heima og erlendis. Færri vita að hann
stýrir Vínnesi sem flytur inn mörg af þekkt-
ustu vörumerkjum vínheimsins. Hann segir
að tilviljun hafi ráðið því að hann fór að
starfa á þessu sviði.
„Ég hóf störf í byrjun árs 2013. Fyrir-
tækið hafði árin á undan stækkað töluvert
hratt og eigendur þess höfðu ekki, vegna
annarra verkefna, þann tíma sem þurfti til
þess að sinna fyrirtækinu. Þeir höfðu því
samband við mig og buðu mér þetta starf
sem ég þáði eftir stuttan umhugsunartíma.
Flóknara var það nú ekki.“
Hann segir daglegar áskoranir margar en
mismiklar. Nú þegar kórónuveiran gengur
yfir þurfi fyrst og síðast að tryggja að ef
smit komi upp í fyrirtækinu þá geti það
áfram starfað og einnig þurfi að hafa fyrir
því að tryggja nægt magn birgða til landsins.
„Þessi bransi er að einhverju leyti frá-
brögðin mörgum öðrum vegna einkasöluleyf-
is ÁTVR á smásölumarkaði og banni við
áfengisauglýsingum. Áfengisumboð þurfa því
að keppa hvert við annað á einungis tveimur
söluráðum, vöru og verði.
Önnur áskorun er að undirbúa fyrirtækið
undir það ef verulegar breytingar eru gerðar
á rekstraumhverfinu, en hvert ár er lagt
fram frumvarp til Alþingis um annaðhvort
afnám ÁTVR að hluta eða í heild sinni. Komi
til þess að Alþingi samþykki slíkt frumvarp
þá mun það auðvitað gerbreyta rekstr-
arumhverfi allra fyrirtækja í þessum
bransa.“
Má aldrei sofna á verðinum
Að öðru leyti segir hann mikilvægt, líkt og
í öðrum rekstri, að sofna ekki á verðinum,
prófa sífellt ný vörumerki, finna nýja mark-
aði og uppfylla þarfir viðskiptavina með því.
Spurður út í tengsl íþróttanna og þeirra
starfa sem hann sinnir í dag segir Birkir Ív-
ar að hann hafi ekki nýtt sér reynsluna úr
íþróttunum með meðvituðum hætti. Hann
segir þó að iðkun íþrótta til margra ára móti
ákveðinn hugsanahátt.
„Eins og í hópíþrótt þá hefur það alltaf
verið mitt markmið að öllu starfsfólki líði vel
og fái tækifæri til að nýta sína styrkleika.
Eins þá er ég mjög meðvitaður um það að
það gerist ekkert af sjálfu sér. Allt afreks-
íþróttafólk þekkir það vel að til þess að ná
árangri þá þarf að leggja í vinnuna.“
Hann segir það helsta styrkleika Vínness
að hjá fyrirtækinu starfi öflugur hópur og að
starfsmannaveltan sé mjög takmörkuð.
„Við erum líka ákaflega stolt af vörumerkj-
unum okkar sem eru mörg hver ekki bara
leiðandi á Íslandi heldur einnig á heims-
mælikvarða.
Ef við undanskiljum tvo ofangreinda þætti
þá tel ég að stór ástæða þess að við höfum
náð árangri er að við höfum alltaf leitast eft-
ir að gera hlutina eins einfalda og mögulegt
er. Fyrirtækið er því alfarið laust við flókna
og illskiljanlega ferla sem enginn getur al-
mennilega fylgt.“
Birkir Ívar segir að neysluvenjur Íslend-
inga hafi ekki breyst mikið frá því að hann
hóf störf hjá Vínnesi.
Alltaf einhver tíska í gangi
„Í áfengi eins og öðrum geirum þá
myndast ákveðnar tískubólur sem koma og
fara en heilt yfir þá er áfengismarkaðurinn
nokkuð stöðugur og breytingar gerast
hægt.
Það sem er kannski helst að breytast
núna og ég tel að muni halda áfram næstu
árin, er að neytendur eru að hugsa meira
um heilbrigðan lífsstíl, þar með talið í
áfengi. Þessi hópur skiptist svo í tvennt,
annars vegar hópurinn sem hefur ákveðið
að annaðhvort takmarka neyslu áfengis
eða sneiða alveg fram hjá henni. Hinn hóp-
urinn neytir enn þá áfengis en kýs frekar
lífræna framleiðslu, lágt hitaeiningainni-
hald, o.s.frv. Það eru tækifæri til þess að
sinna báðum þessum hópum. Til dæmis
hófum við sölu á Stella Artois 0,0% í mat-
vöruverslunum fyrir nokkrum mánuðum.
Þrátt fyrir að innihalda ekkert áfengi og
einungis 60 hitaeiningar þá skína gæði
Stella Artois í gegn.“
Á næsta ári áætlar Vínnes flutninga í
nýtt og glæsilegt húsnæði í Korngörðum 3
en þar verður systurfyrirtækið, Innnes,
einnig til húsa.
„Þótt fyrirtækin verði áfram rekin hvort
í sínu lagi þá munu opnast tækifæri til að
nota reynslu hvort annars enn þá betur en
við gerum í dag. Við horfum því bjartsýn á
framtíðina.“
ses@mbl.is
Liðsheildin skiptir miklu máli
209. sæti
VÍNNES
stórt 42. sæti
Birkir Ívar
Guðmundsson
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Birkir Ívar hefur stýrt fyrirtækinu frá ársbyrjun 2013. Það hefur umboð fyrir heimsþekktar
vörur á sínu sviði, m.a. Stella Artois, Pol Roger, Remy Martin, Muga og Macallan.
Hlutfall helstu atvinnugreina meðal
Framúrskarandi fyrirtækja 2010-2020
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020
Hlutfall
12%
10%
8%
6%
4%
2%
13,7%
7,6%
6,8%
3,6%
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð Ferðaþjónusta Sjávarútvegur Fjármála- og vátryggingastarfsemi