Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Side 2
Hver er maðurinn? Ég heitir Lárus Blöndal og á mér hliðarsjálfið Lalla töframann sem er ógeðslega skemmtilegur gaur. Ég var að vinna í Borgarleikhúsinu í átta ár en hætti og fór að vinna eingöngu sem Lalli töframað- ur. Ég hef verið með puttana í töfrabrögðum síðan ég var lítill strákur og ætlaði mér alltaf að verða töframaður. Nú heitir sýningin Lalli og töframaðurinn. Er þetta einn og sami maður? Já sko, Lalli er hliðarsjálfið og svo kem ég líka fram sem allt önnur útgáfa sem er þá Lalli töframaður. Lalli og Lalli töframaður eru leiknir af sama Lallanum, mér. Segðu mér frá sýningunni? Hún hefur verið tvö ár í vinnslu og átti að fara á fjalirnar í vor en var frestað vegna Covid. Hún varð í grunninn bara skemmtilegri, þannig að það var lán í óláni að henni var frest- að. Þetta er sýning sem allir hafa gaman af, börn og fullorðnir. Það er hægt að kúpla sig út í klukkutíma og hafa svolítið gaman. Hvernig hefur gengið að vinna sem skemmti- kraftur á Covid-tímum? Það er ekki alveg nóg að gera en ég er í alls konar. Ég dey ekki ráðalaus; bjó til leikritið og líka jólaplötu, en ég er mikill jólamaður. Ég verð með jólatónleika í nóvember, með góð- um gestum og jólatöfrum. Ég er búinn að vera að undirbúa jólin síðan í janúar. Er rétt að þú sért með jólahúðflúr? Já, ég er með húðflúr af jólatré, af Mikka mús með jóla- krans og af snjókarli með jólasveinahúfu. Fólk segir oft, það eru ekki alltaf jólin. En ég segi, jú! Það eru alltaf jól hjá mér. Morgunblaðið/Árni Sæberg LÁRUS BLÖNDAL GUÐJÓNSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Leik Lalla og Lalla Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2020 Jæja, þá er endaspretturinn hafinn hjá þeim félögum Æðsta-Trumpi og Jóaúr Bót, sem báðir vilja verða næsti landshöfðingi vestur í Ammríku. Mennþurfa ekki að vera spámannslega vaxnir til að átta sig á því að á ýmsu á eftir að ganga uns yfir lýkur. Ljúki þessu kapphlaupi þá nokkurn tíma. Svo við höldum okkur á frjálsíþróttavellinum þá minnir slagur þeirra félaga um margt meira á stangarstökk en langhlaup – enda þótt flautað hafi verið til leiks fyrir meira en ári. Einhverjir myndu segja fjórum árum. Hver myndi ekki gefa annan fótinn fyrir að sjá Æðsta-Trump í stangarstökki? Eða þá Jóa úr Bót. Það yrði tilkomumikil sjón. En alla vega. Taktík þeirra félaga í þessari tvísýnu keppni er gjörólík. Æðsti-Trumpur byrjaði með rána í hálfum metra og hefur farið yfir allar hæðir síðan þrisvar (enda þótt hann þurfi bara að gera það einu sinni) til að vera öruggur um að allir á leikvang- inum og heima í stofu hafi séð hann. Jói hefur á hinn bóginn beðið átekta, eins og þeir sigurstranglegustu gera gjarn- an í stangarstökki, og ætla má að byrj- unarhæð hans verði sex metrar. Sú tak- tík getur verið tvíbent vopn. Annaðhvort stendur Jói undir væntingum áhangenda sinna og þjálfara og vipp- ar sér óþreyttur yfir eða hann fellir byrjunarhæðina í þrígang – ískaldur. Það hefur komið fyrir bestu menn í sögunni. Spyrjið bara Sergei Bubka! Þess utan ætti Jói að hafa í huga að Æðsti-Trumpur virðist ekki búa yfir þeim eiginleika að þreytast; hann stekkur bara og stekkur, dag sem dimma nátt. Og lætur sér í léttu rúmi liggja þótt aðferðin sé ekki alltaf hefðbundin eða tignarleg. Talandi um tignarleika þá blöskraði mörgum munnsöfnuður þeirra félaga á blaðamannfundi fyrir mótið sem haldinn var í vikunni. Hermt er að meira að segja Mike Tyson hafi roðnað í vöngum heima í stofu. Margir hafa í framhald- inu velt fyrir sér hvað sé til ráða, framkoma af þessu tagi sæmi ekki virðulegri þjóð sem vilji ganga fram með góðu fordæmi í þessum heimi. Hvernig væri að senda eins og einn fulltrúa úr bæjarstjórn Akureyrar vest- ur til að kenna þeim félögum almenna mannsiði? Ég meina, þar eru allir vinir, þvert á alla flokka og gamlan pólitískan ágreining. Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, kenndi mér í gamla daga og ég hef því reynt á eigin skinni að hann er ekki aðeins úrræðagóður og mannasættir hinn mesti heldur er hann líka með okkar skemmtilegustu mönnum. Nái hann ekki hundinum úr Æðsta- Trumpi og Jóa úr Bót gerir það ekki nokkur maður. Í gær bárust þær fréttir að Bandaríkjaforseti og eiginkona hans væru með kórónuveiruna. Eru þeim sendar góðar kveðjur og óskað skjóts bata. Af Æðsta-Trumpi og Jóa úr Bót Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Þess utan ætti Jói aðhafa í huga að Æðsti-Trumpur virðistekki búa yfir þeim eiginleika að þreytast. Magnús Kolbeinn Eiríksson Blár. Hann hefur alltaf einhvern veginn kallað til mín. SPURNING DAGSINS Hver er uppáhalds liturinn þinn? Helena Guttormsdóttir Blár. Ég elska bláa tóna í náttúrunni. Patrekur Máni Guðlaugsson Bleikur. Mér finnst hann mjög skemmtilegur litur. Eva Ólafsdóttir Blár. Alltaf verið blár. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Kristinn Magnússon Sýningin Lalli og töframaðurinn verður sýnd í Tjarnar- bíói alla sunnudaga í október, klukkan 13, og fást mið- ar á tix.is. Lesa má allt um Lalla á toframadur.is. Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum máliðSláum nýjan tón í Hörpu Við óskum bæði eftir áhugasömum rekstraraðilum og hugmyndum einstaklinga að skemmtilegum nýjungum á neðri hæðum í Hörpu Nánar á harpa.is/nyr-tonn .

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.