Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.10.2020, Qupperneq 24
Sláum nýjan tón í Hörpu er yfir-skrift nýrrar herferðar enauglýst hefur verið eftir fersk-
um hugmyndum og nýjum rekstr-
araðilum í Hörpu. Svanhildur Kon-
ráðsdóttir, forstjóri Hörpu, er mjög
spennt fyrir komandi tímum. Svan-
hildur segist hafa sett stefnumótun á
oddinn þegar hún tók við starfi for-
stjórans fyrir þremur árum og er nú
sú vinna að skila sér í aðgerðaáætlun.
„Við hófum þessa vinnu vorið 2018
og beittum svokallaðri Design Think-
ing-aðferðafræði. Liður í henni er að
skilgreina hverjir eru helstu notend-
ur hússins, sem við köllum erkitýpur.
Þráðurinn í þessu er að gera Hörpu
notendavænni og setja upplifun
gesta í öndvegi,“ segir Svanhildur og
hún segir þau hafa starfað og fundað
með fólki úr ýmsum áttum til þess að
móta nýju stefnuna.
„Við hittum tónleikahaldara, lista-
menn, ráðstefnuhaldara, fulltrúa
þeirra sem eiga heimilisfesti í Hörpu,
sem eru Sinfó, Íslenska óperan og
Stórsveit Reykjavíkur, og svo
fjöldann allan af fólki úr öllum áttum.
Og nú er komin skýr framtíðarsýn og
skýrar stefnumarkandi áherslur.
Harpa á ávallt að vera á heims-
mælikvarða og erum við í samkeppni
við önnur sambærileg hús erlendis.
Okkar hlutverk er að fjölga mögu-
leikunum og búa til ný tækifæri.“
Hugsað til framtíðar
„Við verðum tíu ára á næsta ári og
erum einbeitt í því að vera síung en
um leið sígild. Þess vegna erum við
núna að kalla eftir ferskum hug-
myndum og nýjum rekstraraðilum
og það er mjög mikilvægur partur af
þessari nýju stefnumótum,“ segir
Svanhildur og segir hugmyndina
vera að hugsa þjónustu og upplifun
upp á nýtt, meðal annars í þeim rým-
um sem eru á fyrstu hæðinni.
„Við viljum skipuleggja út frá not-
andanum og upplifuninni og erum við
að hugsa til næstu tíu ára. Eins og
allir vita hafa áskoranirnar verið all-
nokkrar á þessum fyrsta áratugi í
rekstri hússins, en nú erum við að
hugsa til framtíðar. Hvernig við get-
um verið enn sterkari í alþjóðlegri
samkeppni og hvernig Harpa ætlar
að rækja hlutverk sitt enn betur við
að skapa verðmæti fyrir samfélagið.
Við viljum vera með þjónustu hér á
jarðhæð sem laðar til sín fólk óháð
viðburðahaldinu sem er auðvitað
mjög umfangsmikið. Ekki aðeins er-
lenda ferðamenn, heldur ekki síður
heimamenn sem sjá ástæðu til að
sækja húsið heim í dagsins önn. Hug-
myndin er að öll starfsemi styðji við
kjarnahlutverk hússins; að vera
menningarmiðstöð og tónlistar- og
ráðstefnuhús á heimsmælikvarða í
miðborg Reykjavíkur. Þjónustan á
jarðhæð þarf að vera segull í sjálfu
sér,“ segir Svanhildur og bætir við að
einnig sé lögð áhersla á að auka staf-
ræna þjónustu og lifandi miðlun.
Hugmyndum rignir inn
Nú er fyrsta hæðin erfitt rými og
mikill geimur. Hvernig sjáið þið
þetta fyrir ykkur?
„Við erum með nokkuð opið plan í
því. Það er alveg klárt að við umbylt-
um ekki frábærum arkitektúr húss-
ins og okkur eru skorður settar
vegna þess. Í okkar stefnumótun höf-
um við verið að skoða hvaða þjónustu
erkitýpur hússins vilja fá og einnig
hvaða tækifæri við erum ekki að
nýta. Við höfum sett niður grunnplan
en viljum ekki fullvinna það fyrr en
við erum búin að fá inn frekari hug-
myndir,“ segir Svanhildur og segir
kallið eftir hugmyndum vera tvíþætt.
„Annars vegar viljum við fá hug-
myndir frá almenningi og velunn-
urum hússins, um hvað það er sem
þeir vilja sjá. Viðbrögðin hafa verið
mjög góð og eru úr öllum áttum. Það
eru þegar komnar ótrúlega margar
og skemmtilegar hugmyndir! Hins
vegar viljum við fá hugmyndir frá
rekstraraðilum sem vilja sjá sinn
rekstur í Hörpu. Við vildum opna á
þetta samtal áður en við færum að
hanna endanlegar breytingar. Við
sjáum fyrir okkur að þetta verði
sterk og heillandi heild, og erum þar
ekki aðeins að tala um jarðhæðina,
heldur líka hæðir þar fyrir neðan og
önnur rými sem kannski fáir þekkja,“
segir Svanhildur og hún segist sjá
fyrir sér veitingastaði, verslanir og
jafnvel smærri sýningar- og upplif-
unarrými sem opna á möguleika á
ýmsum uppákomum.
Tala til heimamanna
Aðspurð þvertekur Svanhildur fyrir
að þarna verði lundabúðir í röðum.
„Þótt erlendu gestirnir séu kær-
komnir þá viljum við höfða enn betur
til heimamanna. Okkur þætti frábært
að þeir kæmu í Hörpu bara til „að
hanga“ ef svo má að orði komast. Hér
í grennd er að byggjast upp líflegt
umhverfi, Edition Reykjavík-hótelið
og Landsbankinn, verslunarkjarni og
íbúðir sem mun allt tengjast Hörpu.
Þarna myndast algjörlega ný tæki-
færi sem verður ótrúlega spennandi
að nýta.“
Nú er skollin á kreppa. Hafa nýir
rekstraraðilar efni á leigunni?
Snýst þetta ekki allt um peninga?
„Vissulega má segja það til
skemmri tíma og við hugsuðum mjög
vandlega hvort þetta væri rétti tím-
inn í miðri Covid-kreppu til að kalla
eftir bæði hugmyndum og samstarfs-
aðilum. En ég hef mjög sterka sann-
færingu fyrir því að þetta sé einmitt
rétti tíminn, því þetta ástand mun
taka enda. Harpa er heldur ekki að
fara neitt og við erum að horfa á eitt
fjölsóttasta hús landsins til næstu tíu
ára. Hér hafa verið 1.200-1.400 við-
burðir á ári og gestakomur um tvær
milljónir á ári. Þannig að möguleik-
arnir eru óþrjótandi. Ég býst ekki við
að fólk geti opnað hér eftir mánuð, en
er að horfa til þess að snemma á
næsta ári eða næsta vor verði komin
ný og fersk mynd á afmælisbarnið,“
segir Svanhildur.
„Liður í því að höfða til fjöl-
breyttra hópa er metnaðarfull fjöl-
skyldudagskrá á vegum Hörpu og
samstarfsaðila. Nú erum við að rúlla
dagskránni aftur af stað en hún inni-
heldur tónleika, leiksýningar, sér-
stakar skoðunarferðir fyrir börn og
einnig uppákomur sem þau geta sjálf
tekið þátt í. Hér verður skemmtileg
dagskrá fyrir fjölskyldur allar helgar
fram að jólum.“
Samfélagsleg áhrif Hörpu
Nú kvarta margir tónlistarmenn yfir
of hárri leigu, er það eitthvað sem
þarf að breyta til þess að bæta í flór-
una?
„Nú er það þannig að það er ótrú-
lega fjölbreytt flóra tónlistar sem
flutt er í Hörpu. Í fyrra voru haldnir
sjö hundruð listviðburðir og þar af
var Sinfó, sem er stærsti einstaki
tónleikahaldarinn, með 108 tónleika,
þannig að fjölbreytnin er mikil.
Harpa á að vera hvort tveggja í senn
heimavöllur fyrir íslenska tónlist og
heimssvið fyrir alþjóðlega strauma.
En auðvitað þekki ég þessa umræðu.
Leigan í Hörpu er reyndar miklu
lægri en í sambærilegum húsum víða
erlendis en Harpa er sannarlega dýr-
ust af tónleikahúsum á Íslandi enda
með bestu aðstöðuna. Harpa á ekki
að undirbjóða aðra á markaði en auð-
vitað gerum við allt sem í okkar valdi
stendur til þess að mæta þörfum tón-
listarfólks og tryggja sem mesta
breidd,“ segir Svanhildur og nefnir
að salir Hörpu séu mjög vel nýttir.
„Varðandi yngra fólk og grasrót þá
hafa verið gerðar atrennur í gegnum
tíðina að því að vera til að mynda með
tónleikaraðir sem lyfta þessum hóp-
um tónlistarfólks og ég myndi vilja
endurvekja það í nýrri mynd. Ég hef
meðal annars rætt við rektor
Listaháskólans á þessum nótum og
það er gagnkvæmur áhugi fyrir
hendi að við vinnum meira saman.
Við höfum einnig kallað eftir sam-
starfi við Tónlistarborgina Reykja-
vík, en svo kom Covid og setti ansi
margt á bið. En þetta er mikilvægur
hluti af aðgerðaáætlun Hörpu sem
við munum virkja betur þegar við er-
um komin í gegnum þessa tíma,“ seg-
ir hún.
„Mér finnst svo mikilvægt að
undirstrika að hlutverk Hörpu er að
skapa verðmæti, og þá ekki eingöngu
þau sem mæld eru í krónum og aur-
um. Harpa er að mínum dómi svo
mikilvæg fyrir samfélagið. Áherslan
á menningarlegu, efnahagslegu og
samfélagslegu verðmætin sem verða
til í þessu húsi alla daga er það sem
ég brenn fyrir og við ætlum sannar-
lega að hámarka þau á næstu árum.“
Síung og sígild Harpa
Harpa á tíu ára afmæli á
næsta ári og af því til-
efni er ætlunin að slá
nýjan tón og auka enn á
fjölbreytni starfsemi
hússins. Svanhildur
Konráðsdóttir, forstjóri
Hörpu, er með skýra
framtíðarsýn og segir að
Harpa muni verða enn
betri með árunum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
„Við verðum tíu ára á næsta
ári og erum einbeitt í því að
vera síung en um leið sígild,“
segir Svanhildur Konráðs-
dóttir, forstjóri Hörpu.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.10. 2020
LÍFSSTÍLL
... stærsti uppskriftarvefur landsins!