Morgunblaðið - 09.11.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
er bæði spennandi
og ógnvekjandi
Bókin fæst í Eymundsson
UNGMENNABÓKIN
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Aukin þjónusta á heimilum
Heilbrigðisráðherra telur að of mikil áhersla sé lögð á að fólk fari inn á hjúkr-
unarheimili í stað þess að mæta þörfum þess með stuðningsþjónustu heima
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Eins og kerfið er uppbyggt núna er
allt of mikil áhersla lögð á að fólk
fari inn á hjúkrunarheimili þegar í
mörgum tilvikum er hægt að mæta
þörfum þess betur og með minni til-
kostnaði með aukinni stuðnings-
þjónustu heima. Þótt við náum stór-
auknum árangri að þessu leyti þarf
engu að síður að fjölga hjúkrunar-
rýmum og þar hef ég kynnt stór-
sókn með framkvæmdaáætlun um
uppbyggingu hjúkrunarrýma sem
unnið er eftir,“ segir Svandís Svav-
arsdóttir heilbrigðisráðherra.
Hún var spurð að því hvernig
fyrirsjáanlegri aukinni þörf á þjón-
ustu við aldrað fólk yrði mætt. Hún
svaraði skriflega og sagði að mik-
ilvægt væri að
vinna markvisst
að því að efla
getu ríkis og
sveitarfélaga til
að mæta aukinni
þjónustuþörf sem
fylgdi þeirri þró-
un. „Vinna þarf
að fjölbreyttum
leiðum og lausn-
um til að mæta
þessari þjóðfélagsbreytingu. Mark-
vissar forvarnir, heilsuefling og fyr-
irbyggjandi endurhæfing skiptir
miklu máli. Stórauka þarf þjónustu
sem gerir öldruðum kleift að búa
lengur á eigin heimili. Hvað það
varðar hef ég lagt áherslu á að
fjölga dagdvalarrýmum, ekki síst
sérhæfðum dagdvalarrýmum fyrir
aldraða með heilabilunarsjúkdóma
og eins hafa fjármunir verið auknir
verulega í minni tíð til að efla heima-
hjúkrun.“
Bendir hún á að á þessu ári hafi
fjármunir til að efla heimahjúkrun
verið auknir um 130 milljónir króna
og 200 milljónir settar í uppbygg-
ingu á heilsueflandi móttökum í
heilsugæslu um allt land. Móttök-
urnar eru ætlaðar eldra fólki og ein-
staklingum með fjölþætt eða lang-
vinn heilsufarsvandamál og eru
mikilvægur liður í því að innleiða
skipulagða heilsuvernd fyrir aldr-
aða.
Efniviður til meiri sáttar
Spurð hvernig hún hyggist leysa
vandamál hjúkrunarheimila vegna
lágra daggjalda og afleiðinga þess á
þjónustuna segir Svandís að aukin
þjónusta við aldraða heima og fjölg-
un hjúkrunarrýma muni bæta stöð-
una varðandi biðlista. Þá segist hún
binda vonir við að með niðurstöðu
greiningar á rekstrarkostnaði
hjúkrunarheimila í starfshópi undir
forystu Gylfa Magnússonar fáist
efniviður sem geri kleift að skýra
málin og skapa um þau betri sátt.
Heilbrigðisráðherra segir að unn-
ið sé að lausn á þeirri stöðu sem upp
er komin vegna uppsagna fjögurra
sveitarfélaga á þjónustusamningum
um hjúkrunarheimili. Mikilvægast
sé að tryggja samfellu í þjónustunni
fyrir íbúa hjúkrunarheimilanna.
Þannig nálgun sé á málið hjá ráðu-
neytinu. Mögulega verði lausnir á
stöðunni mismunandi eftir hjúkrun-
arheimilum.
Svandís
Svavarsdóttir
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Gert er ráð fyrir að um 500 manns
bíði þess að komast í ökupróf 17.
nóvember næstkomandi. Er það sá
dagur sem hertar sóttvarnaaðgerðir
munu gilda til að lágmarki. Öku-
kennurum hefur verið bannað að
sinna verklegri ökukennslu og í á
þriðju viku hafa engin ökupróf farið
fram. Lætur nærri að það verði
fjórar vikur hinn 17. nóvember að
sögn Svanbergs Sigurgeirssonar,
deildarstjóra ökuprófa hjá Frum-
herja. Fyrirtækið sér um fram-
kvæmd ökuprófa í verktöku fyrir
Samgöngustofu. „Svo virðist sem
foreldrarnir séu æstastir og eru að
hringja, krakkarnir eru minna í
því,“ segir Svanberg. Er hann þá að
vísa til þess þegar kúfur safnaðist
upp í vor. Þá biðu á milli 620 og 630
einstaklingar eftir að komast í öku-
próf eftir fyrstu bylgju kórónu-
veirunnar. „Þá var lítill skilningur á
því að við gátum ekki tekið öll próf-
in í einu. Svo var bætt við tveimur
dómurum og þá gekk að vinna þetta
upp. Þetta verður sama strögglið
núna þegar við förum af stað aftur.
Um leið og við opnum vilja allir
komast að um leið,“ segir Svanberg.
Að sögn gat fólk þurft að bíða í
þrjár vikur eftir próftöku eftir
fyrstu bylgju. „Það mun taka eitt-
hvað fram yfir áramót að koma mál-
um í eðlilegt horf,“ segir Svanberg.
Margir bíða þess að
komast í ökupróf
500 manns eru á biðlista Löng bið
Óánægju hefur
gætt hjá sumum
útgefendum
vegna topplista
bókaútgefenda í
október. Arn-
aldur Indriðason
var á toppi
listans, en svo
vill til að bók
hans kom út 1.
nóvember sl. og
hefði að mati margra ekki átt að
geta verið á toppi októberlistans
af þeim sökum. Bryndís Lofts-
dóttir hjá Félagi íslenskra bóka-
útgefenda segir að þótt hún hafi
skilning á gagnrýninni megi rekja
skýringuna til þess að óvenju-
margir titlar komu út í forsölu í
ár. Þeirra á meðal bók Arnaldar.
„Það hefur margt breyst á einu
ári og nú eru allir að selja bækur
á netinu og í forsölu. Þangað til í
fyrra var einungis ein bók sem
hafði nokkru sinni komið í for-
sölu,“ segir Bryndís. Fyrir vikið
hafi hún ákveðið að láta topplist-
ann fara eftir sölutölum hvers
dags. Ómögulegt sé fyrir sig að
hafa yfirsýn yfir hvenær bækur
eru afhentar.
Hinn valkosturinn við uppsetn-
ingu listans er að geyma sölutölur
þar til bók er afhent viðskiptavin-
um þegar formlegur útgáfudagur
er. Er það gert víða erlendis.
„Hvenær kaupir maður bók og
hvenær kaupir maður ekki bók?“
spyr Bryndís. vidar@mbl.is
„Hvenær
kaupir mað-
ur bók?“
Bryndís
Loftsdóttir
Óánægja með bók-
sölulista í október
Sveitarstjóri Bláskógabyggðar hef-
ur óskað eftir því við Vegagerðina
að áform um að fella Geysisveg af
vegaskrá verði endurskoðuð. Kom
þetta fram á síðasta fundi sveitar-
stjórnar.
Geysisvegur liggur af Biskups-
tungnabraut að húsaþyrpingu á
bak við Hótel Geysi. Þetta er stutt-
ur kafli sem Vegagerðin lagði og
hefur haldið við. Ásta Stefánsdóttir
sveitarstjóri segir að Vegagerðin
virðist fella vegi út af vegaskrá ef
enginn er með lögheimili við þá. Í
þessu tilviki búi fólk á svæðinu en
mistök hafi orðið hjá Þjóðskrá við
skráninguna. Er hún vongóð um að
þetta verði leiðrétt og Vegagerðin
falli frá áformum sínum.
Geysisvegur
haldist á skrá
Mikið virðist vera af sílamáfum við Reykjavíkur-
tjörn um þessar mundir, eins og oft áður. Þeir
sækja mikið inn í borgir til að leita fæðis enda
miklir tækifærissinnar í því efni. Þeir eru að-
gangsharðir og vinna oft í samkeppninni um
brauðið sem ætlað er öndunum. Máfar flykktust
að manni sem var að gefa öndum brauð við
Tjarnargötuna einn góðviðrisdaginn svo hann
nánast hvarf í fuglagerið.
Týndur í fuglageri við Reykjavíkurtjörn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon