Morgunblaðið - 09.11.2020, Qupperneq 11
11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020
Missið ekki af áhugaverðum þætti um Íslenska
gámafélagið og viðtali við forstjóra og
helstu stjórnendur fyrirtækisins.
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 20.00
• Þróun í sorphirðu og sorpflokkun á s.l. 20 árum
• Sorp er orðin stór útflutningsvara
• Umhverfismál, jarðgerð og lífrænn úrgangur
• Nýjar höfuðstöðvar við Esjumela
í þættinum Atvinnulífið sem
er á dagskrá Hringbrautar
kl. 20.00 í kvöld
Íslenska gámafélagið
– sorphirða og umhverfismál
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Fyrrverandi forstjóri heilbrigðisstofnunar
sem starfrækir hjúkrunarheimili segir það bá-
bilju að alltaf sé betra að sinna öldruðu fólki á
heimilum þess í stað þess að það flytji á
hjúkrunarheimili, ef vilji og heilsubrestur kalli
á það. „Þessi kenning er röng og þótt það geti
átt við í þeim tilfellum þar sem fólk er til-
tölulega hresst hafa ekki verið færðar fyrir
því neinar sannanir eða flutt fyrir því rök að
það sé ódýrara að geyma
fólk heima. Það er dýrt að
reka eigið heimili, sinna
viðhaldi og reka það og
aldrei reiknað til fulls. Elli-
lífeyrir og lífeyrissjóðs-
greiðslur standa ekki undir
slíkum rekstri og þetta
eykur fátækt, einsemd og
vanlíðan,“ segir Valbjörn
Steingrímsson, fyrrverandi
forstjóri Heilbrigðisstofn-
unarinnar á Blönduósi, sem hefur komið víðar
við í heilbrigðiskerfinu.
Valbjörn segir að ráðamenn virðist trúa því
að allir vilji vera sem lengst heima. Það sé bá-
bilja þeirra sem trúi því að fólk vilji vera veikt
heima, af því bara. Heimahjúkrun og heima-
þjónusta sveitarfélaga sé ekki veitt allan sól-
arhringinn og ekki heldur helgarþjónusta
nema að litlu leyti.
„Til þess að minnka biðlista og þar með
„þörf“ herðir hið opinbera með reglulegum
hætti kröfur um líkamlega færni og getu
væntanlegra notenda þjónustunnar þannig að
fólk þarf að vera nánast orðið algerlega ósjálf-
bjarga og á grafarbakkanum til að geta fengið
inni á hjúkrunarheimili. Áhyggjulausa ævi-
kvöldið er því framkvæmt þannig að aðstand-
endur, aldraðir makar og aðrir ættingjar,
þurfa, ef þeir eru á annað borð að sinna þessu
verkefni, að gera það oft án þess að hafa til
þess færni eða líkamlega burði. Þetta er leið
dagsins í dag svo ráðamenn geti skotið sér
undan ábyrgð af löngum biðlistum,“ segir Val-
björn.
Hann bætir því við að vinnutap fjölskyldu-
meðlims sem hugsar um veikan ættingja sé
heldur ekki talið með.
Valbjörn tekur undir með forstjórum hjúkr-
unarheimila og segir að daggjöld til þeirra séu
sannarlega of lág, nema til þeirra heimila sem
ríkið rekur sjálft.
Nýtur ekki húsakynnanna
„Öll húsakynni sem hafa verið byggð á síð-
ustu árum og eru fyrirhuguð eru afar óhag-
kvæmar rekstrareiningar. Allt litlar deildir,
10 til 14 manna, með mörgum matstofum og
fleiru sem gerir það að verkum að það eru í
raun mörg hjúkrunarheimili undir sama þaki.
Skipulagið kallar líka á fleira starfsfólk og
marga vinnuferla og um leið meira flækjustig
í rekstrinum. Deildir eru misþungar og ekki
má færa heimilismenn milli deilda eftir
umönnunarþörf og búa þannig til sérhæfðari
rými. Fólkið er í flestum tilvikum orðið of
gamalt og veikt til að geta notið slíkra húsa-
kynna svo vel sé,“ segir Valbjörn Stein-
grímsson.
Bábilja að betra sé að halda fólki heima
Fyrrverandi forstjóri segir ósannað að betra sé að geyma veikt fólk heima en á hjúkrunarheimili
Valbjörn
Steingrímsson
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ísafold Hjúkrunarheimilið sem Hrafnista rekur nú í Garðabæ er eitt af nýjustu og bestu hjúkrunarheimilum landsins. Rekstur þess er þó þungur.