Morgunblaðið - 09.11.2020, Side 12
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Mörg íslensk fyirtæki voru ekki
viðbúin þeim mikla vexti sem varð í
netverslun í kórónuveirufaraldrin-
um. Yngvi Tóm-
asson segir suma
vera í þeim spor-
um að þurfa ým-
ist að taka vef-
verslanir sínar
rækilega í gegn
eða opna vef-
verslun frá
grunni á meðan
aðrir glími við
þann vanda að
geta ekki annað eftirspurn og eigi
fullt í fangi með að halda utan um
sölu sína og þjónustu yfir netið.
Yngvi er framkvæmdastjóri Leik-
breytis sem sérhæfir sig í stafræn-
um lausnum fyrir vefverslanir.
„Umhverfið hefur gjörbreyst á
þessu ári og vefverslanir farnar að
vega mun þyngra í rekstri seljenda
af ýmsu tagi. Þar til nýlega voru fá-
ir búnir að fjárfesta í að sinna vef-
verslun almennilega og ófáir sem
notuðu vefverslanir sínar þá fyrst
og fremst til að sýna vöruframboðið
á meðan salan sjálf fór að lang-
mestum hluta fram á staðnum.“
Segir Yngvi núna hægt að finna
dæmi þar sem íslenskar verslanir
selja meira yfir netið en á hefð-
bundnum útsölustöðum sínum og
hafa sumir uppgötvað að það
gagnast þeim ekki lengur að reka
verslunarrými á besta stað. „Ég
veit t.d. um húsgagnaverslun sem
breytti rekstrinum og lokaði versl-
un á dýrum stað í bænum en færði
söluna alla yfir á netið. Fyrirtækið
rekur enn vöruhús í jaðri borgar-
innar og getur tekið á móti við-
skiptavinum þar en vefverslunin er í
aðalhlutverki.“
Vefverslunarkerfin sjá
um utanumhaldið
Stjórnendum er vandi á höndum
því það að opna vefverslun bætir
nýrri vídd við reksturinn og út-
heimtir bæði fjármagn og vinnu. Þá
eru fæstir vanir því að reka vef-
verslun og þurfa að læra margt frá
grunni. Yngvi segir grunnatriðin þó
í megindráttum þau sömu: rétt eins
og innrétta þarf fallegt verslunar-
rými þarf að hanna aðlaðandi vef-
verslun, og rétt eins og tengja þarf
posa við afgreiðslukassa verslunar
þarf að tengja vefverslunina
greiðslugáttum kortafyrirtækjanna.
„Svo þarf að stilla vörunum fallega
upp, og síðast en ekki síst láta fólk
vita af því að búið er að opna búðina
og auglýsa reksturinn.“
Að mörgu er að huga og þarf t.d.
iðulega að tengja vefverslunina við
eldri birgða- og bókhaldskerfi. Í til-
viki nýrra fyrirtækja segir Yngvi að
oft geti verið hentugast að byrja á
vefversluninni og svo hafa hefð-
bundna verslun sen anga af þeim
rekstri, frekar en öfugt, enda vef-
verslunarkerfi vel til þess fallin að
halda utan um lagerstöðu, pantanir
og greiðslur. „Margir seljendur eru
í þeim sporum að þurfa í raun ekki
að nota bókhaldskerfi nema til þess
að geta gert reikninga sem full-
nægja ýtrustu lagakröfum. Vef-
verslunarkerfi geta í raun annast
allt utanumhaldið.“
Sumir óttast kannski að það að
opna vefverslun valdi tvíverknaði í
rekstri hefðbundinnar verslunar.
Yngvi segir að vitaskuld verði að
sinna vefverslunum vel og m.a.
bregðast hratt við fyrirspurnum
viðskiptavina, en tæknin sé þannig í
dag að auðvelt er að t.d. setja inn
myndefni og vörulýsingar, afgreiða
pantanir og uppfæra verð. „Það er
regla frekar en undantekning að
framleiðendur útvega smásölum
rafræn skjöl með öllum helstu upp-
lýsingum og myndum og hægt að
færa yfir í vefverslunarkerfi með
sjálfvirkum hætti. Nýlega þurfti ég
t.d. að fylla hillurnar hjá vefverslun
með um 30.000 vörunúmerum og
gat ég gert það á augabragði með
því að nýta þar til gerðar skrár
framleiðenda.“
Gæti sín á smáa letrinu
Fara má ýmsar leiðir við að koma
vefverslun í loftið. Yngvi bendir á að
finna megi lausnir sem gera fólki
kleift að smíða vefverslanirnar sjálft
við eldhúsborðið heima, á meðan
öðrum henti langbest að fá aðstoð
sérfræðinga til að klára verkið.
Hann varar við því að sum vefversl-
unarkerfi eru þannig gerð að þau
henta vel á meðan umsvifin eru lítil
en verða hlutfallslega dýrari eftir
því sem umsvifin aukast, s.s. ef
gjaldskráin er veltutengd. Í öðrum
tilvikum getur reynst seljendum ill-
mögulegt að færa vefverslun sína
yfir í annað kerfi ef þeir vilja skipta.
„Þetta er ekki ósvipað og að taka
verslunarhúsnæði á leigu: fólk ætti
að lesa skilmálana vel og beina við-
skiptum sínum þangað sem
gegnsæið er mest. Það sem margir
óttast mest er einmitt að fá óvænta
reikninga í bakið vegna vefversl-
unarinnar.“
Að fá íslenskt hugbúnaðarfyrir-
tæki til að setja upp vandaða vef-
verslun fyrir smátt eða meðalstórt
fyrirtæki ætti að kosta á bilinu hálfa
til eina milljón króna, að mati
Yngva. Má síðan reikna með að
þurfa að ráðstafa öðru eins í mark-
aðskostnað til að tryggja að al-
menningur viti af vefversluninni.
Loks þarf að tryggja að starfsfólk
hafi nægan tíma til að sinna vef-
versluninni, uppfæra vöruframboðið
og svara hvers kyns spurningum
sem berast. „Vefverslun sem ekki
er sinnt verður fljótt óaðlaðandi, og
rétt eins og í hefðbundnum versl-
unarrekstri gildir að sinna mark-
aðshliðinni, t.d. með reglulegum út-
sölum, jólavörum, fermingar-
tilboðum, og að taka þátt í tilboðs-
dögum eins og „Black Friday“ og
„Singles Day“,“ segir hann.
Eins er brýnt að viðskiptavinum
vefverslunar sé gert það ljóst –
helst strax á forsíðunni – hvaða skil-
málar gilda um sendingarkostnað
og vöruskil. „Það sem fælir fólk
hvað mest frá vefverslun er að það
óttast að það geti verið kostnaðar-
samt að fá vöruna senda heim að
dyrum eða erfitt að skila henni ef
hún er þeim ekki að skapi. Þeir selj-
endur standa oft best að vígi sem
geta lofað ókeypis eða mjög ódýrri
heimsendingu, og ef um stærri vöru
er að ræða mætti jafnvel lofa að
sækja vöruna án endurgjalds,“ út-
skýrir Yngvi. „Það ýtir líka undir
sölu, og leysir ýmis vandamál, ef
framsetning á myndum er góð og
textaupplýsingar skýrar. Viðskipta-
vinurinn vill geta skoðað vöruna frá
öllum sjónarhornum til að átta sig
sem best á henni.“
Að reka vefverslun þarf
ekki að vera svo flókið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Umsvif Starfsmenn kínverskrar netverslunar undirbúa útsölu. Margar
hefðbundnar íslenskar verslanir sjá sig nú knúnar til að opna útibú á netinu.
Vefverslun kallar á gott utanumhald Upplýsingagjöf þarf að vera skýr og skilvirk
Yngvi Tómasson
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
9. nóvember 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 137.75
Sterlingspund 180.75
Kanadadalur 105.33
Dönsk króna 21.949
Norsk króna 14.968
Sænsk króna 15.898
Svissn. franki 153.08
Japanskt jen 1.3332
SDR 196.07
Evra 163.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 197.1272
Hrávöruverð
Gull 1947.95 ($/únsa)
Ál 1877.0 ($/tonn) LME
Hráolía 40.63 ($/fatið) Brent
Þrátt fyrir að
hafa skilað 30
milljarða dala
hagnaði á síð-
asta ársfjórð-
ungi varð Berk-
shire Hathaway,
félag Warrens
Buffetts, fyrir
verulegum
skakkaföllum af
völdum kórónuveirufaraldursins.
Í uppgjöri samsteypunnar, sem
birt var á laugardag, kemur fram að
tekjur drógust saman um 3% frá
sama tímabili í fyrra.
Kórónuveirufaraldurinn og
slæmt hvirfilbyljaár komu illa við
tryggingarekstur samsteypunnar
og varð mikill samdráttur hjá
flugvélaíhlutaframleiðslu Precision
Castparts sem Berkshire eignaðist
árið 2016.
Reuters segir að á móti hafi kom-
ið mikil hækkun á hlutabréfaverði
Apple sem myndar í dag um 46% af
eignasafni Berkshire.
ai@mbl.is
Warren Buffett
Faraldurinn fer
illa með Berkshire
● Leiðandi aðildarríki OPEC óttast
að kjör Joes Bidens í embætti
Bandaríkjaforseta kunni að valda
aukinni togstreitu á meðal OPEC-
landanna og samstarfsþjóða þeirra.
Reuters greinir frá þessu og hefur
eftir ónafngreindum heimildar-
mönnum sem þekkja vel til starfsemi
samtakanna.
Í upphafi forsetatíðar sinnar var
Trump gagnrýninn á stefnu OPEC en
snerist síðar hugur og lagði lóð sín á
vogarskálarnar við að draga úr olíu-
framleiðslu svo að tækist að ná jafn-
vægi á olíumarkaði. Átti hann þátt í
að koma á sáttum á milli Sádi-
Arabíu og Rússlands þegar virtist
ætla að slitna upp úr samstarfi OPEC
og samstarfsríkja samtakanna fyrr á
þessu ári, en það gerði hann m.a. til
að vernda störf í bandarískum olíu-
iðnaði sem voru í hættu vegna lækk-
unar á heimsmarkaðsverði olíu.
Markaðsgreinendur munu m.a.
fylgjast náið með hvaða stefnu Biden
tekur gagnvart ríkjum á borð við
Sádi-Arabíu, Rússland, Íran og
Venesúela. Ef úr verður að slaka á
viðskiptaþvingunum gagnvart Vene-
súela og Íran gæti það þýtt að millj-
ónir fata af olíu bættust við mark-
aðinn daglega sem mun torvelda
OPEC að láta framboð olíu fylgja
eftirspurn. ai@mbl.is
Leiðtogar OPEC óttast
flækjur vegna Bidens
Óvissa Áhugavert verður að sjá hvernig
sambandið við Íran og Venesúela þróast.