Morgunblaðið - 09.11.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020
KAUPTU
ÁSKRIFT
í síma 569 11
00
á
mb
l.is/askrift
Traustur flutningur frétta og öflug fjölmiðlun eru
aðalsmerki Morgunblaðsins, eins og áskrifendur okkar vita.
Til að sýna þeim þakklæti í verki kynnum við nýjan
áskriftarleik.
Heppinn áskrifandi hlýtur Honda e rafbíl
Honda e er framúrskarandi rafbíll, hannaður með
þéttbýlisnotkun að leiðarljósi og knúinn hreinni raforku
úr náttúru Íslands.
Vertu með og kynntu þér áskriftarleiðir á mbl.is/askrift
Allir áskrifendur eru sjálfkrafa í pottinum.
Við drögum 17. desember
Áskrifendur!
með áskrift aðMorgunblaðinu
Spennandi
tímar
fram undan
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vinsældir þínar eru meiri en
nokkru sinni fyrr. Vertu ekki tortrygginn og
stífur. Mundu að aðrir reiða sig á þig svo
þú skalt takmarka þig við það sem þú get-
ur staðið við.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur unnið vel og tekist að leysa
öll fyrirliggjandi verkefni í tæka tíð. Sömu-
leiðis gæti reynst þér erfitt næstu vikur að
skilja á milli löngunar og þarfar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er alltaf eitthvað að gerast í
hausnum á þér. Undir slíkum kringum-
stæðum er betra að sitja hjá og bíða
næsta dags.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hikaðu ekki við að leita nýrra
lausna á vandamálum í vinnunni. Passaðu
að þér sé ekki tekið sem sjálfsögðum á
vinnustað.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Umhverfið hefur enn meiri áhrif á
sálarástand þitt en vanalega. Líttu á björtu
hliðarnar og þá kemur hitt af sjálfu sér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Treystu hugboðum sem þú færð á
fjármálasviðinu í dag. En fyrirkomulag sem
reynt er að þröngva upp á þig virkar ekki.
23. sept. - 22. okt.
Vog Núna er mikilvægt að gjörðir þínar
miði að því að bæta eigin kjör og annarra.
Hugsaðu um sjálfan þig fyrst og fremst.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er eitt og annað sem svíf-
ur í lausu lofti hjá þér svo þú þarft að ná
betri tökum á hlutunum. Einhverjir sem þú
telur vini þína hafa í raun engan áhuga á
að teljast í þeim hópi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þeir eru margir sem vilja ná
fundi þínum til skrafs og ráðagerða. Láttu
engan binda þig nauðugan í hlekki vanans.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Mundu að það er ekki allt gull
sem glóir og að lífshamingjan felst ekki
bara í efnislegum gæðum þótt gagnleg
séu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu góð fyrirmynd í stað þess
að gera annan að góðri fyrirmynd. Fáðu á
hreint hver ber ábyrgðina og hlutirnir
ganga betur fyrir sig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Farðu vel með þá hluti sem þú
eignast, hvort sem þeir eru stórir eða
smáir. Vertu glaður og lífið verður gott við
þig.
áhugamál mitt og síðan 1984 hef ég
verið framkvæmdastjóri Lands-
keppni í eðlisfræði sem heldur árleg-
krossins í Reykjavík og þjálfa þær til
að taka á móti þeim sem flýja þurfa
náttúruhamfarir. „Eðlisfræði er
V
iðar Ágústsson fæddist í
Reykjavík 9. nóvember
1950 og ólst upp í Hlíð-
unum. Viðar kynntist
sveitastörfum á Ölvalds-
stöðum í Borgarfirði þar sem for-
eldrar hans áttu sumarbústað á kald-
astríðsárunum. „Á Ölvaldsstöðum
var bóndi sem tregðaðist við að taka
upp nútímabúskaparhætti. Ég og
bróðir minn fórum með mjólkina í
brúsum á hestakerru á morgnana og
þarna tölti gamli Rauður með okkur
út að brúsapallinum, líklega um 5 km
leið. Ég hef líklega verið sjö ára.“
Viðar gekk í Ísaksskóla, Eskihlíðar-
skóla og Hlíðaskóla, tók landspróf í
Hagaskóla og kláraði kennarapróf
1970 og stúdentspróf 1971 í gamla
Kennaraskólanum. Þaðan fór hann í
Háskóla Íslands, fyrst í líffræði á
meðan hann bætti við sig stærðfræði
í MR, en fór svo í eðlisfræði og klár-
aði BSc 1975 og tók seminar í
kennslu verklegrar eðlisfræði 1980
við Worcester College á Englandi.
Framhaldsskólakennararéttindi
komu í hús 1982 og hann var hálfan
vetur í fjórða árs námi í eðlisfræði
1984. Viðar kenndi eðlisfræði við MÍ
hjá Jóni Baldvini og Bryndísi í þrjá
vetur frá 1975. „Ég gerði heiðurs-
mannasamkomulag við Jón Baldvin
um að vera þarna í þrjá vetur og stóð
við það.“ Eftir veruna á Ísafirði
kenndi Viðar í sex vetur við FB hjá
Guðmundi Sveinssyni, þar sem hann
skrifaði kennslubókina Kynning á
eðlisfræði ásamt Þorsteini Egilson
og fleirum.
„Þá fóru framhaldsskólakennarar í
stóra strækinn 1985, ég fór að vinna í
tölvubransanum og sneri ekki aftur
sem kennari í fullu starfi fyrr en 20
árum seinna. Kennarastarfið er hill-
an mín, því eftir níu ár í Mennta-
skólanum Hraðbraut hjá Ólafi Hauki
Johnson fór ég til Flensborgarskól-
ans í Hafnarfirði þar sem ég kenni
enn.“ Kennarar unnu oft sumarstörf
í gamla daga og Viðar var skurð-
gröfustjóri á Akureyri sumarið 1977,
keyrði leigubíl hjá Steindóri sumarið
1978 og keyrði strætó sumrin 1979 til
1982. Hann vann auk þess í sjálf-
boðastarfi um átta ára skeið við að
stofna neyðarnefndir á vegum Rauða
ar keppnir til að velja framhalds-
skólanemendur til að vera fulltrúar
Íslands á ólympíuleikunum í eðl-
isfræði víðs vegar um heiminn. Ég
byrjaði það starf með Hans Kr. Guð-
mundssyni og Benedikt Jóhannssyni
1984. Oftast hef ég verið þjálfari og
fararstjóri landsliðsins í eðlisfræði
ásamt úrvalssamstarfsfólki eins og
Ingibjörgu Haraldsdóttur, Ara
Ólafssyni, Þorsteini Vilhjálmssyni,
Erni Helgasyni og Matthíasi Hark-
sen. Hápunktur starfs míns í þágu
eðlisfræðinnar var 1998 þegar Þor-
steinn Ingi Sigfússon, formaður
framkvæmdanefndar Ólympíu-
leikanna í eðlisfræði á Íslandi, réð
mig sem framkvæmdastjóra leik-
anna í umboði Björns Bjarnasonar,
þáverandi menntamálaráðherra.
Þarna tókum við á móti keppendum
frá 56 löndum ásamt fararstjórum,
áheyrnarfulltrúum og gestum; sam-
tals 300 manns sem Þórdís Eiríks-
dóttir skrifstofustjóri fann nætur-
stað og rútuferðir. Flestir íslenskir
eðlisfræðingar og eðlisfræðinem-
endur á þeim tíma voru kallaðir til
starfa til að semja verkefni og fara
yfir lausnir keppendanna og þar voru
Þorsteinn Vilhjálmsson, Leó Krist-
jánsson og Ari Ólafsson í aðal-
hlutverkum.“ Í seinni tíð hefur Viðar
haldið fyrirlestra fyrir Ellert Guð-
mundsson verkfræðing um notkun
stærðfræðiforrita á netinu og fyrir-
lestra í Stjörnuverinu fyrir Snævar
Guðmundsson ásamt því að veita
framhalds- og háskólanemum aðstoð
í stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði.
„Það er mikilvægt að gefa afburða-
nemendum í bóklegum greinum
tækifæri til að komast á keppnismót
svo þeir kynnist jafnöldrum sínum
með sömu áhugamál og myndi vina-
sambönd um allan heim. Þessir af-
burðanemendur á framhalds-
skólaárunum verða áhrifamenn í
þjóðfélagi framtíðarinnar og það er
nauðsynlegt að þeir hafi þá góð
tengsl við aðra frammámenn og al-
þjóðlega hugsun.“
Fjölskylda
Eiginkona Viðars er Þ. Helga
Hilmarsdóttir, f. 8.8. 1961, jarðfræð-
ingur og grunnskólakennari. For-
Viðar Ágústsson eðlisfræðikennari – 70 ára
Kennari í húð og hár
Börnin F.v. eru Atli, Sunna, Snorri og Sindri, Helga og Viðar fyrir aftan.
Kennarinn Viðar er
alltaf í þessum bol
þegar hann kennir
um ljósbrot.
Til hamingju með daginn
30 ára Snædís er
fædd og uppalin á
Húsavík. Snædís er yf-
irlífeindafræðingur á
Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á Húsa-
vík. Helstu áhuga-
málin eru crossfit,
ferðalög innanlands og erlendis og svo
finnst henni gaman að lesa góðar bækur
og vera í góðra vina hópi, að ógleymdri
tónlist en hún hefur sungið með Kvenna-
kór Húsavíkur.
Maki: Heiðar Hrafn Halldórsson, f. 1986,
verkefnastjóri í Hvalasafninu í Húsavík.
Foreldrar: Guðný Anna Guðmundsdóttir,
f. 1947, sjúkraliði og Björn Gunnar Jóns-
son, f. 1947, raffræðingur. Þau búa á
Húsavík.
Snædís Birna
Björnsdóttir
30 ára Smári er fædd-
ur og uppalinn Reyk-
víkingur en er nú flutt-
ur austur fyrir fjall.
Smári er menntaður
gítarsmiður úr Musici-
an’s Institute í Kaliforn-
íuríki. Hann er mikill
lífskúnstner og á sér mörg áhugamál en
þau helstu eru skotveiðar, kaffi og tón-
list.
Maki: Eva María Pétursdóttir, f. 1990,
uppeldis- og menntunarfræðingur.
Börn: Frans Logi, f. 2015, og Júlía Logn,
f. 2020.
Foreldrar: Hallgrímur Jónsson, f. 1966,
framkvæmdastjóri, og
Helga Rut Baldvinsdóttir, f. 1968, sjálf-
stæður atvinnurekandi.
Smári Dan
Hallgrímsson
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is