Morgunblaðið - 09.11.2020, Page 27
ENGLAND
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Englandsmeisturum Liverpool mis-
tókst að endurheimta toppsæti úr-
valsdeildarinnar eftir 1:1-jafntefli
gegn Manchester City á Etihad-
leikvanginum í stórleik 8. umferð-
arinnar í gærkvöldi. Kevin de Bruyne
klúðraði vítaspyrnu, sem reyndist
heimamönnum ansi dýrkeypt.
Meistararnir blésu til sóknar í
Manchester er Jürgen Klopp, stjóri
Liverpool, stillti upp afar sóknar-
sinnuðu liði; Diogo Jota byrjaði ásamt
þremenningnum heilögu; Roberto
Firmino, Sadio Mané og Mohamed
Salah. Þessi djarfa uppstilling virtist
ætla að skila tilætluðum árangri er
gestirnir byrjuðu með látum og tóku
forystuna strax á 13. mínútu. Mané
var felldur inni í vítateig af Kyle Wal-
ker og Salah skoraði úr vítaspyrn-
unni.
Heimamenn jöfnuðu þó metin með
laglegu marki Gabriels Jesus og
fengu svo gullið tækifæri til að kom-
ast yfir skömmu fyrir hálfleik þegar
Joe Gomez handlék knöttinn og City
fékk vítaspyrnu. De Bruyne setti
knöttinn hins vegar framhjá markinu
og hvorugu liði tókst að kreista fram
sigurmark þótt heimamenn hafi kom-
ist nærri því með sterkari frammi-
stöðu í síðari hálfleik.
Meistararnir eru sennilega ekki
alls ósáttir með stigið gegn sínum
helstu keppinautum um meistaratit-
ilinn undanfarin ár. Það vantar lyk-
ilmenn í þetta Liverpool-lið, Virgil
van Dijk, Fabinho og Thiago Alcant-
ara til að mynda, og þá fór Trent Al-
exander-Arnold meiddur af velli í
gær. Meistararnir eru vængbrotnir
og virtust þollitlir á endasprettinum í
leiknum. Þeir neituðu hins vegar að
játa sig sigraða og uppskáru stig.
City þurfti aftur á móti á sigri að
halda eftir slitrótta byrjun hjá læri-
sveinum Peps Guardiola. City er með
tólf stig eftir fyrstu sjö leiki sína og
hefur enn ekki tekist að vinna tvo
leiki í röð. Stjórar beggja liða kvört-
uðu sáran undan leikjaálagi í við-
tölum við Sky Sports eftir leik. Bæði
lið taka þátt í Meistaradeildinni þar
sem spilað er í nánast hverri viku og
skilja þeir Klopp og Guardiola ekkert
í þeirri ákvörðun deildarinnar að
leyfa ekki fimm skiptingar áfram,
eins og gert var í sumar vegna
kórónuveirufaraldursins.
Mikilvægur sigur gegn Gylfa
Manchester United vann lífs-
nauðsynlegan sigur á laugardaginn
er liðið sótti þrjú stig gegn Everton,
lokatölur 3:1 á Goodison Park. Bruno
Fernandes skoraði tvö fyrir gestina
og Edison Cavani skoraði sitt fyrsta
mark fyrir félagið er United komst
aftur á beinu brautina. Bernard hafði
komið Everton yfir snemma leiks en
liðinu hefur heldur betur fatast flugið
eftir öfluga byrjun á tímabilinu. Gylfi
Þór Sigurðsson var í byrjunarliði
Everton en tekinn af velli eftir 66
mínútur er liðinu mistókst að vinna í
fjórða leiknum í röð.
Jóhann Berg Guðmundsson er að
snúa til baka eftir smávægileg meiðsli
og kom ekki við sögu í markalausu
jafntefli Burnley gegn Brighton á
föstudaginn. Íslenski landsliðsmað-
urinn var ónotaður varamaður í leikn-
um.
Rúnar Alex Rúnarsson var ónot-
aður varamarkvörður Arsenal sem
tapaði 3:0 á heimavelli gegn Aston
Villa í gærkvöldi.
Stórleikurinn í járnum
Vængbrotnir meistarar fengu stig
United vann nauðsynlegan sigur
AFP
Stórmeistarajafntefli Sadio Mané sækir að Rodri í viðureign stórliða
Liverpool og Manchester City á Etihad-leikvanginum í gærkvöldi.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020
Undankeppni EM karla
2. Riðill:
Eistland – Þýskaland .......................... 23:35
Alfreð Gíslason er landsliðsþjálfari
Þýskalands.
3. Riðill:
Rússland – Úkraína.............................. 30:28
4. Riðill:
Litháen – Portúgal ............................... 26:34
6. Riðill:
Ítalía – Noregur.................................... 24:39
7. Riðill:
Finnland – Danmörk............................ 22:40
Sviss – Norður-Makedónía.................. 23:26
8. Riðill:
Rúmenía – Svartfjallaland................... 36:27
Kósóvó – Svíþjóð .................................. 16:30
Þýskaland
Bikarkeppni, 16-liða úrslit:
Neckarsulmer – Leverkusen ............. 24:27
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði tvö
mörk fyrir Leverkusen.
Svíþjóð
Skuru – Lugi ........................................ 34:16
Hafdís Renötudóttir var ekki í leik-
mannahóip Lugi.
HANDBOLTI
Spánn
Valencia – San Pablo Burgos............. 81:99
Martin Hermannsson skoraði fimm stig
fyrir Valencia, tók eitt frákast og gaf þrjár
stoðsendingar á 16 mínútum.
Zaragoza – Manresa ....................... 102:103
Tryggvi Snær Hlinason skoraði þrjú stig
fyrir Zaragoza, tók sex fráköst og gaf eina
stoðsendingu á 13 mínútum.
Þýskaland
Alba Berlín – Fraport ......................... 79:66
Jón Axel Guðmundsson skoraði 21 stig
fyrir Fraport, tók tvö fráköst og gaf fimm
stoðsendingar á 33 mínútum.
Litháen
Siaulai – Neptunas .............................. 93:88
Elvar Már Friðriksson skoraði 21 stig
fyrir Siaulai, tók fimm fráköst og gaf 12
stoðsendingar á 36 mínútum.
Bretland
Bikarkeppnin
Leicester Riders – Man. Mustics ....... 65:44
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði átta stig
fyrir Leicester Riders, tók sex fráköst og
gaf fjórar stoðsendingar á 32 mínútum.
KÖRFUBOLTI
Körfuknattleikskappinn Elvar Már
Friðriksson átti stórleik þegar lið
hans Siauliai vann sinn fyrsta sigur
í efstu deild Litháens gegn Nept-
unas í gær. Leiknum lauk með
93:88-sigri Siauliai en Elvar Már
var með tvöfalda tvennu, skoraði 21
stig og gaf tólf stoðsendingar. Þá
tók hann einnig fimm fráköst en
Elvar Már hefur skorað 17 stig að
meðaltali í deildinni í vetur, ásamt
því að gefa átta stoðsendingar að
meðaltali í leik. Siauliai er með einn
sigur í neðsta sæti deildarinnar en
tíu lið leika í efstu deild Litháens.
Frábær í fyrsta
sigrinum
Ljósmynd/LKL
Öflugur Elvar Már hefur farið á
kostum í Litháen á tímabilinu.
Grindvíkingurinn Jón Axel Guð-
mundsson var stigahæstur hjá Fra-
port Skyliners þegar liðið heimsótti
meistara Alba Berlín í efstu deild
Þýskalands í körfuknattleik í gær.
Jón Axel skoraði 21 stig en Alba
Berlín vann nokkuð öruggan sigur,
79:66. Þá tók Íslendingurinn tvö frá-
köst og gaf fimm stoðsendingar en
Jón Axel gekk til liðs við þýska fé-
lagið í júlí á þessu ári. Þetta var
fyrsti leikur beggja liða í deildinni á
tímabilinu en Fraport Skyliners er
án stiga í sextánda sæti deildar-
innar. Átján lið leika í efstu deild.
Stigahæstur í
Þýskalandi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skorari Jón Axel var stigahæstur
gegn Þýskalandsmeisturunum.
Knattspyrnulandslið Englands og
Íslands eiga að mætast í Þjóðadeild
UEFA hinn 18. nóvember næstkom-
andi á Wembley í Lundúnum en
samkvæmt enska götublaðinu The
Sun gæti sá leikur verið í hættu
vegna hertra aðgerða stjórnvalda á
Bretlandseyjum vegna kórónuveiru-
faraldursins.
Stjórnvöld á Englandi hafa tekið
til þess ráðs að banna öll ferðalög til
og frá Danmörku eftir að nýtt af-
brigði af kórónuveirunni greindist í
minkum þar í landi. Íslendingar eiga
að mæta Dönum í Kaupmannahöfn í
Þjóðadeildinni þremur dögum áður,
15. nóvember, og þyrfti liðið því að fá
undanþágu til að ferðast til Eng-
lands.
Þá greinir miðillinn frá því að fé-
lagslið á Englandi muni reyna allt
hvað þau geta til að koma í veg fyrir
að leikmenn taki þátt í komandi
landsliðsverkefnum, enda gætu leik-
mennirnir þurft að sæta sóttkví við
heimkomuna til Englands og misst
af leikjum fyrir vikið.
Reglur frá Alþjóðaknattspyrnu-
sambandinu heimila félagsliðum að
banna leikmönnum sínum að mæta í
verkefni landsliða sinna ef þeir þurfa
að fara í sóttkví þegar þeir snúa aft-
ur. Ólíklegt er að veittar verði sér-
stakar undanþágur vegna fram-
kvæmd þessara leikja. Þó nokkrir
leikmenn íslenska landsliðsins spila
á Englandi, þeir Gylfi Þór Sigurðs-
son, Jóhann Berg Guðmundsson,
Jón Daði Böðvarsson og Rúnar Alex
Rúnarsson, og er ólíklegt að þeir fái
leyfi til að ferðast til Danmerkur. Þá
spila fjölmargir danskir knatt-
spyrnumenn á Englandi og líklegt
að Kasper Hjulmand, þjálfari
danska landsliðsins, þurfi að gera
breytingar á hópi sínum en upp-
runalega skipuðu hann níu leikmenn
sem spila á Bretlandseyjum.
Leikurinn gegn
Englandi í hættu
Morgunblaðið/Eggert
Snöggur Raheem Sterling á fullri
ferð á Laugardalsvelli í haust.
Ungverska landsliðið í knattspyrnu
varð fyrir áfalli í gær þegar ljóst
varð að miðjumaðurinn László
Kleinheisler verður ekki með liðinu
er það mætir Íslandi í hreinum úr-
slitaleik í Búdapest um sæti í loka-
keppni EM næstkomandi fimmtu-
dag.
Kleinheisler er 26 ára og leik-
maður Osijek í Króatíu en hann fær
ekki að ferðast í landsleikinn sökum
þess að hann þyrfti að fara í sóttkví
þegar hann kæmi aftur til Króatíu.
Hann á að baki 23 A-landsleiki þar
sem hann hefur skorað þrjú mörk.
Miðjumaðurinn hefur leikið með lið-
um á borð við Werder Bremen,
Darmstad og Astana.
Kleinheisler hefur leikið alla níu
deildarleiki Osijek á leiktíðinni, en
enn ekki skorað mark. Hann lék með
Ungverjum gegn Íslandi á EM í
Frakklandi 2016 og þykir einn af
þeirra bestu mönnum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fjaverandi László Kleinheisler í baráttu við Birki Bjarnason í leik Íslands
og Ungverjalands á EM í Frakklandi. Hann verður ekki með á fimmtudag.
Skarð fyrir skildi
hjá Ungverjum
KNATTSPYRNA
Svíþjóð
Djurgården – AIK ................................... 0:1
Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem
varamaður hjá AIK í uppbótartíma.
Varberg – Hammarby............................. 5:2
Aron Jóhannsson lék allan leikinn með
Hammarby og skoraði mark.
Mjällby – Norrköping ............................. 2:0
Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn
með Norrköping.
Piteå – Rosengård ................................... 0:3
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Umeå – Djurgården ................................ 0:0
Guðrún Arnardóttir og Guðbjörg Gunn-
arsdóttir léku allan leikinn með Djur-
gården.
Uppsala – Kristianstad ........................... 1:4
Anna Rakel Pétursdóttir kom inn á sem
varamaður hjá Uppsala á 64. mínútu
Svava Rós Guðmundsdóttir var ekki í
leikmannahópi Kristianstad, Sif Atladóttir
er í barneignarleyfi. Elísabet Gunnarsdótt-
ir þjálfar liðið.
Noregur
Bodö/Glimt – Aalesund .......................... 7:0
Alfons Sampsted lék fyrstu 88 mínúturn-
ar með Bodö/Glimt.
Davíð Kristján Ólafsson lék fyrstu 84
mínúturnar með Aalesund.
Mjöndalen – Strömsgodset..................... 3:0
Dagur Dan Þórhallsson var ekki í leik-
mannahópi Mjöndalen.
Ari Leifsson lék allan leikinn með
Strömsgodset. Valdimar Þór Ingimundar-
son var ónotaður varamaður.
Viking – Rosenborg ................................ 3:0
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Rosenborg.
Samúel Kári Friðjónsson kom inn á sem
varamaður hjá Viking á 87. mínútu, Axel
ÓskarAndrésson var ónotaður varamaður.
Vålerenga – Odd...................................... 2:2
Matthías Vilhjálmsson kom inn á fyrir
Viðar Örn Kjartansson á 72. mínútu og
skoraði annað mark Vålerenga.
Avaldsnes – Klepp ................................... 3:0
Hólmfríður Magnúsdóttir kom inn á sem
varamaður hjá Avaldsnes á 62. mínútu og
skoraði mark.
B-deild:
Lilleström – Åsane .................................. 1:1
Tryggvi Hrafn Haraldsson lék fyrstu 90
mínúturnar með Lilleström og skoraði
mark. Björn Sigurðarson og Arnór Smára-
son voru ekki í leikmannahópi liðsins.