Morgunblaðið - 18.11.2020, Page 2

Morgunblaðið - 18.11.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Framkvæmdir í Vogabyggð við Elliðaárvog, ein- um helsta uppbyggingarreit íbúðarhúsa í Reykjavík, eru nú í fullum gangi. Áður var á svæðinu eldra iðnaðarhverfi en það víkur nú fyr- ir nútímalegri byggð fjölbýlishúsa. Eins og Morgunblaðið greindi frá í lok októbermánaðar er gert ráð fyrir 1.300 íbúðum í hverfinu í gild- andi aðalskipulagi en væntanlega verður mögu- legt að byggja allt að 1.900 íbúðir í Vogabyggð. Einn helsti uppbyggingarreitur borgarinnar Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Vogabyggð rís og iðnaðurinn víkur Andrés Magnússon andres@mbl.is Fjörlegar umræður spunnust um ráðningar ráðuneytisstjóra í óundir- búnum fyrirspurnum á Alþingi í gær, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs- dóttir, þingmaður Viðreisnar, spurði Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráð- herra um málaferli hennar í fram- haldi af úrskurði kærunefndar jafn- réttismála um ráðningu hennar á ráðuneytisstjóra. Ekki þó síður þeg- ar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, spurði Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra út í sömu mál og sneiðar Lilju til hennar í útvarpsþættinum Sprengisandi um liðna helgi snerust um, ráðningu ráðuneytisstjóra forsætisráðuneyt- isins án auglýsingar. Margir telja orð Lilju til marks um ófrið á stjórnarheimilinu, en for- sætisráðherra kvaðst ekki hafa kynnt sér málið til hlítar. Kjarkaðir stjórnmálamenn Lilja kvaðst þar hafa allan rétt til þess að höfða mál, líkt og lög kveði á um, en sumir stjórnarandstæðingar bera henni á brýn að gera ekki næg- an greinarmun á sjálfri sér og ráð- herraembættinu. Hún vísaði því á bug: „Ef það er orðið svo að stjórnmálamenn séu orðnir hræddir við það að standa með sannfæringu sinni, af hverju eru þeir þá í stjórnmálum? Er það að beita hörku að fara fram á ógildingu í máli sem maður er ekki sammála? Ég spyr bara: Viljum við hafa stjórn- málamenn eða stjórnmálakonur sem hafa ekki kjark eða þor til að standa með því sem þau gera? Mitt svar er einfalt: Nei,“ svaraði Lilja. Vísar pillunni á bug Þórhildur Sunna spurði Katrínu út í orð Lilju í útvarpsþættinum um að hún hefði ráðið Bryndísi Hlöð- versdóttur, fyrrverandi þingmann Alþýðubandalagsins, sem ráðuneyt- isstjóra án auglýsingar, og hvað henni þætti um þá „pillu“. Forsætisráðherra vísaði því sömu- leiðis á bug og sagði að ekki væri um hefðbundna ráðningu að ræða, held- ur flutning milli embætta í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins, sagði þá heimild helgaða af stjórnarskrá og „sú skip- un er algerlega hafin yfir vafa“. Lögspekingar ekki á eitt sáttir Lögspekingar, sem Morgunblaðið ræddi við, voru þó ekki á einu máli um það. Var bent á að sérlög um Stjórnarráðið gengju hinum framar, en þar eru ákvæði um flutning emb- ættismanna innan Stjórnarráðs Ís- lands, sem hin almennu lög upphefji ekki. Aðrir töldu hins vegar að síðari ákvæði í lögunum um starfsmenn ríkisins gengju framar, en þó ylti það á túlkun sérlaganna. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur sýn- ist að heimildin sé fyrir hendi, en meginreglan ætti auðvitað vera sú að auglýsa öll opinber störf, líkt og um- boðsmaður Alþingis hefði brýnt fyrir fólki. Hættan sé sú, að þær undan- tekningar frá auglýsingaskyldu sem heimilar eru, verði reglan í fram- kvæmdinni. Hún telur það þarfnast frekari skoðunar. „Umboðsmaður hefur bent stjórnskipunar- og eftir- litsnefnd Alþingis á að þetta þurfi að athuga og að löggjafinn þurfi að gera upp hug sinn um hver hin almenna regla eigi að vera. Þetta hefur komið til tals á fundum nefndarinnar með umboðsmanni og er álitaefni, sem ég gæti borið undir félaga mína.“ Ráðherrar skiptast á skeytum  Skipanir ráðherra á ráðuneytisstjórum til umræðu á þingi  Álitamál um heimild til flutnings emb- ættismanna inn í Stjórnarráðið án auglýsingar  Þórhildur Sunna telur málið þarfnast frekari skoðunar Katrín Jakobsdóttir Lilja Dögg Alfreðsdóttir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dóms- málaráðherra ætlar á næstunni að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga. Tilgangurinn er að stytta afgreiðslutíma umsókna þeirra sem þegar hafa hlotið vernd í öðru ríki. Áslaug segir í skriflegu svari að mikilvægt sé að þeir sem hingað leita eftir alþjóðlegri vernd fái réttláta og vandaða málsmeðferð. „Fjölgun um- sókna síðustu misseri sýnir hversu mikilvægt er að bregðast við svo að þeir sem þurfa á alþjóðlegri vernd að halda vegna ofsókna fái skjóta með- ferð mála sinna.“ Verndarkerfið þurfi að vera þannig að mál þeirra sem eiga rétt á vernd hér á landi gangi sem hraðast fyrir sig. Hún segir ljóst að stjórnsýslan ráði ekki við að af- greiða þann mikla fjölda umsókna um alþjóðlega vernd sem hingað berast innan ásættanlegs tíma. Kostnaður við framfærslu umsækjenda hafi aukist hratt. Hún segir það einkum valda áhyggjum hve stór hluti umsækjenda hér hefur þegar hlotið alþjóðlega vernd í öðru Evrópuríki. Mikilvægt sé að heildar- málsmeðferðartími allra mála sem koma í verndarkerfið tefjist ekki sak- ir álags vegna afgreiðslu mála þeirra sem þegar hafa hlotið vernd. Frumvarpið mun mæla fyrir um að horfið verði frá því að umsóknir þess- ara einstaklinga verði teknar til efnis- legrar meðferðar á grundvelli undan- tekninga laga um sérstök tengsl og sérstakar ástæður. Til að það sé hægt verði að breyta lögum. „Almennt leiða þessi mál til neikvæðrar niður- stöðu hérlendis en taka lengri tíma en í löndunum í kringum okkur,“ segir Áslaug Arna. Áfram verður þó hægt að taka mál til efnislegrar meðferðar að uppfyllt- um ákveðnum skilyrðum sem eru nú þegar í lögunum, þ.e. að ekki má end- ursenda fólk til svæðis þar sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. „Áréttað skal að eftir sem áður eru ástand og aðstæður í móttökuríki allt- af kannaðar í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd.“ gudni@mbl.is Afgreiðslutími styttist  Undirbýr frumvarp til breytinga á lögum um útlendinga  Umsóknir þeirra sem þegar njóta verndar valda álagi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Meirihlutinn í borgarstjórn felldi í gær tillögur sjálfstæðismanna um aðgerðir til viðspyrnu vegna veiru- kreppunnar. Þær fólu m.a. í sér frestun fast- eignaskatta á fyrirtæki ferða- þjónustu, borg- argjöf til lands- manna, stuðning við húsnæðisupp- byggingu og byggingariðnað, stofnun ráðgjaf- artorgs fyrir fólk í vanda og að skólabörn nytu mat- arþjónustu óháð skerðingu skóla- halds. Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri hafði einn orð fyrir meirihlut- anum og sagði tillöguna gerða af góðum hug en borgin væri með betri svör í vinnslu. Minnihlutinn andæfði því, aðgerða væri þörf og þyldu enga bið. Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði að börn væru send svöng heim úr skóla. Ekki þýddi að segja málið vera í vinnslu í borgarkerfinu. Borgarstjórn felldi tillögu um viðspyrnu Dagur B. Eggertsson  Af góðum hug segir borgarstjóri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.