Morgunblaðið - 18.11.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 18.11.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020 Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Ása Ólafsdóttir og Björg Thor- arensen verði skipaðar dómarar við Hæstarétt Íslands frá og með næsta mánudegi. Taka þær sæti við dómstólinn eftir að Greta Baldurs- dóttir og Þorgeir Örlygsson sóttu um lausn frá embætti í sumar. Með skipun Ásu og Bjargar verða þrjár konur skipaðar við rétt- inn, en í byrjun þessa árs var Ing- veldur Einarsdóttir skipuð dómari. Þar með verða þrjár konur og fjór- ir karlar dómarar við réttinn og hefur það hlutfall aldrei verið jafn- ara. Ása lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1996 og framhaldsnámi í lögfræði frá Cambridge-háskóla árið 2000. Hún starfaði að námi loknu sem lögmaður um árabil og hefur flutt fjölda mála fyrir dómstólum. Frá árinu 2008 hefur Ása lengst af gegnt fullu starfi við lagadeild Há- skóla Íslands, þar af sem dósent frá árinu 2012 og prófessor frá 2018. Ása var settur dómari við Lands- rétt 25. febrúar til 30. júní 2020. Að auki hefur hún sinnt fjölmörgum öðrum störfum, svo sem for- mennsku í gjafsóknarnefnd og óbyggðanefnd. Björg Thorarensen lauk embætt- isprófi í lögfræði frá lagadeild Há- skóla Íslands árið 1991 og fram- haldsnámi í lögfræði frá Edinborgarháskóla árið 1993. Hún starfaði í dómsmálaráðuneytinu um árabil að námi loknu, þar af sem skrifstofustjóri um sex ára skeið. Frá árinu 2002 hefur Björg verið prófessor við lagadeild Háskóla Ís- lands og samhliða því sinnt um- fangsmiklum fræðastörfum, einkum á sviði stjórnskipunarréttar og mannréttinda, en einnig á sviði þjóðaréttar, persónuverndarréttar, stjórnsýsluréttar og sakamálarétt- arfars. Björg var settur dómari við Landsrétt 1. janúar til 30. júní 2020. Skipaðar dómarar við Hæstarétt  Þrjár konur og fjórir karlar við réttinn Skipun Ása og Björg eiga að taka við 21. nóvember næstkomandi. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er gríðarlegt magn í kerfunum á þessum síðasta fjórðungi ársins og í þessu umhverfi fjöldatakmarkana reynir mikið á,“ segir Hörður Jóns- son, framkvæmdastjóri rekstrar- sviðs Póstsins. Innlend netverslun hefur aukist mjög að undanförnu með tilheyrandi fjölgun póstsendinga. Samkomu- takmarkanir hafa ýtt mjög undir innkaup á netinu og miklar annir voru í kringum dag einhleypra í síð- ustu viku. Tafir á póstsendingum til og frá landinu hafa gert það að verk- um að sífellt fleiri leita til íslenskra verslana og búast má við að margir hugsi sér gott til glóðarinnar á tveimur stórum netverslunardögum á næstunni; svörtum föstudegi og net-mánudegi. „Eftir frekar rólegan fyrri hluta ársins hefur mikil aukning verið að undanförnu, sérstaklega í innlendum pakkasendingum,“ segir Hörður. Í október fjölgaði innlendum pakkasendingum um 54% frá sama mánuði í fyrra. Á sama tíma fækkaði pakkasendingum að utan um 25%. Heildarpakkamagn jókst í kringum 20% milli ára í október. Fjölgun hér, fækkun að utan Enn meiri aukning er í kortunum fyrir nóvember. Aukning í innlend- um pakkasendingum nemur rúm- lega 80% milli ára en þeim erlendu fækkar á móti um 14%. „Við spáum heildaraukningu í pakkaflæði í nóv- ember í kringum 43%,“ segir Hörð- ur. Aðspurður kveðst hann telja að jafnara flæði verði í desember enda sé gríðarlegt magn af pökkum í kringum áðurnefnda netverslunar- daga. „Fólk er fyrr á ferðinni að senda gjafir en áður en engu að síður spáum við 60% magnaukningu í inn- lendum pökkum í desember en 16% fækkun að utan. Heildaraukningin gæti því numið 32%.“ Þegar árið verður gert upp kveðst Hörður búast við því að heildarmagn sendinga verði svipað og í fyrra. Um 35% aukning verði á sendingum inn- anlands en um 35% minnkun í send- ingum að utan. Á móti auknum póst- sendingum hér á landi komi þó fækkun í bréfasendingum upp á 20%. „Það má reikna með að jóla- kortum fari enn fækkandi í ár. Þetta er þróunin, bréfasendingum fækkar en pakkamagn eykst.“ Hörður segir að það leyni sér ekki að landsmenn versli meira á netinu þegar þeir eigi erfiðara með að fara í búðir. „Stór hluti af því lendir hjá okkur. Þessi magnaukning í bland við fjöldatakmarkanir er nokkuð erf- ið blanda og það væri óskandi að eitt- hvað færi að rofa til í Covid-inu í des- ember.“ Tugprósenta aukning í pakkasendingum innanlands Morgunblaðið/Árni Sæberg Annir Starfsfólk í Póstmiðstöðinni hefur haft í nægu að snúast síðustu vikur og mánuði. Enn eru fimm vikur til jóla.  Miklar annir hjá Póstinum vegna aukinnar netverslunar á síðari hluta ársins Samkvæmt upplýsingum frá TVG Xpress er met slegið í fjölda send- inga þar á bæ í hverri viku. „Við fórum yfir 100.000 sendingar nú í byrjun nóvember og þá eru stóru dagarnir eftir. Til samanburðar voru sendingarnar um 75.000 allt árið í fyrra,“ segir Hannes A. Hannesson, forstöðumaður fyrir- tækisins. Hannes segir líka áhugavert að skoða hlutfall sendinga frá ís- lenskum netverslunum. „Árið 2019 var hlutfall inn- lendrar netversl- unar um 10% af heildinni hjá okk- ur en í ár er hlut- fallið komið upp í 45%,“ segir hann og kveðst búast við að inn- lendar sendingar verði fleiri en þær erlendu þegar árið verður gert upp. Mikil aukning milli ára HLUTFALL INNLENDRA SENDINGA EYKST HJÁ TVG XPRESS Hannes A. Hannesson Sýnataka á landamærum verður gjaldfrjáls tímabundið frá 1. desember til 31. janúar á næsta ári. Þetta hefur Svandís Svav- arsdóttir heil- brigðisráðherra ákveðið, en greint er frá þessu í tilkynningu frá ráðuneytinu. Rætt var um málið á fundi rík- isstjórnarinnar í gærmorgun. Ákvörðunin er tekin í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis, en markmiðið er að hvetja fólk til að fara í sýnatöku fremur en að fara í sóttkví og þannig draga úr líkum á að smit berist inn í landið, segir í tilkynningunni. Þar kemur fram að sótt- varnalæknir hafi vísað til þess í minnisblaði sínu til ráðherra að kviknað hafi sá grunur að ferða- menn væru ekki að fylgja reglum um sóttkví, sérstaklega þegar um væri að ræða ferðamenn sem ein- ungis ætla að dvelja hér á landi í nokkra daga. Lagði sóttvarnalæknir til að annaðhvort yrði öllum gert skylt að fara í skimun nema lækn- isfræðilegar ástæður mæltu gegn því eða að ekki yrði tekið gjald fyrir skimun á landamærum. Var nið- urstaða ráðherra að fara eftir seinni tillögunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Frá Leifsstöð Flestir velja tvöfalda skimun við komuna til landsins. Skimun við komuna gjaldfrjáls  Áfram verður val um 14 daga sóttkví Svandís Svavarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.