Morgunblaðið - 18.11.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 18.11.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020 Ívar Pálsson viðskiptafræðingurritar á blog.is: „Helsti andstæð- ingur jákvæðrar byltingar í notkun nýorkubíla á Íslandi er borg- arstjórnarmeiri- hlutinn í Reykjavík, Dagur & Co. Nú þegar þannig bílar seljast æ betur, setja andstæðingarnir fulla orku í það að taka vegina undir annað næstu ára- tugina og láta okkur öll þar að auki borga ótrúlega blóðpeninga fyrir þau 4-5% sem nýta munu kerfið, svokallaða Borgarlínu.    Nú, árið 2020 fóru nýskráningarnýorkubíla yfir 50% allra fólksbíla í fyrsta sinn í Íslandssög- unni og stefna hærra. En sá vöxtur fær snöggan endi um leið og fram- kvæmdir við Borgarlínu hefjast, enda standa nýju nýorkubílarnir jafnkyrrir og gamlir dísiljálkar í hundraða bíla röð á einu akreininni sem eftir verður við hliðina á tómu strætólínunni. Það væri við hæfi að Dagur borgarstjóri og ídealista- elítan hans fengi að aka á Borg- arlínu-rásinni með sérmerki eins og ráðamenn í Sovét forðum, svo að við almenningur í biðröðunum gæti séð hver ræður þessari dæmalausu vitleysu.    Hvað þarf til, svo að fólk neiti aðverða meðvirkt í Borgarlínu- ruglinu? Segið því stjórnmálafólki sem þið ætlið að kjósa að þetta gangi ekki upp. Fáið skýr svör frá hverjum og einum, sem skýla sér bak við óskýrar nefndir og flokka. Hreint út, styður þú Borgarlínuna eða ekki? Þar dugir ekkert Þor- gerðar-Katrínar Reykás-svar, já- nei-jú-en-þó-ekki-já-alveg.    Fyrir mitt leyti segi ég afgerandiNEI við Borgarlínunni en JÁ við nýorkubíla-byltingunni!“ Ívar Pálsson Byltingu eða borgarlínubruðl? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Umferðin á höfuðborgarsvæðinu jókst talsvert í síðustu viku frá síð- ustu viku þar á undan, eða um 4,4%. Samt sem áður er umferðin tæplega 20% minni en í sömu viku á síðasta ári. Áhrif kórónuveirunnar á umferð hafa sem sagt ekki minnkað. Vegagerðin ber saman umferðina á þremur lykilmælisniðum á höfuð- borgarsvæðinu á milli sömu vikna í fyrra og núna. Þessi samanburður leiðir í ljós að umferðin í síðustu viku var 4,4% meiri en í sömu viku fyrir ári. Þetta segir Vegagerðin að sé svipuð hegðan og jafnan, það er að segja að umferðin í 46. viku sé svipuð og í 43. viku. Það var raunin í fyrra og einnig árið þar á undan. Það breytir því ekki að ekki hefur orðið breyting í samdrætti á umferð- inni á milli ára. Umferðin var um 19,5% minni í síðustu viku en í fyrra. Er það sama hlutfall og verið hefur að undanförnu. Mest breyting við Kópavogslæk Af þessum þremur mælisniðum hefur umferðin minnkað minnst á Reykjanesbraut eða 14,1% en mest um mælisnið við Kópavogslæk, eða 27,7%. Þetta er í takt við það sem hefur verið að gerast nánast allt þetta ár, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. helgi@mbl.is Smá fjörkippur kom í umferðina  Samt hefur umferðin á höfuðborg- arsvæðinu minnkað um tæp 20% Morgunblaðið/Júlíus Reykjanesbraut Venjulega er þung umferð til móts við Smáralind. Hugmyndir malasíska milljarða- mæringsins Vincents Tan um 40 milljarða uppbyggingu á Miðbakka við Gömlu höfnina voru ræddar á fundi stjórnar Faxaflóahafna síðast- liðinn föstudag. Í bókun áréttuðu 7 af 9 fulltrúum, Kristín Soffía Jónsdóttir, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Skúli Þór Helgason, Daníel Ottesen, Ragnar B. Sæ- mundsson, Magnús Smári Snorra- son og Ólafur Adolfsson umsögn Faxaflóahafna um fyrirspurn Yrkis arkitekta varðandi mögulega upp- byggingu á reitum 11, 13 og 15 við Geirsgötu. Í umsögninni var hug- myndum um uppbyggingu hafnað. Segja fulltrúarnir að ljóst sé að hug- myndirnar samræmist engan veginn stefnu Faxaflóahafna varðandi framtíðarskipulag á Miðbakkanum. Örn Þórðarson og Marta Guðjóns- dóttir, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í stjórn Faxaflóahafna, „harma málsmeðferð þá sem viðhöfð var þegar lóðarhafi á Geirsgötu 11 vildi leita eftir samstarfi við hafnarstjórn og borgaryfirvöld vegna hugmynda um uppbyggingu á Miðbakka“. Eðli- legt hefði verið að ræða málið í hafn- arstjórn og leyfa kynningu á áform- um lóðarhafa og áhuga. Fulltrúarnir lýsa yfir vilja til samtals við áhuga- sama aðila sem hagsmuni eiga þar. „Óskað er eftir því að málið, út- færslur þess og önnur uppbygging- aráform á svæðinu fái þá kynningu í stjórn Faxaflóahafna sem nauðsyn- leg er talin. Sömuleiðis að neikvæð umsögn hafnarstjórnar verði aftur- kölluð án tafar. Málið þarf að af- greiða með réttum hætti,“ segja Örn og Marta í bókun sinni. Sem kunnugt er vill Vincent Tan reisa 33.500 fermetra hús á Mið- bakka, þar sem yrði m.a. að finna 150 herbergja lúxushótel. sisi@mbl.is »ViðskiptaMogginn »2 Árétta umsögnina um Miðbakkann  Minnihlutinn vill að umsögnin verði afturkölluð strax Mynd/Yrki arkitektar Nýbygging Þannig sjá arkitektarnir bygginguna fyrir sér á Miðbakka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.