Morgunblaðið - 18.11.2020, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020
Fenix
• Slitsterkt og hitaþolið yfirborðsefni
• Silkimjúk áferð við snertingu
• Sérsmíðum eftir máli
Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
SPURT &
SVARAÐ
BEINT
o p i n n f u n d u r m e ð B j a r n a
B e n e d i k t s s y n i
Á F a c e b o o k - s í ð u
S j á l f s t æ ð i s f l o k k s i n s
í d a g k l . 1 1 . 4 5
f a c e b o o k . c o m / s j a l f s t a e d i s x d . i s
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Hafrannsóknastofnun opnar í byrj-
un nýs árs nýja starfsstöð í Nes-
kaupstað. Auglýst hefur verið eftir
tveimur starfsmönnum þar í störf
sérfræðings og rannsóknamanns á
uppsjávarsviði. Í fyrstu verða verk-
efnin aðallega tengd sjávarafla en
svo er reiknað með að verkefni á
sviði fiskeldis bætist við, samkvæmt
upplýsingum frá Sigurði Guðjóns-
syni, forstjóra Hafrannsóknastofn-
unar.
Starfsstöðin verður til húsa í húsi
sem kallað er Múlinn og þar verða
fleiri þekkingaraðilar eins og Matís
og Náttúrustofa Austurlands. Mikl-
ar framkvæmdir hafa staðið yfir við
húsið, sem stendur við Bakkaveg 5 í
Neskaupstað þar sem verslunin
Nesbakki var áður til húsa. Húsinu
hefur verið breytt og byggt við það
til að hýsa skrifstofuklasa og miðstöð
nýsköpunar í Neskaupstað.
Mikill áhugi reyndist fyrir því að
fá aðstöðu í húsinu, en gert er ráð
fyrir að Múlinn verði allt að 30
manna skapandi vinnustaður. Sam-
vinnufélag útgerðarmanna í Nes-
kaupstað, SÚN, stofnaði félag um
framkvæmdina en undirbúningur
verkefnisins hefur tekið nokkur ár.
Ellefta starfsstöðin
Starfsstöðvar Hafrannsókna-
stofnunar eru nú tíu talsins að höf-
uðstöðvunum í Fornubúðum 5 í
Hafnarfirði meðtöldum. Stöðin í
Neskaupstað verður ellefta starfs-
stöð Hafró og sú fyrsta á Austur-
landi. Útibúin eru á Akureyri,
Grindavík, Hvammstanga, Hvann-
eyri, Ísafirði, Ólafsvík, Selfossi,
Skagaströnd, í samstarfi við BioPol,
og í Vestmannaeyjum.
Nú starfa rúmlega 170 starfsmenn
á stofnuninni, til sjós og lands,
nokkrir þeirra í hlutastarfi. Á skip-
unum eru tæplega 40. Um 25 stöður
eru á landsbyggðinni.
Múlinn Þar sem áður var verslun verða skrifstofur og miðstöð nýsköpunar.
Opna starfsstöð
í Neskaupstað
Aðstaða Hafró í nýju þekkingarsetri
Árið 2007 uppgötvaðist í fyrsta sinn
fjólublá litabreyting í beinum í ís-
lenskum ref. Liturinn kom aftur
fram árið 2013 og svo á hverju ári
síðan. Á Hrafnaþingi Náttúru-
fræðistofnunar verður kl. 15.15 í dag
fjallað um þessa litabreytingu og
tíðni hennar, sem Julian Ohl, um-
hverfis- og auðlindafræðingur, kall-
ar íslensku ráðgátuna.
Í fyrirlestrinum fjallar Julian um
meistaraverkefni sitt í umhverfis- og
auðlindafræði við Háskóla Íslands
sem hann vann að hjá Náttúru-
fræðistofnun Íslands. Í verkefni
Julians voru fjólublá kjálkabein í ís-
lenskum refum í fyrsta sinn tekin til
mælinga og kortlögð, að því er segir
í ágripi á heimasíðu NÍ.
Búa á strandsvæðum
Í ljós kom að fjólublái liturinn
tengdist hvorki veiðiaðferð né með-
höndlun við geymslu hræja eða
hreinsun beina. Refir með litabreyt-
inguna reyndust búa á strandsvæð-
um og fá megnið af fæðu sinni úr
hafinu. Flest dýrin voru frá Vest-
fjörðum, einkum úr Súðavíkur-
hreppi.
Orsök litabreytinganna var ekki
rannsökuð. Engu að síður voru þrjár
mögulegar orsakir lagðar til grund-
vallar og þær ræddar: (1) umhverfis-
mengun, (2) litarefni þörunga frá
Drangajökli sem berast í fæðukeðj-
una og (3) litarefni úr kræklingaskel.
aij@mbl.is
Ljósmynd/Julian Ohl
Melrakki Kjálkabein úr íslenskum refum, fjólublá litabreyting til hægri.
Fjólublá bein í
vestfirskum refum
Fá megnið af fæðu sinni úr hafinu