Morgunblaðið - 18.11.2020, Side 14

Morgunblaðið - 18.11.2020, Side 14
14 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020 ✝ Magnús Hall-grímsson verk- fræðingur fæddist á Akureyri 6. nóv- ember 1932. Hann lést á Landakoti 8. nóvember 2020. Foreldrar hans voru Hallgrímur Einarsson, f. á Akureyri 1878, d. 1948, ljósmyndari á Akureyri, og s.k.h., Laufey Jónsdóttir, f. á Klausturhólum í Grímsnesi 1907, d. 1953, húsfreyja á Akureyri. Alsystkini Magnúsar: Ólafur, f. 1934, tauga- og geðlæknir, búsettur í Noregi; Eygló Sigur- björg, f. 1936, fyrrv. starfs- maður á Landakoti og við LSH, og Einar Thorlacius, f. 1941, d. 1997, skipasmiður í Njarðvík. Hálfsystkini Magnúsar, sam- feðra, voru Einar Thorlacius, f. 1912, d. 1938; Ásta, f. 1914, d. 1916; Jónas, f. 1915, d. 1977, ljósmyndari á Akureyri; Olga Þorbjörg, f. 1917, d. 2010, klæðskerakjólameistari og bankamaður í Reykjavík; Krist- ján Vilhelm, f. 1919, d. 1963, ljósmyndari á Akureyri; Gyða Vilhelmína, f. 1922, d. 2017, húsfreyja í Noregi, og Ástríður Marta, f. 1924, d. 1944, mennta- skólanemi. Eiginkona Magnúsar var Hlíf Ólafsdóttir, f. 23.11. 1927, d. 30.5. 2012, lífeindafræðingur. Foreldrar hennar voru hjónin Ólafur Bjarnason, f. 1889, d. 1982, hreppstjóri og bóndi á Brimilsvöllum í Fróðárhreppi, og Kristólína Kristjánsdóttir, f. 1885, d. 1960, húsfreyja. Synir Magnúsar og Hlífar eru Hörður, f. 21.2. 1965, við- skiptafr. MBA, rekstrarstjóri Útilífs-verslananna, kona hans er Linda Björk Þórðardóttir líf- eindafræðingur, börn þeirra Óskar Magnús, f. 2000, og Ásta Hlíf, f. 2002; Hallgrímur, f. 24.5. 1966, tæknifræðingur hjá Íslenskum fasteignum, kona hans er Elín S. Sigurðardóttir, frkvstj. sölusviðs Arcanum- Fjallaleiðsögumenn, og eru börn þeirra Snædís, f. 2002, síðar við friðargæslu og upp- byggingu innviða á vegum SÞ og Nato í ríkjum gömlu Júgó- slavíu. Þá var hann yfirmaður yfir fjármögnun, skipulagningu og uppbyggingu raforkukerfa í Kósovó, 1999-2003. Magnús sat í Fagráði Land- verndar frá 2004, í stjórn Land- verndar 2006-2010, var vara- formaður Jöklarannsóknafélagsins frá 2004 til 2020 og sat í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs 2007- 2010. Hann sat í stjórn Hönn- unar 1963-75 og í stjórn Verk- fræðingafélags Íslands 1985-87. Magnús var brautryðjandi í vetrarskíðaferðum um hálendi Íslands, mikill fjallamaður og félagi í Íslenska alpaklúbbnum. Hann var einn af stofnendum Flugbjörgunarsveitarinnar á Akureyri 1951 og sat í stjórn Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík um árabil. Hann kenndi björgunarsveitum um land allt snjóflóðabjörgun og björgunartækni í frístundum um áratuga skeið. Hann var ævilangt skáti, var sveitarfor- ingi í Skátafélagi Akureyrar 1948-52, foringi Félags Ak- ureyrarskáta í Reykjavík 1952- 56 og stofnaði skátafélag í flóttamannabúðunum á Galang 1980. Magnús fékk margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín og var m.a. sæmdur ridd- arakrossi hinnar íslensku fálka- orðu 2003, virðingarmerki Bandalags íslenskra skáta, BÍS, fyrir neyðarhjálp í Eþíópíu 1986, silfur-þjónustumerki, BÍS 2007, gull-þjónustumerki BÍS 2009, heiðursmerki Verkfræð- ingafélags Íslands 2003, gull- merki Flugbjörgunarsveit- arinnar, var heiðursfélagi Flugbjörgunarsveitarinnar frá 2000 og Jöklarannsókna- félagsins frá 2010 og var sæmd- ur Jöklastjörnunni. Þá hlaut hann þrívegis NATO Medal for Service fyrir starf að frið- argæslu í Kósovó 1999-2002. Magnús verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík 18. nóvember kl. 13. Streymt verður frá athöfn- inni á Youtube og er nóg að leita þar að Magnús Hall- grímsson. rb.gy/oxxkil Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á https://www.mbl.is/andlát Magnús Snær, f. 2005, og Halldís Ylfa, f. 2009. Magnús lauk stúdentsprófi frá MA 1952, fyrri- hlutaprófi í verk- fræði frá HÍ og meistaraprófi í byggingaverkfræði við Polyteknisk Læreanstalt DTK 1963. Magnús stundaði margvísleg verkfræðistörf hér á landi sem erlendis sem mörg tengdust virkjunum og raflínum þeim tengdum. Magnús var aðstoð- armaður í vísindaleiðangri dr. Lauge Kochs á Norðaustur- Grænlandi sumarið 1953. Magnús vann sem staðarverk- fræðingur og mælingamaður hjá Sameinuðum verktökum á Straumnesfjalli og Heiðarfjalli 1955-56, mælingamaður hjá Vita- og hafnarmálastjóra 1957-61 og sem verkfræðingur þar frá 1963. Hann stofnaði svo verkfræðistofuna Hönnun ásamt fleirum 1963 og starf- rækti hana til 2000. Magnús starfaði við jarðgufuvirkjun í Olkaria í Kenýa og við há- spennulínu í Súrínam í Suður- Ameríku. Hann starfaði auk þess sjálfstætt að marg- víslegum verkefnum hér heima frá 1987, s.s. undirbúningi að virkjunum, línuhönnun og lagn- ingu, skolplögnum og fjölda annarra stórverkefna. Hann sá um framkvæmd Kristnihátíð- arinnar á Þingvöllum fyrir for- sætisráðuneytið árið 2000. Hann var einn af stofnendum verkfræðisamsteypunnar Virk- is 1969. Stóran hluta starfsævinnar var Magnús við ýmis hjálp- arstörf erlendis, hann reisti og starfrækti flóttamannabúðir og skipulagði aðra neyðarhjálp á vegum Rauða krossins, meðal annars í Indónesíu 1980, Eþíóp- íu 1984-1985, Erítreu 1990, Jórdaníu 1990, Írak og Kúrdist- an 1991 og Aserbaídsjan 1996. Magnús starfaði sem yfirverk- fræðingur friðargæslu SÞ í Suður-Líbanon 1992-1996 og Það var illa gert af þér, mikið illa gert, Maggi minn, að kveðja okkur núna. Þessi kveðjuorð sr. Hallgríms Thorlacíusar, afa okkar í Miklagarði, eru mér ofarlega í huga. Ekki ferðu frá kornungri konu og hráblautum börnum, eins og Kristján í Leyningi forðum. En það kemur út á eitt. Ég sakna þín og við söknum þín öll, svo djúpt ertu grafinn í sál mína og hjarta. Hvernig gat það orðið á annan veg ef litið er til fyrstu minninga með ykkur bræðrum, – nýkominn sex ára gamall í mína fyrstu Noregs- ferð. Höfuðborgin fánum skrýdd 2. júlí á afmælisdegi okkar Ólafs konungs. Skyndileg tók lítil ísveisla óvænta stefnu því fyrir því var aldargömul hefð að íslenskir ung- sveinar gengju á fund konungs við fyrstu komu í hans ríki. Í kon- ungsgarði voru rammgerð hlið sem féllu hvert af öðru þegar bræðurnir báru upp erindið og brugðu upp orðsins brandi. Hver á svona móðurbræður? Ef troðin slóð var í boði þá tók Maggi þá ótroðnu hvort sem það voru fjöll og firnindi eða aðrir gagnvegir. Maggi var snemma víðförull bæði í eigin landi og um öll heimsins ból. Sem sögumanni var honum einkar lagið að gera fjarlægðir ljóslifandi, kryddað með djúpum sögulegum fróðleik. Ekkert var sjálfsagðara en að sitja kjurr á sama stað en samt að vera að ferðast. Þegar mér óx fisk- ur um hrygg á mínum eigin ótroðnum slóðum um fjallasali ís- lenskrar náttúru eða aðra heims- ins garða þá spratt upp þessi sér- kennilega tilfinning, – hef ég ekki verið hér áður? Ungur nemur, gamall temur. Þannig upplifði maður sannleikann í orðum skáldsins; þegar jökla ber við loft hættir landið að vera jarðneskt og það er ekki bara jörðin heldur líka maður sjálfur sem fær hlutdeild í himninum. Á ferðalögum með Magga var kennt og boðað að náttúra Íslands gæfi bæði heita og kalda kossa. Heitt eða kalt, sumar eða vetur, blautt og þurrt; allt var þetta hluti af guðdómi náttúrunn- ar. Náttúran var alls staðar söm við sig og ef hún var lesin rétt á einum stað þá gagnaðist það á öll- um öðrum. Þetta vissi sá sem hafði víða ratað. Það ríkti ekki alltaf himneskur friður þar sem Maggi lét hendur standa fram úr ermum. Það skipti Magga engu hver hafði gert hverjum hvað eða hvers vegna. Saklausu fólki blæddi út í eiginlegri og óeiginlegri merk- ingu. Maggi var einstaklega úrræða- góður bæði í stóru og smáu og reyndist alltaf Þrándi í götu háll sem áll hvort sem hann birtist sem alvopnaður hershöfðingi eða bara opinbert möppudýr. Það var fyrst og fremst vegna þess að Maggi var hreinskiptinn, orðheldinn, hjálpsamur, og enginn þekkti bet- ur gagnvegi til góðra vina og góðra verka. Slíkur orðstír deyr aldrei. Við söknum þín öll. Hallgrímur Óskar Guðmundsson. Magnús Hallgrímsson, vinur minn og frændi, hefur lagt upp í sína hinstu för. Bróðir Magga, Ólafur, var skólabróðir og æskuvinur minn frá sjö ára aldri. Það var á há- skólaárunum 1953-’56 að leiðir okkar Magga lágu meira saman, auðvitað mest á fjöllum. Akureyr- arskátar héldu hópinn fyrir sunn- an í nokkur ár. Blundandi fjalla- bakterían ýtti við okkur er leið á vetur og við fórum að leggjast út um páska. Árið 1954 í skála Fjalla- manna í Tindfjöllum og 1955 á Fimmvörðuhálsi og í Þórsmörk. Við vorum sex í páskaferðinni 1956 (24.-29. mars), auk okkar Magnúsar: Eiríkur P. Sveinsson, Haukur Kr. Árnason, Leifur Jóns- son og Óli B. Hannesson, allir læknastúdentar. Þetta var göngu- og skíðaferð frá Gullfossi norður yfir Hofsjökul til Akureyrar. Áfangarnir voru Hvítárnes, Kerl- ingarfjöll, Laugafellsskáli og Eyjafjörður. Vistir til 14 daga, far- angur 35-40 kg á mann, allt borið á bakinu. Jökulgangan var löng og ströng, upp Blágnípujökul norð- austur yfir hábunguna (tæplega 1.800 m) með stefnu austan Ill- viðrahnúka að Laugafellsskála, sem við náðum eftir um 80 km göngu á 23 klst., þar af um 40 km á jöklinum. Hlýtt var, þungt færi og niðaþoka, en náðum norður af um miðnætti þar sem að var stefnt. Þokulaust, tunglsljós speglaðist í vatnsflaumi norðan jökuls. Eftir góða hvíld og mat var öslað á skíð- unum nokkra km í krapasulli eða vatnselg, stundum í miðja leggi. Sáum skálann kl. 8 í sólskini, hitn- aði þá um hjörtun, en kalt var til fóta. Eftir sólarhrings hvíld var gengið niður Vatnahjalla að Hóls- gerði og ekið til Akureyrar. Ógleymanlegri ferð var lokið. Oddur Sigurðsson jarðfræðing- ur segir að þetta hafi verið „… fyrsti leiðangur Íslendinga yfir Hofsjökul“. (Árbók FÍ 2001, bls. 207.) Fimmtíu árum seinna fórum við afmælisferð sömu leið yfir jök- ulinn í mesta jökladreka landsins, ICECOOL, sex hjóla breyttum Econoline. Eigandinn og hönnuð- urinn, Gunnar Egilsson, hafði þá nýlega ekið fyrstu ferð sína um Suðurskautslandið. Með okkur í þessa afmælisferð fóru einnig Ólafur Hallgrímsson og Hallgrím- ur Magnússon. Hlíf og Magnús fögnuðu 155 ára sameiginlegu afmæli sínu árið 2007. Þá var glatt á hjalla og bjart til fjalla. Að lokum: Þú varst aldrei kenndur við vín eða víf uns dag einn að vori þú kvæntist Hlíf. Bæði fögnuðu að vonum tveimur brattgengum sonum. Hvort bíður nú ykkar - annað líf? Með samúðar- og fjallakveðju til fjölskyldunnar. Jóhann Lárus Jónasson. Ein af mínum fyrstu minning- um af ömmubróður mínum, Magnúsi Hallgrímssyni, er frá tjaldstæði á Snæfellsnesi, líklega ekki langt frá átthögum Hlífar eiginkonu hans. Mývargur gerði stórfjölskyldunni lífið leitt þrátt fyrir blíðviðri. Maggi sat fyrir utan tjald sitt, smurði brauðsneið í rólegheitum og heilsaði með venjulegum hætti: „Sæll frændi!“ Mér varð starsýnt á brauðsneiðina sem varð æ svart- ari af flugu eftir því sem meira var smurt… og þetta át Maggi síðan auðvitað af bestu lyst. Ég skildi snemma að frændi minn lét ekki smámuni vefjast fyrir sér. Nokkrum áratugum síðar var ég kominn í dómarasæti og í þágu meðferðar málsins átti að taka símaskýrslu af yfirumsjónar- manni Kristnihátíðar á Þingvöll- um. Á hinum endanum svaraði Maggi og heilsaði dómaranum með sínum venjulega hætti. Hvað sem leið „áminningum um sann- sögli“ og öðrum tilraunum til formlegheita líktist áframhaldið einnig fremur því að við frændur hefðum hist á förnum vegi en há- tíðlegum framburði fyrir dómi – ekki síst eftir að Maggi lauk skýrslunni með því að biðja fyrir kveðjur heim til dómarans! Auð- vitað vissi Maggi „sem víða hafði ratað“ vel hvernig rétt var talið að haga sér við þessar aðstæður og aðrar. En hvers kyns tildur, titla- tog og önnur látalæti voru honum ekki að skapi. Eitt sinn, er við gengum upp Karl Johann í Ósló, fékk Maggi þá hugmynd að líta við hjá kónginum, frænda okkar, að fornum sið. Ein- hver samskipti átti Maggi við hallarverði af þessu tilefni en ekki var okkur þó boðið í bæinn að þessu sinni! Maggi kom fram við fólk af sömu virðingu hvort sem viðmælandinn var átta eða átt- ræður, hershöfðingi eða hirðingi, þessarar þjóðar eða annarrar. Ævi Magga var í Íslendinga- eða jafnvel fornsöguanda, með brautryðjendaferðum á hálendi Íslands frá unga aldri og síðar fjöl- mörgum verkefnum erlendis í þágu friðar og mannúðar. Vonandi verður úr að minningar þessa æv- intýrilega lífshlaups komi út. Maggi hafði stórt hjarta en það kom fremur fram í athöfnum en orðum, ekki síst natni og þolin- mæði við ættgarðinn sem ég naut góðs af. Alltaf hafði Maggi tíma, hvort sem erindið var hjálp við menntaskólastærðfræði eða bolla- leggingar um ferðir eða leiðangra. Hjá Magga voru aldrei nein „vandamál“ heldur einungis verk- efni til að leysa. Maggi atti oftar en einu sinni kappi við dauðann og hafði betur með þeirri einstöku þrautseigju Magnús HallgrímssonElskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA INDRIÐADÓTTIR, Mimma frá Gilá, saumakona, Hátröð 7, Kópavogi, andaðist á Landspítalanum miðvikudaginn 4. nóvember. Starfsfólki er þökkuð ástúðleg og kærleiksrík umönnun. Vegna aðstæðna verða eingöngu nánustu aðstandendur viðstaddir útför. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Menntunarsjóð Mæðrastyrksnefndar, kt. 660612-1140, reikn. 515-14-407333. Gylfi Sveinsson Sigríður Anna Þorgrímsdóttir Guðbjörg Sveinsdóttir Kristín Sveinsdóttir Einar Oddgeirsson Jóna Sveinsdóttir Lárus Óli Þorvaldsson Sveinn Goði Sveinsson Silja Viem Thi Nguen barnabörn og barnabarnabörn Elsku mamma okkar, tengdamóðir og amma, MARÍA JÓNSDÓTTIR frá Kirkjulæk, verður jarðsungin frá Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð föstudaginn 20. nóvember klukkan 14. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Athöfninni verður útvarpað á staðnum á FM 106,1 og streymt á Facebook, https://www.facebook.com/groups/mariajonsdottir Fjölskyldan þakkar starfsfólki Kirkjuhvols fyrir frábæra umönnun og hjartahlýju. Þeir sem vilja minnast hennar eru beðnir að láta Hjúkrunarheimilið Kirkjuhvol njóta þess. Halldóra Ólafsdóttir Svavar Ólafsson Steinn Ingi Ólafsson Ewa Mezyk Sigurbjörg Ág. Ólafsdóttir Grétar Markússon Ingibjörg Elfa Sigurðardóttir Hjálmar Ólafsson Vigdís Guðjónsdóttir Kristín Ólafsdóttir Valdimar Guðjónsson Álfheiður Ólafsdóttir Þrándur Arnþórsson og ömmubörnin öll Yndisleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, dóttir, tengdadóttir, systir og mágkona, HELGA INGÓLFSDÓTTIR, byggingariðnfræðingur og tækniteiknari, Strýtuseli 3, Reykjavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu 14. nóvember. Sérstakar þakkir fær heilbrigðisstarfsfólk fyrir einstaka umönnun og hlýju. Jarðarförin verður auglýst síðar. Arnar Guðmundsson Þorri Arnarsson Marín Líf Gautadóttir Óðinn Arnarsson Hildur Helgadóttir Guðlaug Birna Hafsteinsd. Steinn Halldórsson Ingólfur Helgi Matthíasson Sóley Birgisdóttir Guðmundur Jóhannesson Bergljót Helga Jósepsdóttir Jóhanna Steinsdóttir Þorkell Guðmundsson Halldór Steinsson Camilla Mortensen Hafsteinn Steinsson Elín K. Linnet Heiða Rún Steinsdóttir Hugrún Ósk Bjarnadóttir Rut Ingólfsdóttir Gísli Már Ágústsson Máni Ingólfsson Gerða Arndal Hrói Ingólfsson Elsku pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi, ÞÓRÐUR JAKOB SIGURÐSSON útgerðarmaður, Fjarðargötu 35, Þingeyri, lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði 5. nóvember. Útförin fer fram frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 21. nóvember klukkan 14. Vegna fjöldatakmarkana geta aðeins nánustu ættingar verið viðstaddir útförina. Athöfninni verður streymt á slóðinni: https://www.youtube.com/watch?v=t7WFWoDhNw4 Björnfríður Fanney Þórðard. Lars Guðmundur Hallsteins. Sigríður Fjóla Þórðardóttir María Dagrún Þórðardóttir Vigfús Jónsson barnabörn og barnabarnbörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.