Morgunblaðið - 18.11.2020, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.11.2020, Blaðsíða 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020 ✝ LárettaBjarnadóttir var fædd í Reykja- vík 24. apríl 1942. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 4. nóvember 2020. Foreldrar henn- ar voru Bjarni Maríus Einarsson leigubílstjóri, frá Geldingalæk á Rangárvöllum, f. 1913, d. 1965, og Ásta Stef- ánsdóttir húsfreyja, frá Kálfs- hamarsvík á Skagaströnd, f. 1913, d. 1965. Systkini: Bjarni Þórir, f. 1937, d. 1995, Guð- björg Greta, f. 1940, Einar, f. 1944, d. 1946, og Einar, f. 1951. Láretta giftist 5. september 1959 Guðmundi Grími Jónssyni sælgætisgerðarmanni m.m., f. 18. nóvember 1937, d. 3. mars 2014. Börn þeirra eru 1) Bjarni, f. 1960, kvæntur Britt- Marie Gudmunds- son, þau búa í Stokkhólmi. 2) Guðmundur, f. 1965, kvæntur Rakel Bergsdóttur, þau búa í Mosfells- dal. Börn þeirra eru a) Rós, f. 1991, börn henn- ar eru Arnar Leó Birkisson, f. 2008, og Alexandra Ýr Birki- sdóttir, f. 2011. b) Bjarni, f. 1995, c) Sonur Rakelar er Pét- ur Ingi, f. 1986. 3) Lára, f. 1966, sambýlismaður hennar er Hörður Harðarson og búa þau í Reykjavík. Börn hennar eru Guðmundur Páll Hreiðarsson, f. 1986, Aníta Sólrún Hreið- arsdóttir, f. 1988, og Hinrik Darri Ellertsson, f. 1999. 4) Jó- hann, f. 1973. Sambýliskona hans er Thu Thi Nguyen. Þau búa í Hafnarfirði. Börn Jó- hanns eru Halldór Mar, f. 1994, Alex Nguyen, f. 2013, og Sandra Ngueyen, f. 2015. Láretta, eða Lallý eins og hún var oftast kölluð, bjó fyrstu árin sín á Seljaveginum, síðar í Fort Knox og frá níu ára aldri bjó fjölskyldan í Hólmgarðinum. Árið 1958 hóf Lallý störf hjá sælgætisgerð- inni Nóa Síríusi þar sem hún kynntist Guðmundi, þá 16 ára gömul. Ári seinna gengu þau í hjónaband og þurftu þau svo- kallað forsetabréf til að mega giftast. Eftir að hún giftist og stofnaði fjölskyldu með Guð- mundi voru þau dugleg að flytja búferlum bæði innan- lands sem og erlendis. Síðustu árin bjuggu Lallý og Guð- mundur lengst af í Grafarvogi í Reykjavík. Útför Lárettu fer fram í Grafarvogskirkju í dag, 18. nóvember 2020, kl. 13 og verð- ur streymt á fésbókarsíðu Grafarvogskirkju. Þegar við vorum börn fannst okkur Lallý frænka umvafin æv- intýrum. Hún bjó uppi í Gufu- nesi, þar var sveit og ævintýra- land. Lallý bjó til svo góðan mat með ævintýrabragði. Hún bjó til sælgæti og hlaup og gaf stærri gjafir en við almennt þekktum. Okkur fannst við alltaf í uppá- haldi hjá frænku. Okkur þótti óendanlega vænt um hana. Lallý kunni flest og var forkur dugleg. Hún sá um matinn í fermingarveislunni okkar systk- inanna. Hún vann alls kyns mat og sælgæti frameftir öllum aldri. Hún tók t.d. myndarlega á móti öllum saumaklúbbnum þegar hún bjó á Blönduósi, fyrir tiltölu- lega fáum árum. Hún var ýmist framkvæmdastjóri eða ráðgjafi í flestum veislum í ættinni, ef hún yfirhöfuð var á landinu. Ævin- týra- og athafnaþráin bar þau Gumma víða, tvisvar til Svíþjóðar til lengri dvalar og um landið þegar þau voru hér heima á klak- anum. Lallý og Gummi giftust 1959. Hún var nýorðin sautján ára og þurfti forsetabréf til að fá að gift- ast. Þau höfðu verið gift í 55 ár þegar Gummi dó 2014. Missirinn var Lallý afar erfiður. Þó birti til og í minningunni lifa skemmti- legar ferðir í leikhús og á ætt- armót. Undir lokin var frænka orðin mjög veik og lasburða. Athafna- konan sætti sig illa við það og var áreiðanlega hvíldinni fegin að leikslokum. Þau hjónin stóðu að ýmiss kon- ar atvinnustarfsemi í gegnum ár- in, framleiddu sælgæti, súkkulaði og páskaegg, gerðu snittur og brauðtertur, ráku veisluþjónustu og fleira. Þau höfðu kynnst við vinnu í Nóa Síríusi þar sem Gummi var verkstjóri, hann hafði ungur numið sælgætisgerð í Danmörku. Greta móðir okkar er tveimur árum eldri. Missir hennar er mikill, Hermann fóstri okkar lést fyrr á þessu ári. Þær systur voru ávallt vel tengdar og samtaka, þó þær væru ekki endilega alltaf sammála. Fjölskyldan var heldur ekki stór og þurfti að standa saman. Foreldrar þeirra létust rúmlega fimmtug, yngri bróðir- inn Einar var rétt um fermingu. Við vorum fjögur í hvorum barnahópi systranna, á líkum aldri og höldum góðum tengslum. Nú er Lallý frænka að búa til jólakúlur og páskaegg í himna- ríki. Gummi er örugglega búinn að hanna nýja línu og Hermann fóstri að laga færibandið. Elsku Bjarni, Gummi, Lára, Jói, makar, börn og barnabörn; við vottum ykkur dýpstu samúð. Farðu vel, elsku frænka, takk fyrir allt og allt. Ásta B. Gunnlaugs- dóttir, Óskar Gunn- laugsson. Það var alltaf gaman og spenn- andi að koma til Lallýjar og Gumma. Það var eins og að koma í ævintýraveröld og nammiland. Sælgætisverksmiðja í Hvera- gerði, steinasafn á Blönduósi, páskaeggjagerð í Grafarvogin- um, alltaf eitthvað gott og spenn- andi. Þau hjón voru ákaflega gest- risin og fannst gaman að gefa fólki að borða, þau bjuggu til mikinn mat, eins og þau væru í hótelrekstri. Enginn fór svangur frá þeim. Kindakæfan hennar Lallýjar er allra besta kæfa sem ég hef smakkað og hef reynt að herma eftir en það er bara ekki eins. Að maður tali nú ekki um snitturnar og brauðterturnar, þær voru geggjaðar. Við Lallý vorum miklar vin- konur og ég heimsótti hana oft þegar ég var barn. Seinna fór ég mikið til hennar með börnin mín. Þeim þótti það alveg jafn spenn- andi og mér. Elsku frænka, ég veit að ég var uppáhaldsfrænkan þín, þó að Ásta systir haldi að hún hafi verið það, en við skulum bara hafa það á milli okkar. Þegar ég sagði Knúti að Lallý frænka væri dáin þá varð hann mjög leiður og sagði: „En hver á þá að gefa mér nammi?“ Ég veit að Gummi, pabbi, Þór- ir frændi og allir hinir taka vel á móti þér í sumarlandinu eða á ég kannski að segja nammilandinu. Á meðan æfi ég mig í kæfugerð. Þangað til næst, þín Kristrún. Mágkona mín er jarðsungin á afmælisdegi bróður míns, sem andaðist fyrir 6 árum. Lallý og Gvendur voru einstaklega sam- rýnd og vildu helst vera heima saman. Þau unnu í mörg ár saman í sælgætisgerðinni Nóa Síríusi og sælgætisgerð sem Gvendur bróð- ir minn stofnaði. Þau ferðuðust víða og bjuggu nokkur ár í Sví- þjóð en aðallega á Reykjavíkur- svæðinu. Í gegnum árin voru alltaf hlýj- ar og góðar móttökur á fallega heimilinu þeirra. Þau voru ein- stakalega gestrisin og Lallý var frábær kokkur og bakari. Þau voru góð heim að sækja. Það var glaðværð og hamingja í kringum þau, það var stutt í grínið og gleðina hjá bróður mín- um. Lallý var dugleg til verka í öllu sem hún tók sér fyrir hend- ur. Þau áttu fjögur myndarleg og góð börn sem hafa komið sér vel áfram í lífinu. Ég og fjölskylda mín vottum börnum og barnabörnum ein- læga samúð okkar. Nú er myrkur í hjörtum en með styrk þeim sem Lallý sýndi skulum við minnast þess að það birtir alltaf aftur um síðir. Sólin hækkar á lofti og með góðum minningum birtir einnig til í hjörtum okkar syrgjenda. Drottinn, þá er döprum manni dýrsta gjöfin sólskinið. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Guð geymi þig og verndi, takk fyrir samveruna, elsku Lallý mín, við sjáumst síðar. Þín einlæg mágkona, Jóhanna Jónsdóttir (Hanna). Láretta Bjarnadóttir Raðauglýsingar Auglýsing um skipulagsmál í Mýrdalshreppi Skipulags- og byggingarfulltrúi Aðalskipulag Mýrdalshrepps 2012-2028 – Breyting í austurhluta Víkur Í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst tillaga um breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 fyrir austurhluta Víkur. Breyting á aðalskipulagi fyrir austurhluta Víkur er margþætt og fellst í eftirfarandi: stækkun íbúðarsvæði ÍS7 til austurs, legu afleggjara af Austurvegi, breytt afmörkun á athafnasvæði A1, breytt notkun á hluta iðnaðarsvæðis I1 og stækkun I2, breytt notkun hluta verslunar- og þjónustusvæðis V36 í nýtt íbúðarsvæði ÍS8 og breyttir skilmálar fyrir V35. Tillaga þessi að aðalskipulagsbreytingu liggur frammi hjá skipulags-og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps  frá 18. nóvember 2020 til og með 30. desember 2020. Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 30. desember 2020. Breyting á deiliskipulagi austurhluta Víkur Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu um breytingu á deiliskipulagi fyrir austurhluta Víkur. Deiliskipulagsbreytingin nær yfir eftirfarandi svæði: ÍS7, ÍS8, A1, I1, I2, V35 auk þess sem hluti svæðis V36 var breytt í ÍS8. Deiliskipulagsbreyting þessi er í samræmi við ofangreinda breytingu á aðalskipulagi og gert er ráð fyrir eftirfarandi: hlutfall verslunar- og þjónustusvæðis á svæðinu sunnan Austurvegar aukið á kostnað athafnasvæðis, iðnaðarsvæði stækkar til austurs, íbúðarsvæði stækkað og nýju íbúðarsvæði bætt við svo unnt sé að svara þörf fyrir fleiri lóðir fyrir minni íbúðir við núverandi götur innan þéttbýlisins og nýta þannig innviði sveitarfélagsins betur. Tillaga þessi liggur frammi hjá skipulags-og byggingarfulltrúa Mýrdalshrepps Austurvegi 17, 870 Vík og á heimasíðu Mýrdalshrepps  frá 18. nóvember 2020 til og með 30. desember 2020. Athugasemdum ef einhverjar eru skal skila skriflega á skrifstofu Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík eða í tölvupósti á bygg@vik.is. Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 30. desember 2020.            Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa, sonar, bróður, mágs og frænda, KRISTINS GUÐNA RAGNARSSONAR pípulagningameistara frá Vestmannaeyjum, til heimilis á Faxabraut 7, Keflavík. Sérstakar þakkir til Oddfellow bræðra í Stúku nr. 26, Jón forseti og heimahjúkrunar HSS fyrir alla hjálpina og yndislegt viðmót. Fyrir hönd aðstandenda, Sesselja Birgisdóttir Ástkær móðir mín, SIGRÚN SIGURBERGSDÓTTIR kennari, Hlunnavogi 6, verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 20. nóvember klukkan 15. Jarðarförinni verður streymt á https://youtu.be/Yz2yFb4ECYY Ásdís Tómasdóttir Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.