Morgunblaðið - 18.11.2020, Page 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |eirvik.is | Opið virka daga10-18
– 3 tæki í einu og mögulegt að breyta samsetningu ryksugu eftir þörfum
– Allt að 60 til120 mínútna samfelldur gangtími
– Breiður ryksuguhaus sem hentar fyrir allar gerðir gólfefna
Skaftryksuga frá Miele með Li-ion rafhlöðu
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Fyrirhöfn þín til að viðhalda stóru
tengslaneti þínu ber árangur. Hringdu í
vini, systkini, ættingja og nágranna.
20. apríl - 20. maí
Naut Ef þú pælir í því, þá hefurðu ástæðu
til að fagna. Taktu þér tíma til þess að
kanna heilsuna og kippa henni í lag.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þótt þú eigir erfitt með sam-
skiptin við þína nánustu, skaltu muna að
sjaldan veldur einn þá tveir deila.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Græskulaust gaman er þér að
skapi og það er sjálfsagt að lífga upp á til-
veruna með þeim hætti. En þú ert tilbúinn
í slaginn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú átt hreint ekki að lúffa fyrir öðrum
með hluti sem þú hefur sterka trú á. Farðu
mjög varlega með upplýsingar sem þú
veitir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Vertu ekki að hneykslast á eyðslu
annarra fjölskyldumeðlima ef þú þarft ekki
að bera ábyrgðina. Hvað rómantíkina
varðar rætist eitthvað sem þú hefur verið
að búast við.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú gætir orðið fyrir vonbrigðum með
það sem þér er úthlutað í dag. Gefðu þér
tíma til að leika þér. Gefðu betri gaum að
heilsufari þínu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Áróður og dylgjur af ýmsum
toga kunna að koma upp á yfirborðið í
dag. Drífðu þig út og láttu til þín taka á
nýjum vettvangi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dugnaðurinn er alveg að fara
með þig. Nú er tími til að nota þekkinguna.
Skynsemi og hagsýni eru þínar sterku
hliðar í dag.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Stundum virðast hlutirnir frek-
ar í lagi ef þeir eru í ólagi. Reyndu því að
einbeita þér að starfi þínu. Samræður í
fjölskyldunni eru þýðingarmiklar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú verður að sætta þig við
ákvarðanir annarra varðandi starfið eða
jafnvel heimilislífið í dag. Reyndu ekki að
byrgja hlutina inni, heldur ræddu málin.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur heilbrigðan metnað til að
komast áfram og átt að leyfa honum að
leiða þig. Gleymdu ekki að þakka þeim
sem gerðu þér þetta mögulegt.
Ö
nundur Jónasson fæddist
18. nóvember 1980 í
Keflavík. Hann segir það
hafa verið gott að alast
þar upp og mikið frelsi
og gott fyrir sköpunargáfuna. „Ég var
alla daga uppi á heiði eitthvað að bar-
dúsa, smíða kofa og leika við krakk-
ana.“
Önundur fór í sveit á sumrin til móð-
urbróður síns á Skerðingsstöðum í
Dalasýslu. „Ég var þar eiginlega öll
sumur til fjórtán ára aldurs. Stundum
fékk ég að taka lokaprófin í skólanum
fyrr svo ég gæti komist í sauðburðinn
og svo var ekkert komið til baka fyrr
en á haustin þegar skólinn byrjaði aft-
ur. Dalirnir eru alveg sveitin mín og
við förum þangað alltaf í réttir.“
Eftir grunnskólann fór Önundur í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja í grunn-
deild málmiðna þar sem hann hafði
hug á að læra bifvélavirkjun. Hann átti
þó eftir að færa sig til í náminu en ekki
fyrr en hann hafði tekið sér hlé og farið
á sjóinn. Hann kynntist eiginkonu
sinni, Díönu Hilmarsdóttur, átján ára
gamall og þau trúlofuðu sig ári síðar
árið 2000. Þau giftu sig þó ekki fyrr en
þrettán árum síðar, heima í stofu með
börnum og nánustu fjölskyldu.
Verðlaun fyrir lokaverkefnið
„Ég fór að vinna við pípulagnir og
lærði þær til 2005 þegar við flytjum út
til Danmerkur. Þar byrjaði ég að taka
grunnnám sem tæknistúdent, svo ég
gæti byrjað í tæknifræðináminu við
Verkfræðiháskólann í Árósum.“ Ön-
undi gekk vonum framar í náminu í
Danmörku og hann útskrifaðist með
hæstu mögulega einkunn og fékk
verðlaun fyrir lokaverkefnið sitt sem
hann vann með dönskum samnem-
anda, en þeir þróuðu mítralhringi úr
plasti sem gagnast sjúklingum sem fá
hjartaáfall. „Þessar rannsóknir urðu til
þess að núna er verið að nota mítral-
hringi úr plastefnum. Við tókum þessi
frumskref og vorum að hanna út frá
mekanískum eiginleikum og efniseig-
inleikum, svo þetta væri eitthvað sem
gæti verið inni í líkamanum og myndi
ekki hafa áhrif á náttúrulegar hreyf-
ingar hjartans. Svo var þetta prófað á
svínum og gaf góða raun. Ég hef per-
sónulega ekki fylgt þessu góða verk-
Önundur Jónasson véltæknifræðingur – 40 ára
Hjónin Önundur og Díana eru hér í fjallgöngu á Keili á Reykjanesi.
Vil leggja mitt af mörkum
Kagginn Önundur smíðaði þennan Pontiac Trans Am frá grunni á sex árum.
efni eftir, en sjúkrahúsið í Árósum og
prófessorarnir hafa unnið þetta áfram.
Ég er bara ánægður að hafa hrundið
þessu verkefni af stað og finnst gott að
vita að ég hafi lagt mitt af mörkum til
þess að hjálpa öðrum að eiga betra líf.“
Önundur kom heim frá Danmörku
árið 2009 og stuttu síðar fór hann að
vinna hjá Marel og var þar í nokkur ár
við vélahönnun og þess háttar. Frá
Marel fór hann til Martaks í Grindavík
og þaðan til Eflu verkfræðistofu. Und-
anfarin ár hefur Önundur verið tækni-
og þróunarstjóri hjá Borgarplasti en
er nú að fara til Vatnsvirkjans þar sem
hann mun taka við tæknimálunum.
Virðing fyrir náttúrunni
Önundur hefur komið víða við í fé-
lagsmálum og verið stjórnarformaður
Tæknifræðingafélags Íslands og er í
dag stjórnarformaður sorpeyðing-
arstöðvarinnar Kölku. „Ég hef brenn-
andi áhuga á umhverfismálum og end-
urnýtingu og endurvinnslu. Ég vil að
við hugsum eins sómasamlega um
jörðina okkar og umhverfið eins og við
getum og að við nýtum allt sem við
getum nýtt. Þetta er svolítið öðruvísi
nálgun en margir hafa þegar talað er
um sorp og úrgang, en ég vil leggja
mitt af mörkum og viðhalda hringrás-
arhagkerfinu og minnka úrgang eins
mikið og hægt er.“
Þegar vinnunni sleppir er Önundur
mikill bílaáhugamaður og er mikið í
bílskúrnum heima að vinna við bíla og
endurbyggja gamla bíla, helst amer-
íska. „Keflavík er mikill bílabær og
kannski eru það áhrif frá hernum að
það hafa alltaf verið margir flottir bílar
í bænum. En svo er ég í minni vinnu
lítið að skapa hluti, heldur er þetta
meira tölvuvinna. Þá er gott að geta
komist út í skúr á kvöldin og búið eitt-
hvað til með höndunum.“
Fjölskylda
Eiginkona Önundar er Díana Hilm-
arsdóttir, f. 18.6. 1976, forstöðumaður
Bjargarinnar – geðræktarmiðstöðvar
Suðurnesja.
Foreldrar hennar eru hjónin Áslaug
Þráinsdóttir sjúkraliði, f. 29.6. 1957 og
Hilmar Gunnarsson múrarameistari, f.
16.9. 1955, d. 11.7. 2014. Áslaug býr í
Garðabæ í dag.
30 ára Björgvin Óli er
Selfyssingur í húð og
hár. Hann er
sjúkraflutningamaður
og húsasmiður. Helstu
áhugamál hans eru
jeppa- og fjallaferðir
og björgunarstörf.
Hann er í Björgunarfélagi Árborgar og
hefur verið undanfarin 15 ár. Síðan er úti-
vist og ferðalög, bæði innan- og utan-
lands, mikið áhugamál.
Maki: Þórunn Ásta Helgadóttir, f. 1992,
sjúkraliði á Heilbrigðisstofnun Suður-
lands.
Dóttir: Ellen Margrét, f. 2018.
Foreldrar: Sigurbjörg Harðardóttir, f.
1971, iðjuþjálfi á Akureyri, og Ingvar
Ólafsson, f. 1968, bílasmiður á Selfossi.
Björgvin Óli
Ingvarsson
Til hamingju með daginn
Reykjavík Viktor Berg Boyko Val-
geirsson fæddist 14. maí 2020 kl.
0.11. Hann vó 4.910 g og var 55,5 cm
langur. Foreldrar hans eru Natalia
Boyko og Valgeir Ólafsson.
Nýr borgari
30 ára Unnur er Ak-
ureyringur en býr
núna í Reykjavík. Hún
starfar hjá Sérefni,
málningarvöruverslun.
Hún hefur verið í
handbolta frá því hún
var lítil og æfði með
KA og Gróttu en er núna í Fram. Hún
hefur einnig verið í atvinnumennsku í
Noregi og í landsliðinu hérna heima.
Maki: Einar Rafn Eiðsson, f. 1989, vinn-
ur í Sérefni og er fyrirliði FH í hand-
bolta.
Dóttir: Móeiður, f. 2018.
Foreldrar: Ómar Gunnarsson, f. 1964
og Árný Helga Reynisdóttir, f. 1962. Þau
eru eigendur málningarverslunarinnar
Sérefna og búa í Reykjavík.
Unnur
Ómarsdóttir