Morgunblaðið - 18.11.2020, Page 23
vera fljótir að ná upp takti um leið og
liðið kemur allt saman í Slóvakíu á
mánudaginn kemur,“ bætti Craig við.
Leikmenn liðsins sem leika hér á
landi hafa æft í Smáranum í Kópa-
vogi ásamt þeim Baldri Þór Ragn-
arssyni og Hjalta Þór Vilhjálmssyni,
aðstoðarþjálfurum liðsins, en þeir
leikmenn sem leika erlendis hitta
landsliðhópinn í Slóvakíu á mánudag-
inn kemur.
Þá flýgur landsliðsþjálfarinn sjálf-
ur út til Slóvakíu á laugardaginn, líkt
og leikmennirnir sem eru samnings-
bundnir íslenskum félagsliðum.
„Þetta eru vissulega sérstakar að-
stæður en við vorum ágætlega und-
irbúnir fyrir þetta. Við tókum þrjár
aukaæfingar í sumar til þess að und-
irbúa okkur fyrir akkúrat þennan til-
tekna landsleikjaglugga. Markmiðið
var að æfa ákveðna hluti og að menn
yrðu svo fljótir að komast í takt við
það sem við vildum gera í leikjunum
gegn Lúxemborg og hins vegar Kós-
ovó.
Æfingarnar í júlí gengu framar
vonum, sérstaklega þar sem það var
langt í næsta leik hjá liðinu, og það
getur verið erfitt að gíra sig upp fyrir
þannig æfingu. Undirbúningurinn
undanfarna daga hefur kannski ekki
verið vænlegur en við teljum okkur
hafa gert þær ráðstafnir sem við
þurftum að gera til þess að ná í góð
úrslit í Bratislava.“
Eins og áður hefur komið fram fær
liðið ekki mikinn tíma til þess að stilla
saman strengi sína fyrir leikinn gegn
Lúxemborg.
„Við erum með leikmenn sem
þekkja hver annan vel og þeir hafa
spilað nokkra leikina saman í gegnum
tíðina. Leikmannahópurinn er bæði
fjölbreyttur og reynslumikill og við
erum með stórt vopnabúr ef svo má
segja. Hlutverk okkar þjálfaranna er
svo bara að reyna að stilla hópinn
saman eins og best verður á kosið.
Þetta eru allt frábærir körfubolta-
menn en aðalatriðið núna er að sam-
stilla hópinn og gera hann að liði sem
getur unnið körfuboltaleiki. Það eru
nokkrir lykilmenn fjarverandi eins og
Martin Hermannsson og við munum
sakna hans. Á sama tíma vorum við
undir það búnir að hann gæti ekki
tekið þátt í þessum tveimur leikjum
og við eigum að geta leyst þetta án
hans.“
Býr meira að baki
Brynjar Þór Björnsson, Collin
Pryor, Ólafur Ólafsson, Pavel Ermol-
inskij og Sigurður Gunnar Þor-
steinsson hafa verið viðloðandi lands-
liðshópinn undanfarin ár en þeir
ákváðu að gefa ekki kost á sér í þess-
um landsleikjaglugga.
„Kórónuveirufaraldurinn hefur
áhrif á ákvörðun þessara leikmanna,
það er klárt mál. Sumir þeirra sögðu
það bara hreint út að þeir sæju sér
ekki fært að taka þátt í þessum verk-
efnum vegna faraldursins sem má
rekja helst til þess að þeir hefðu þurft
að fara í sóttkví við komuna til lands-
ins og þar af leiðandi misst úr vinnu
og annað slíkt.
Svo voru aðrir sem vildu ekki út-
skýra ákvörðun sína neitt frekar en
ég er nokkuð viss um að veiran hafi
átt stóran þátt í þeirra ákvörðun. Svo
er það líka þannig að menn eru í
vinnu og stundum er einfaldlega ekki
hlaupið að því að fá frí og þannig er
það bara. Þetta snýst ekki um að leik-
menn vilji ekki spila því það býr alltaf
meira að baki,“ sagði Craig Pedersen.
Veiran hafði áhrif á
ákvörðun leikmanna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjálfari Craig Pedersen hefur stýrt íslenska landsliðinu frá árinu 2014.
Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik er á leið til Slóvakíu í lok nóvember
Landsliðshópur Íslands
Breki Gylfason (7)
Elvar Már Friðriksson (46)
Gunnar Ólafsson (20)
Haukur Helgi Pálsson (68)
Hjálmar Stefánsson 16)
Hörður Axel Vilhjálmsson (84)
Jón Axel Guðmundsson (11)
Kári Jónsson (12)
Sigtryggur A. Björnsson (10)
Tómas Þórður Hilmarsson (6)
Tryggvi Snær Hlinason (39)
Ægir Þór Steinarsson (62)
Ragnar Á. Nathanaelsson (47)
KÖRFUBOLTI
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í körfuknatt-
leik verður án Martins Hermanns-
sonar þegar liðið mætir Lúxemborg
og Kosovó í forkeppni HM 2023 í
Bratislava í Slóvakíu í lok nóvember.
Ísland mætir Lúxemborg 26. nóv-
ember og Kosovó 28. nóvember en
Martin verður í eldlínunni með fé-
lagsliði sínu Valencia í Evrópudeild-
inni á sama tíma og landsleikirnir
fara fram.
Íslenska liðið er með þrjú stig í
öðru sæti B-riðils forkeppninnar, líkt
og Slóvakía, en Kósovó er í efsta sæt-
inu með fjögur stig. Tvö efstu lið rið-
ilsins fara svo áfram í undankeppni
HM sem hefst í ágúst á næsta ári.
Til stóð að leikirnir tveir færu fram
á Íslandi en vegna kórónuveiru-
faraldursins var ákveðið að spila í
Slóvakíu þar sem liðin og fylgdarlið
þeirra yrðu í svokallaðri „búbblu“.
Gekk framar vonum
„Þessir tveir leikir leggjast vel í
mig en að sjálfsögðu hefði ég viljað
spila þá heima á Íslandi eins og til
stóð,“ sagði Craig Pedersen, þjálfari
íslenska liðsins, í samtali við Morg-
unblaðið en hann kynnti þrettán
manna leikmannahóp sinn fyrir verk-
efnið í gær.
„Það er alltaf jákvætt að koma til
Íslands og það er bæði gaman fyrir
þá leikmenn sem spila hér á landi
sem og þá sem spila erlendis að kom-
ast aðeins heim og hitta ættingja og
vini. Okkur hefur líka gengið mjög vel
á heimavelli undanfarin ár og það
hefur verið erfitt að vinna okkur í
Laugardalshöllinni.
Það er þess vegna svekkjandi að fá
ekki þessa heimaleiki enda um mjög
mikilvæga leiki að ræða. Við tökum
einn leik fyrir í einu og byrjum á Lúx-
emborg sem hefur spilað vel að und-
anförnu. Við þurfum þess vegna að
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020
Íslendingar létu mikið að sér kveða
í Evrópudeildinni í handknattleik
í gærkvöldi. Ómar Ingi Magnússon
skoraði átta mörk og Gísli Þor-
geir Kristjánsson sex er þýska lið
þeirra Magdeburg vann 37:30-sigur
gegn CSKA Moskvu í riðlakeppn-
inni. Liðið er með fjögur stig eftir
tvo leiki. Þá var Ólafur Andrés
Guðmundsson markahæstur hjá
sænska liðinu Kristianstad sem
vann 25:24-útisigur gegn Nimes frá
Frakklandi. Ólafur skoraði sex
mörk en Teitur Örn Einarsson
skoraði fjögur fyrir sænska liðið.
Íslendingarnir
drjúgir í Evrópu
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Öflugur Ómar Ingi átti stórleik í
Evrópudeildinni í gærkvöldi.
Knattspyrnukonan Guðný Árna-
dóttir gekkst undir læknisskoðun
hjá ítalska stórliðinu AC Milan í
gær samkvæmt heimildum mbl.is.
Guðný, sem er tvítug, hefur leik-
ið með Val frá árinu 2019 og varð
Íslandsmeistari með liðinu síðasta
sumar. Hún er uppalin hjá FH og á
að baki 83 leiki í efstu deild þar sem
hún hefur skorað sex mörk. Þá á
hún að baki átta A-landsleiki.
Kvennalið AC Milan var stofnað í
júlí 2018 en liðið er í öðru sæti
ítölsku A-deildarinnar með 21 stig
eftir átta leiki. bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ítalía Guðný skrifar undir samning
við AC Milan á næstu dögum.
Frá Hlíðarenda
til AC Milan
„Við erum búnar að fara mjög vel yfir þetta
skoska lið og þessi leikur gegn þeim leggst bara
mjög vel í mig,“ sagði Elín Metta Jensen, fram-
herji knattspyrnuliðs Vals, í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Valskonur taka á móti Glasgow City í 2. umferð
Meistaradeildar Evrópu á Hlíðarenda í dag en
Valur vann 3:0-sigur gegn HJK frá Finnlandi í 1.
umferð keppninnar á Hlíðarenda 4. nóvember.
„Við fundum það eftir síðustu landsliðsferð að
þjálfurunum fannst óþægilegt að fá svona knapp-
an undirbúning með öllum hópnum. Undirbúning-
urinn fyrir þennan leik hefur verið allt öðruvísi og
meira í líkingu við þá rútínu sem við vorum komn-
ar í í sumar og það hentar okkur mjög vel,“ sagði
Elín sem hefur leikið þrjá Evrópuleiki á ferlinum.
Valskonur hófu undirbúning fyrir Íslandsmótið
2020 í nóvember á síðasta ári og tímabilið því orð-
ið ansi langt á Hlíðarenda.
„Það eru kostir og gallar við þetta eins og allt
annað. Það eru ákveðin forréttindi að geta hitt
fólk, hreyft sig og svo auðvitað spilað fótbolta. Á
sama tíma þurfa allir sitt frí líka og það hefur
vissulega verið mikið að gera hjá mér að und-
anförnu. Ég hef mætt miklum skilningi, bæði hjá
þjálfurum Vals og kvennalandsliðsins, og svo auð-
vitað í læknisfræðinni. Þetta verður áhugavert í
desember í jólaprófunum, ef við komust áfram í
32-liða úrslitin, en það leysist með tíð og tíma,“
bætti Elín við. bjarnih@mbl.is
Seinni tíma vandamál
Morgunblaðið/Eggert
Mark Elín Metta fagnar marki sínu gegn HJK í 1.
umferð Meistaradeildarinnar í byrjun nóvember.
Martin Hermannsson átti afbragðs-
leik fyrir Valencia í Euroleague í körfu-
knattleik í gærkvöldi er liðið vann
95:83-sigur á Panathinaikos frá Grikk-
landi. Íslendingurinn skoraði 13 stig
fyrir spænska liðið, tók þrjú fráköst og
gaf fjórar stoðsendingar á þeim 19
mínútum sem hann var inni á vellinum.
Valencia er búið að vinna fimm af átta
leikjum sínum í deildinni.
Færeyska landsliðið í knattspyrnu
komst upp um deild í Þjóðadeild UEFA í
knattspyrnu er liðið gerði 1:1-jafntefli á
útivelli gegn Möltu í gærkvöldi. Fær-
eyingum dugði jafntefli til að koma sér
upp í C-deildina en varamaðurinn Ari
Mohr Jonsson tryggði þeim stig með
marki á 70. mínútu. Með sigrinum end-
uðu þeir á toppi riðilsins með 12 stig.
Lærisveinum Helga Kolviðssonar í
Liechtenstein mistókst hins vegar að
komast upp er þeir gerðu 1:1-jafntefli
gegn Gíbraltar. Þetta var síðasti leikur
Helga með liðið sem endaði í öðru sæti
riðilsins og verður því áfram í D-
deildinni.
Knattspyrnukonurnar Berglind Rós
Ágústsdóttir og Cecilía Rán Rúnars-
dóttir gætu báðar verið á förum frá
Fylki samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins. Berglind Rós, sem er 25
ára gömul, er eftirsótt af liðum í Noregi
en hún gekk til liðs við Fylki frá uppeld-
isfélagi sínu Val fyrir tímabilið 2017 og
hefur verið algjör lykilmaður í Árbæn-
um síðan. Hún hefur verið fyrirliði liðs-
ins undanfarin þrjú tímabil og á að baki
87 leiki í efstu deild þar sem hún hefur
skorað 3 mörk. Þá á hún að baki einn
A-landsleik en þar sem lokaumferð
norsku úrvalsdeildarinnar var frestað
fram í desember er líklegt að framtíð
hennar skýrist ekki fyrr en á nýju ári.
Ensku úrvalsdeildarfélögin Chelsea og
Everton hafa bæði sýnt Ceclíu Rán
áhuga en hún er einungis 17 ára gömul
og ein efnilegasta knattspyrnukona
landsins. Þrátt fyrir ungan aldur hefur
hún verið fastamaður í íslenska lands-
liðshópnum í undankeppni EM en félög
í þýskalandi hafa einnig spurst fyrir um
markvörðinn.
Lettneska landsliðskonan Eliza
Spruntule hefur framlengt samning
sinn við ÍBV um eitt ár og verður því
áfram innan herbúða liðsins á Íslands-
mótinu í knattspyrnu næsta sumar.
Spruntule spilaði 12 deildarleiki fyrir
ÍBV á nýliðnu keppnistímabili en liðið
hafnaði í 8. sæti deildarinnar með 17
stig að loknum 16 leikjum. Ásamt því
að spila með meistaraflokki þjálfar hún
einnig yngri flokka ÍBV.
Franski knattspyrnumaðurinn Oli-
vier Giroud ætlar að yfirgefa herbúðir
Chelsea í janúar nema hann byrji að fá
meiri spiltíma en the Athletic segir frá
þessu. Chelsea styrkti lið sitt verulega
í sumar, keypt leikmenn fyrir rúmar
200 milljónir punda og hefur m.a. feng-
ið til sín þýska framherjann Timo Wer-
ner. Giroud hefur fyrir vikið fengið litið
að spila, aðeins komið við sögu í þrem-
ur leikjum á tímabilinu. Giroud er orð-
inn 34 ára og á á hættu
að missa sæti sitt í
franska landsliðinu
og hefur Didier
Deschamps, lands-
liðsþjálfari Frakk-
lands, rætt við fram-
herjann og sagt
honum að
hann verði
að spila
meira með
félagsliði
sínu.
Eitt
ogannað