Morgunblaðið - 18.11.2020, Síða 24
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Það hefur dregist mikið að setja upp
sýninguna. Það er mikill léttir að
vera loksins búin að því,“ segir Ólöf
Helga Helgadóttir myndlistarkona
þar sem hún stendur við verkin á
sýningu sinni, Hrist ryk á steini, sem
verður opin í Gerðarsafni í Kópavogi
frá kl. 10 í dag, miðvikudag. Hún er
að ljúka við uppsetninguna þegar
blaðamaður lítur inn og í hinum
salnum er einnig komin upp sýning
Magnúsar Helgasonar og sú ber
heitið Shit hvað allt er gott. Töfin á
uppsetningu þeirra og opnun hefur
vitaskuld stafað af veirufaraldrinum,
og af hans sökum verður engin
formleg opnun heldur eru gestir vel-
komnir hvenær sem er.
Sýningarnar eru í sýningaröð
Gerðarsafns „Skúlptúr / Skúlptúr“
þar sem vísað er til tímamótasýning-
arinnar „Skúlptúr“ sem sett var upp
á Kjarvalsstöðum 1994 og er reynt
að velta aftur og aftur upp spurning-
unni: Hvar er íslensk höggmyndalist
stödd og í hvaða átt stefnir hún?
Með sýningaröðinni er minning
Gerðar Helgadóttur myndhöggvara
einnig heiðruð en ferill Gerðar ein-
kenndist af sköpunargleði og til-
raunum með ólík efni og aðferðir.
Listamennirnir sem nú sýna verk
sín í Gerðarsafni nálgast einmitt
sköpunina með framúrstefnulegri
tilraunamennsku í hversdagsleg efni
og óþrjótandi leik- og sköpunargleði,
svo vitnað sé í tilkynningu frá safn-
inu. Þau Ólöf Helga og Magnús nota
ólíkan efnivið, oft og tíðum hvers-
dagslega hluti sem settir eru í fram-
andi samhengi og biðla þannig til
áhorfandans að slaka á rökhugs-
uninni og njóta áhyggjulaust.
Skúlptúr étur skúlptúr
„Þetta eru allt ný verk,“ segir Ólöf
Helga þar sem við stöndum með
grímur fyrir vitum í salnum. Tölvu-
leikjaleg hljóð berast frá einu verk-
anna sem sýnir tromluna í þvottavél
snúast og kallaðir eru þar fram
tennisboltar með tölum á. „Boðið um
að sýna hér kom í september í fyrra
og þá fór hugurinn af stað. En sjálf
verkin komu síðar.“
– Nálgastu þetta eins og hverja
aðra sýningu eða fórstu í sérstakar
stellingar þar sem þetta er sýning
þar sem taka á út skúltúrinn í dag?
„Ég einblíndi sérstaklega á þrívíð
verk, skúlptúrinn, og þetta var
vissulega áskorun,“ svarar hún.
„Þetta eru blandaðir miðlar og ég
vissi strax að ég vildi hafa einhverja
vörpun með myndvarpa, eitt til tvö
slík.“ Við horfum á þvottavélina snú-
ast en Ólöf Helga bendir á að annað
vídeóverk sé fyrir aftan stóra verkið
úr rauðu tjöldunum; „þar er við-
hengi“ segir hún um plötuspilarann
sem sést þar snúast með skúlptúr á.
„Ég vildi ná stemningu – hafa fá
verk – nýta gólfið, ekki veggina,“ tel-
ur hún upp. „Þetta er eins og sviðs-
setning með þremur stökum verkum
sem mynda þessa stemningu. Þau
eiga ýmislegt sameiginlegt.
Miðjuverkið heitir „Skúlptúr étur
skúlptúr“. Ég sýndi tvo staka skúlp-
túra í Listasafni Árnesinga 2015,
annan á gólfi og hinn á vegg, og hér
hefur annað þeirra verka étið hitt.
Bókstaflega.
Ég hef oft nýtt eldri verk en
kannski er þetta endirinn á þessum
tveimur,“ segir hún og ég sé bros
birtast bak við grímuna.
Heiti sýningarinnar, Hrist ryk á
steini, er lína sem kom til Ólafar
Helgu á ferðalagi fyrir löngu. „Ég
punkta svona hugsanir oft hjá mér
og tek þær fram síðar eins og hálf-
gerð verkfæri. En þetta er í fyrsta
skipti sem ég nýti svona setningu
sem titil,“ segir hún.
„Þvottavélin er með eins konar sí-
endurtekið lottóstef, spilakassahljóð
sem skapar hljóðheim sýning-
arinnar. Stjúpsonur minn valdi töl-
urnar á boltunum. Þeir eru eins og
hnettir.“
Við beinum athyglinni að stóru,
rauðu verki og spurt er hvort það sé
úr gardínum eða sé sviðstjald.
„Ef ég á að vera heiðarleg þá eru
þetta gardínur sem héngu uppi á
æskuheimili mínu um 1980. Þær
fóru síðan í geymslu, svo átti að
henda þeim en ég ákvað að eiga þær
og það er fyrst núna, þegar ég fæ
tækifæri til að sýna í svona stóru
rými, að eitthvað gerist með þær.
Færanlegi veggurinn sem er alltaf
hér í salnum var að angra mig svo ég
ákvað að nýta hann fyrir skúlptúr.“
Fyrir aftan vegginn snýst plötu-
spilari á skjá, og verk á honum.
„Þetta var einmitt plötuspilarinn
heima, frá sama tímabili,“ segir Ólöf.
„Ofan á honum snýst skúlptúr sem
ég hef margnotað, á þremur eða
fjórum sýningum. Það er alltaf hægt
að ganga lengra með verkin.“
Stormur í kókglasi
Það er mikill leikur og sannkall-
aðar furður á sýningu Magnúsar
Helgasonar, Shit hvað allt er gott, í
hinum salnum á efri hæð Gerðar-
safns. Á veggjum eru nokkur mál-
verk í þeim anda sem hann hefur
getið sér orð fyrir, sett að hluta sam-
an úr fundnum hlutum; á veggi hef-
ur hann einnig dregið láréttar og
lóðréttar línur með sömu litum og í
málverkunum og fundið myndbygg-
ingarlegt jafnvægi með sínum hætti.
Á einum vegg eru skúlptúrar úr
glösum þar sem innihaldið snýst,
annað segir Magnús vera storm í
vatnsglasi, hitt storm í kókglasi. Og
úti á gólfinu eru fleiri skúptúrar sem
hreyfast og byggjast á togi segla;
plastbátar sigla, seglar svífa kring-
um lýsisflöskur og svo svífa þar líka
nokkur pylsu- og hamborgarabrauð.
„Ég hef lengi verið heillaður af
svífandi brauði. Þetta eru pylsu- og
hamborgarabrauð sem þykja
ómerkilegustu brauð sem eru til en
mér finnst vanta fleiri svífandi
pylsubrauð í heiminn, og ekki síst
inn á listasöfn,“ segir Magnús
glettnislega.
„Ég var upphaflega beðinn um að
gera sýningu sem myndi líka höfða
til barna og halda áfram með segla-
verk eins og sýndi fyrst fyrir nokkr-
um árum. Ég hef verið að vinna með
sterk segulstál sem láta hversdags-
lega muni svífa og reyndi að finna
nýjar leiðir fyrir það hér. Ég bætti
við rafmagnsmótorum og gerði því í
fyrsta skipti í langan tíma hreyfi-
listaverk.
Ég hef alltaf af og til sett mér
reglur, ætlaði til dæmis að halda mig
bara við tvívíð verk, og innan ramm-
ans, og svo ætlaði ég alveg að hætta
að búa til myndlist sem þyrfti að
stinga í samband. Þú sérð hvernig
mér gengur að fara eftir reglunum!“
Og víst má sjá hvernig verkin fara
bæði út fyrir rammana á veggjum og
snúast og togast fyrir tilstilli raf-
magns hér og þar í salnum.
„Á þessari sýningu eru fjórtán
rafmagnsmótorar, sjö skyndibita-
brauð, allskonar dótarí sem getur
bilað og farið úrskeiðis … en þetta
virkar ágætlega eins og er.
Ég vildi svo ekki hafa málverkin
sem ég sýni fullkláruð, heldur að þau
yrðu eins og hluti af heildinni.
Og ætli þetta fari ekki bara allt
ágætlega saman hérna,“ segir
Magnús.
„Það er alltaf hægt að ganga lengra“
Sýningar Ólafar Helgu Helgadóttur og Magnúsar Helgasonar verða opnaðar í Gerðarsafni í Kópa-
vogi í dag Eru í sýningaröðinni „Skúlptúr/Skúlptúr“ þar sem staða höggmyndalistar er skoðuð
Morgunblaðið/Einar Falur
Stemning „Ég einblíndi sérstaklega á þrívíð verk, skúlptúrinn, og þetta var
vissulega áskorun,“ segir Ólöf Helga um sýningu sína í Gerðarsafni.
Morgunblaðið/Einar Falur
Dótarí „Ég hef lengi verið heillaður af svífandi brauði,“ segir Magnús og að
fleiri slík vanti inn á listasöfn. Mótorar og málverk mætast á sýningunni.
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020
Nú finnur þú
það sem þú
leitar að á
FINNA.is Stærðarinnar skúlptúr eftir franskalistamanninn Xavier Veilhan sést
hér á mynd, annar af svokölluðum
Vårberg-risum sem nú má sjá í Vår-
berg, einu af úthverfum Stokkhólms
í Svíþjóð. Efnt var til samkeppni um
útilistaverk í hverfinu og varð Veil-
han hlutskarpastur en hann hefur
gert fjölda útilistaverka víða um
heim og á langan feril að baki sem
myndlistarmaður. Samkeppnin var
hluti af endurbótaverkefni sem nefn-
ist Fokus Skarholmen.
Risarnir tveir eru samsettir úr 89
steypueiningum sem málaðar eru
himinbláar og mynda saman mann-
verur. Þyngstu einingarnar eru um
sex tonn og skúlptúrarnir því engin
smásmíði.
AFP
Risi Annar af tveimur skúlptúrum Xavier Veilhan í Vårberg í Stokkhólmi.
Flatmag-
andi risi
í Svíþjóð