Morgunblaðið - 18.11.2020, Page 28
Eitt hundrað ár eru í dag liðin frá
andláti Matthíasar Joch-
umssonar, þjóðskálds Íslend-
inga, og hefur Flóra menningar-
hús á Akureyri með stuðningi
Menningarsjóðs Akureyrar látið
gera myndskeið þar sem Vil-
hjálmur B. Bragason fjallar um
Matthías sem leikritaskáld og
þýðanda. Matthías var áhrifarík-
ur í nærsamfélaginu og mótandi
persónuleiki í samfélagsþróun
Akureyrar á sinni tíð og fólksins í kringum hann. Mynd-
skeiðið var tekið upp á degi íslenskrar tungu í fyrradag
í Sigurhæðum á Akureyri, húsi Matthíasar og Guðrúnar
eiginkonu hans, og verður því miðlað á Youtube, Face-
book og Instagram frá og með deginum í dag. Í und-
irbúningi er annað myndskeið í svipuðum dúr sem mun
birtast í byrjun desember. Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
mun í því fjalla um Matthías sem jafnræðissinna og
talsmann kvenfrelsis.
Vilhjálmur fjallar um Matthías
sem leikritaskáld og þýðanda
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ljósmyndasýning Friðþjófs
Helgasonar, „Svona er Akranes“,
sem er skammt frá Höfða hjúkr-
unar- og dvalarheimili við Langa-
sand, hefur vakið mikla athygli, að
sögn Ellu Maríu Gunnarsdóttur,
forstöðumanns menningar- og
safnamála Akraneskaupstaðar.
„Sýningin verður til áramóta og
við viljum halda áfram á sömu
braut í samvinnu við áhugasama
sýnendur, en ég vona að við get-
um haldið fjórar til sex ámóta úti-
sýningar árlega,“ segir hún.
Myndirnar eru á tíu stöplum,
sem keyptir voru nýlega, og er
hægt að sýna tvö verk á hverjum.
„Ég hef gengið með þessa hug-
mynd í maganum síðan ég tók við
starfinu í byrjun árs 2016 og hún
hefur gerjast í undirmeðvitund-
inni,“ segir Ella um fyrstu útisýn-
inguna við Langasand. „Í öllu
mótlæti koma oft óvænt tækifæri.
Þar sem við gátum ekki staðið að
viðburðahaldi með eðlilegum hætti
í sumar vegna kórónuveiru-
faraldursins voru til fjármunir
sem hægt var að nýta í annað í
staðinn. Þá fannst mér tilvalið að
láta verða af því að kaupstaðurinn
kæmi sér upp svona undir-
stöðum.“
Heppilegur sýningarstaður
Ella ákvað að setja sýninguna
upp við Langasand, því þar ættu
margir leið um daglega, ýmist
gangandi, hlaupandi eða hjólandi.
Auk þess hafi hún haft íbúana á
Höfða í huga. „Mér fannst þetta
augljós kostur, því náttúran og
umhverfið skapa sérstakan ramma
utan um sýningu á þessum stað
auk þess sem hvíla má lúna fætur
á bekkjum sem þarna eru. Þetta
er vinsælt útivistarsvæði hjá
Skagamönnum og sýning í um-
hverfinu fer því ekki fram hjá
neinum sem á leið um, en aðrir
sýningarstaðir koma líka til
greina, þó með þeim fyrirvara að
það kostar að færa stöplana og við
þurfum að gæta aðhalds í fjár-
málum. Við viljum frekar borga
fyrir fleiri sýningar en flutninga.“
Ella bendir á að hvort sem nú-
verandi ástand varðandi takmark-
anir á hópamyndun haldi áfram
eða ekki þá gefi útisýningar svo
mörgum tækifæri á að skoða verk
í næði. „Ég þekki dæmi þess að
sýningarsalir virka fráhrindandi,“
segir hún og vísar til þess að sum-
ir séu óöruggir í návist yfirsetu-
fólks og jafnvel jafnvel listamann-
anna sjálfra, óttist að þurfa að
tala við þá. „Útisýningar gefa
meðal annars þessu fólki ákveðið
frelsi til að njóta þeirra. Sýning
án opnunar- og lokunartíma er
líka frábær kostur því við lifum
öll ólíku lífi og misjafnir tímar
henta okkur öllum mismunandi
vel.“
Framhald útisýningarhald á
Akranesi hefur ekki verið full-
mótað. „Ákjósanlegt væri að geta
boðið upp á fjölbreyttar sýningar,
í rauninni hvað sem er sem sýna
má á mynd,“ segir Ella og leggur
áherslu á að hún sé opin fyrir öll-
um hugmyndum. Þess vegna vilji
hún hvetja áhugasama sýnendur
til að láta í sér heyra (mannlif@-
akranes.is). „Við hjá kaupstaðnum
reynum að vinna málin þannig að
við sköpum umgjörð fyrir aðra til
þess að láta verkefni þeirra verða
að veruleika. Við styðjum með
ýmsum hætti við verkefni sem
skapandi fólk í samfélaginu vinnur
að og útisýningar falla þar undir.“
Vaxtarbroddur
í menningarlífinu
Menning Ella María Gunnarsdóttir
á bókasafni Akraneskaupstaðar.
Útisýningar í samvinnu við áhugasama sýnendur á Akranesi
Nýjung Fyrsta útisýningin við Langasand hefur vakið athygli.
Jólalögin eru far
in að
hljóma í útvarpin
u!
Jólaútvarpsstöðin JólaRetró er komin í loftið á FM
89.5 á höfuðborgarsvæðinu, FM 101.9 á Akureyri og á
netinu inn á jolaretro.is. Við spilum bara bestu jólalögin
allan sólarhinginn fram að jólum.
Reynsluboltinn Bjarni Ara snýr aftur í útvarp á
JólaRetró og sér um jólastemninguna síðdegis, alla
virka daga frá 14 til 18.
Stilltu á JólaRetró og fáðu jólagleðina
beint í æð.
Virka dag
a 14 - 18
FM
89,
5
FM
101
,9
(Aku
reyri)
OG Á
JOL
ARE
TRO
.ISMIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 323. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Martin Hermannsson verður ekki með íslenska karla-
landsliðinu í körfuknattleik þegar liðið mætir Lúxem-
borg og Kosovó í forkeppni HM 2023, í lok nóvember.
Leikirnir fara fram í Bratislava í Slóvakíu vegna kórónu-
veirunnar en til stóð að báðir leikirnir færu fram hér á
landi. Ísland mætir Lúxemborg 26. nóvember og Kos-
ovó 28. nóvember. Landsliðsþjálfarinn Craig Pederson
valdi alls 13 leikmenn í hópinn að þessu sinni en þeir
Haukur Helgi Pálsson og Tryggvi Snær Hlinason eru
báðir í hópnum, þeir leika báðir á Spáni. »23
Tveir mikilvægir leikir fram undan
hjá karlalandsliðinu í körfuknattleik
ÍÞRÓTTIR MENNING