Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 2
2 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
❄
26.11.2020
Settu á þig bláan
augnskugga og
lífið skánar um
63%.
72
Lovísa dýrkar
að klæða
sig fallega.
60
Útbjó draumaíbúðina fyrir
jólin í stað þess að flytja.
98
Vertu kúl og gefðu
aðventugjafir!
100
Katrín
Júlíusdóttir
fann ástina
35 ára.
18
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is Guðrún Selma
Sigurjónsdóttir gudrunselma@mbl.is, Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson.
E
ftir frekar súrt ár sem einkenndist
af veikindum, ótta, bjargarleysi,
vonleysi, leiðindum, von-
brigðum og reiði koma þó alltaf
jól. Orkustig landsmanna er
kannski örlítið lægra en oft áður enda margt í
umhverfinu sem hefur áhrif á það. Fólk sem er til
dæmis ekki vant því að vinna heima hjá sér getur
orðið skrýtið þegar það fer ekki út úr húsi og hittir
fáa. Fólk sem hefur þurft að fara í sóttkví einu sinni
eða oftar veit að lífið verður svolítið brenglað þegar það
getur ekki gert það sem það er vant að gera og finnst sjálfsagt. Svo ekki sé
minnst á það hvernig þeir hafa það sem urðu alvarlega veikir eða misstu ást-
vini. Kvart um heimavinnu og djammleysi verður goslaust í þeim samanburði.
Það er áhugavert að sjá hvernig fólki hættir til að haga sér þegar það hefur
ekki fulla stjórn á tilverunni. Það verður til dæmis meira áberandi á samfélags-
miðlum hver er „freki karlinn“ eða „freki krakkinn“ sem er vanur að fá sitt og
hverjir mæta lífinu með æðruleysi. Ég heyrði á það minnst hjá sérfræðingi að
fólk væri í barnasjálfinu sínu á þessum veirutímum sem gerði það að verkum
að það væru litlu við sem réðum för.
Þessi pæling hitti mig í hjartastað því ég hef lagt töluvert á mig til þess að
vera ekki átta ára Marta María Jónasdóttir alla daga (lesist Emma öfugsnúna).
Eitthvað úr æskunni getur truflað okkur það mikið á fullorðinsárum að við
getum orðið algerlega óþolandi sem fullorðin.
Það getur gerst án þess að við gerum okkur grein fyrir því. Ég datt til dæm-
is alltaf í þessa átta ára ef það var ekki allt eftir mínu höfði, sem getur brotist út
í stjórnlausri frekju.
Þessi mótvindur var ekki alltaf appelsínugul eða rauð viðvörun. Hún hafði
kannski varla lit því hún var svo smávægileg en varð að risastormi í hausnum
þegar þessi átta ára var við stjórnvölinn. Það þarf náttúrlega ekki að nefna
það, en það er óþolandi að freki krakkinn taki stjórnina á líf-
inu. Ef fólk vill ekki hafa það þannig þá þarf að bregðast við.
Svo eru það þeir sem hafa orðið fyrir stórum áföllum í líf-
inu og komist í gegnum þau. Þessi hópur á það sameig-
inlegt að hafa lært að hugga sig sjálfur þegar á móti
blæs. Það er eiginlega alveg sama hvað gerist í lífi fólks,
það eru alltaf til einhverjar leiðir til að fara í gegnum hluti
– sama hvaða leið fólk velur.
Líf okkar hér í myrkri og kulda heldur áfram þótt það sé
kannski örlítið öðruvísi en áður og jólin koma þótt þau
verði kannski með breyttu sniði. Ég mæli með því að við
reynum að sjá það jákvæða í þessari veiru og lærum að
vera þakklát fyrir það sem er gott í lífi okkar. Restina geta
fagmenn hjálpað okkur að díla við (ef við nennum því).
Annars bara gleðileg jól!
Freki karlinn eða
freki krakkinn?
Marta María Jónasdóttir
Margrét María
töfrar fram hand-
gerðar jólagjafir.
112
Hleyptu
diskókúlunni
út!
66
52
Kristín Þóra Jónsdóttir á
að eiga á aðfangadag.
4
114
Ásdísi Rán dreymir
um jólakærasta.
24
Margrét Bjarnadóttir
segir að villibráð sé
ómissandi.
Sykurlaus
súkkulaðimús
keyrir upp
jólastemn-
inguna.
Jólin koma þótt
árið hafi verið
öðruvísi en
búist var við.