Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 56

Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 56
R ósa Guðbjartsdóttir veit fátt betra en nærandistund við lestur eða matseld heima hjá sér áKirkuveginum. Rósa er mikill sælkeri og eftir hana liggja bæk-ur sem endurspegla ástríðu hennar á mat og hvers kyns ræktun. Ástríðan endurspeglast á heimilinu í fjölda bóka, matjurta, í hænum og hundahaldi. Heimilið er eins og lítið sjálf- bært sveitasetur í miðbæ Hafnarfjarðar. Hjarta Rósu sjálfrar hefur slegið í Hafnarfirði nær allt hennar líf með stuttri viðkomu erlendis og í öðrum bæjum en leiðin hefur alltaf legið heim til Hafnarfjarðar aftur. Hún er með eindæmum jákvæð og horfir dreymnum og bjartsýnum augum til framtíðar, bæði fyrir börnin sín sem fylla hana af stolti á degi hverjum og samfélagið sem hún hefur verið órjúfanlegur hluti af svo lengi. Ástin á lífinu hefur komið henni í gegnum áföll og lífsins áskoran- ir og líður henni best með marga bolta á lofti. Ævintýraþrá togaði í fjölskylduna og færði hana til Flórída um tíma. Rósa, sem er stjórnmálafræðingur í grunninn, hefur komið víða við, starfaði lengi vel við blaða- og fréttamennsku og svo sem framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna frá 2001-2006 þar sem hún er enn formaður stjórnar. Áður en hún settist í stól bæjarstjóra var hún bæjarfulltrúi og ritstjóri hjá Bókafélaginu. Rósa er gift Jónasi Sigurgeirssyni og eiga þau fjögur börn. Finnst jólin skemmtilegur tími „Ég er dottin í jólagírinn og farin að undirbúa jólahátíðina heima við. Þetta er svo skemmtilegur tími en jafnframt annasam- ur á vinnustaðnum. Undanfarnar vikur og mánuðir hafa að sjálf- sögðu verið óvenjulegir hjá Hafnarfjarðarbæ eins og annars staðar vegna kórónuveirunnar. Ný verkefni og nýjar áskoranir sem gerðu ekki boð á undan sér en hafa verið hrein viðbót við dagleg störf og rekstur bæjarfélagsins. Samhliða er stafræn inn- leiðing að eiga sér stað sem kallar á allsherjar endurskoðun á skipulagi, hugsun og ferlum. Við höfum lagt áherslu á það að halda öllu gangandi og reynt að gefa í hvað varðar framkvæmdir, viðhald og verkefni til að sýna gott fordæmi. Stóru verkefnin þessa dagana snúa meðal annars að fjárhagsáætlun fyrir kom- andi ár. Það er í mörg horn að líta.“ Hvernig undirbýrðu jólin fyrir Hafnarfjörð? „Við höfum verið að koma bænum í jólabúning og leggjum mikið upp úr því að hingað sé notalegt að koma á aðventunni. Hér er allt til alls; frábær kaffi- og veitingahús, fallegar sérverslanir þar sem mikið er lagt upp úr persónulegri þjónustu svo ekki sé talað um hið eina sanna jólaþorp sem sífellt fleiri sækja heim á hverju ári. Hafnarfjörður er orðinn sannkallaður jólabær þar sem fjölskyldur og vinahópar upplifa hlýlega og afslappaða jóla- stemningu. Það hefur verið sérlega ánægjulegt að sjá hve margir sækja okkur heim úr nágrannasveitarfélögunum og sækja í þann jólaanda sem ríkir í bænum. Jólahúsin í jólaþorpinu, skreyting- arnar í kringum það og viðburðirnir draga líka marga að. Í jóla- þorpinu er hægt að kaupa listmuni og handverk, sælkeravörur og annað fallegt í jólapakkana.“ Jólaljósin sett upp fyrr en áður Rósa segir að á þessu ári hafi verið ákveðið að setja jólaljósin í miðbænum upp mun fyrr en áður. „Hvít, mild ljós lífga svo ótrúlega upp í skammdeginu og hafi einhvern tíma verið þörf á því þá er það á þessu hausti. Kveikt var á fyrstu ljósunum, á trjám, staurum og víðar, í seinni hluta október og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Íbúar nutu þess strax að gera sér ferð í miðbæinn til að njóta fallegra ljósanna og mildrar birtunnar frá þeim. Ljósin minna okkur á það sem mestu skiptir í lífinu; hlýju, mildi og ástina. Það hefur verið frábært að sjá hve bæjarbúar hafa tekið vel í áskorun um að skreyta snemma í ár og setja ljósin upp. Ég fullyrði að bærinn hafi aldrei skartað eins fallegum ljósum og verið eins fagur og nú. Við erum enn að skreyta og til stendur að gera Hellisgerði að ómissandi við- komustað fyrir alla fjölskylduna í desember. Hlýleikinn mun ráða ríkjum í Jólabænum Hafnarfirði á aðventunni.“ Hvað gerir þú með bæjarbúum og starfsfólki þínu? „Stærsti jólaviðburðurinn er þegar jólaþorpið er formlega opn- að og kveikt er á jólatrénu á Thorsplani í upphafi aðventunnar. Það er jafnan tilhlökkunarefni og safnast mikill fjöldi fólks saman til að njóta. Síðan hefur tekið við þétt dagskrá á sviði jólaþorpsins allar helgar og ýmsir viðburðir í menningarstofnunum bæjarins alveg fram að jólum. Að þessu sinni stefnir allt í að lítið verði um skipulagða dagskrá en við látum það ekki slá okkur út af laginu og notum reynsluna til að færa okkur í annan farveg þar sem jólalög, óskipulögð dagskrá og óvæntar uppákomur munu setja svip sinn á bæjarlífið. Fastir liðir með starfsfólki í Ráðhúsi Hafnarfjarðar á aðventunni fela í sér jólapeysudag, jólahlaðborð í hádeginu og jólastund þar sem hópurinn hefur komið saman við arineld með Með dýrindismat á jólunum Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra Hafnarfjarðar er margt til lista lagt. Hún gerir glæsilega kjötveislu á jólunum enda veit hún fátt skemmtilegra en að elda. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Andri Þór Unnarsson Rósa er farin að undirbúa jólin enda er hún mik- ið fyrir að elda og skreyta fyrir jólin. ❄ SJÁ SÍÐU 58 56 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020 Við höfum alltaf kalkún á aðfangadags- kvöld og hef ég notað sömu aðferðina við matreiðsluna í mörg ár en prófa mig áfram og breyti fyllingunni gjarnan. Kjötið verður meyrt og ljúffengt og húðin stökk með þeirri aðferð sem ég gef hérna upp. Þíðið kalkúninn í kæliskáp í 2-3 daga, eft- ir stærð hans. Takið innyflin úr og geymið í kæli. Gott er að setja kalkúninn í saltpækil yfir nótt, það finnst mér gera kjötið enn mýkra en ella. Gerið ráð fyrir um 450 g af kjöti á mann. Þá verður líka til afgangur til að narta í yfir hátíðarnar eða til að nota í smárétti. 1 kalkúni (5-6 kg) Fylling: 4-6 brauðsneiðar (má sleppa) 2 epli, flysjuð og skorin í bita 1 dl rúsínur 1 dl pekanhnetur, gróft saxaðar 2 handfyllir fersk steinselja 5-6 pylsur, skornar í bita 1 stór laukur, saxaður smátt 2 sellerístilkar, sneiddir 2 blaðlaukar, sneiddir salt, grófmalaður pipar og kalkúnakrydd ólífuolía eða smjör Aðferð Skerið brauðið í teninga (skorpu- laust) og setjið í skál. Blandið eplum, rús- ínum, pekanhnetum og ferskri steinseljunni saman við brauðið. Bætið síðan pylsum, lauk, blaðlauk og selleríi í skálina. Bleytið í öllu saman með kjúklingasoðinu, blandið og kryddið vel. Kryddið síðan fuglinn vel með salti, pipar og kalkúnakryddi. Setjið fyll- inguna inn í kalkúnann rétt áður en honum er stungið í ofninn. Setjið afganginn af fyll- ingunni í eldfast mót og bakið í um 20 mín- útur í lok matreiðslunnar á kalkúnanum. Ég miða við að elda kalkúna í 45 mínútur á hvert kíló; lengst af við mjög vægan hita, eða aðeins 120°C. Þegar um hálftími er eftir af matreiðslunni er hitinn hækkaður í 180°C. Það er mjög mikilvægt að hella soð- inu af kalkúna yfir hann eða pensla hann með smjöri af og til meðan á steikingunni stendur. Einfaldasta ráðið er þó að dýfa grisjuklút eða einhverju álíka í brætt smjör eða ólífuolíu og breiða yfir fuglinn. Stykkið er síðan tekið af hálftíma áður en steikingu lýkur, þegar hitinn er hækkaður. Gott er að láta kalkúnann standa í 5-10 mínútur við stofuhita áður en hann er borinn á borð á fallegu fati. Skreytið fatið með ferskri steinselju, rósmaríngreinum og ferskum trönuberjum sem raðað er í kringum kal- kúnann. Sósa innyflin úr kalkúnanum 2 sellerístilkar 2 laukar salt, grófmalaður pipar og kalkúnakrydd 5 dl kalkúna- eða kjúklingasoð (helst sigt- að soð af fuglinum sjálfum, annars má búa til soð úr góðum kalkúna- eða kjúklinga- krafti) 3-4 dl rjómi Steikið innyflin á pönnu og saltið og pipr- ið. Bætið niðurskornum lauk og selleríi saman við. Þegar þetta hefur brúnast er helmingnum af kalkúna- eða kjúklingasoð- inu bætt út í og látið malla við mjög vægan hita í 1-2 tíma. Þá er soðið sigtað (innyflin, laukurinn og selleríið tekið frá) og kryddað vel með kalkúnakryddi. Síðan er rjóma bætt saman við soðið og látið malla við væg- an hita þar til þykknar, hrært í á meðan. Kryddið til að smekk. Þeir sem vilja hafa sósuna bragðsterka geta t.d. bætt villibráðarkryddi út í. Saltpækill Setjið kalkúna í fat eða fötu og fyllið upp með vatni. Leysið sykur og salt upp í vatn- inu og piprið líka. Miðið við 50 g af salti og 80 g af sykri í hvern lítra af vatni sem þið notið. Látið fuglinn liggja í pæklinum á köldum stað, sem dæmi utandyra, en lokið eða pakkið þá einhverju utan um. Síðan er fuglinn skolaður vel að utan sem innan og þerraður áður en matreiðslan hefst. Kalkúnn með pylsum, blaðlauk og eplum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.