Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 94
Sígrænu jólatrén eru í hæsta gæðaflokki auk
þess að vera mjög falleg og líkjast þannig
raunverulegum trjám.
Við bjóðum nú upp á 5 mismunandi gerðir af
jólatrjám í mörgum stærðum, með og án LED
ljósa. Einföld samsetning og aldrei meira úrval.
Skoðaðu kostina
• Ekkert barr að ryksuga
• Ekki ofnæmisvaldandi
• 12 stærðir (60-500 cm)
• Fáanlegt með ljósaseríu
• Íslenskar leiðbeiningar
• Eldtraust
• Engin vökvun
• Stálfótur fylgir
Fallegjólatré
Verið velkomin í jólaskóg
skátanna í Hraunbæ 123 eða
verslaðu beint á sigraena.is
- sem endast ár eftir ár!
Hraunbær 123 | s. 550 9800 | www.sigraena.is
Opnunartímar:
Virkir dagar kl. 09-18
Helgar kl. 12-18
94 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
E lísa Ólöf Guðmunds-dóttir, blómahönnuðurog eigandi blómaversl-unarinnar 4 árstíða,segir að hún leggi sig
fram um að vera glöð, þakklát og
bjartsýn á þessum erfiðu og skrítnu
tímum.
„Við erum á leið inn í yndislegan
tíma aðventunnar þar sem við ætl-
um að njóta saman á fallega
skreyttum heimilum og gera vel við
okkur. Það er alltaf best að mínu
mati.
Við hjá 4 árstíðum flytjum sjálf
inn afskorin blóm og pottaplöntur í
bland við íslenska framleiðslu og
leggjum mikið upp úr því að vera
með fallegt og öðruvísi úrval blóma
þar sem tegundir og litir er valið í
takt við hvern árstíma.“
Frjálslegir vendir vinsælir
Elísa segir tískuna í blómum í
dag vera villt blanda blóma með
exótískum stórum blómum.
„Uppröðun og flæði verður þann-
ig skemmtilega frjálslegt og vönd-
urinn falleg hönnun.“
Elísa segir túlípana alltaf vinsæl
jólablóm en hún bendir á fleiri blóm
sem eru falleg á þessum árstíma.
„Vinsæl jólablóm eru protea,
amarylis, helleborus, skimma, flam-
ingo eða anthurium. Afskornar
greinar og öðruvísi greni er einnig
fallegt. Sem dæmi má nefna crypto-
meria, thuja, silkifura og svo auðvit-
að laukblómin; túlípanar, hiasintur,
animonur og ranaculus.“
Alltaf með stórt jólatré heima
Heima hjá Elísu er stórt og fal-
legt jólatré um jólin.
„Við erum enn þá með stórt
jólatré og þarf að mínu mati að velja
það vel. Ég hef alltaf verið ákveðin
með það. Ég vil hafa það hátt og
grannt nóbilisgreni. Ekki of þétt og
með svolítið bústnar greinar.
Við setjum tréð alltaf upp sjö til
tíu dögum fyrir jól. Ég byrja á að
skreyta það létt og bæti svo í hátíð-
leikann þegar nær dregur. Í dag er
ég aðallega með mattar kúlur á
trénu, glerkúlur og flauel og skraut-
lega páfugla. Litirnir í jólaskrautinu
eru gull, kopar og grænir tónar.
Svo eru alltaf nokkrir vasar af fal-
legum blómum og greinum ilmandi
um húsið. Kertaljós og kósýheit
skipta öllu máli á mínu heimili.“
Þegar kemur að góðum aðfanga-
degi segir hún hann vera í faðmi
fjölskyldunnar.
„Það er ekkert betra en að njóta
saman og að upplifa hamingjuna í
gegnum barnabörnin. Ég er þakklát
fyrir stundirnar með fjölskyldunni
um jólin.“
Kaupir gjafirnar á Íslandi
Blóm geta verið einstaklega falleg
á kökur og með mat.
„Ég skreyti kökur og mat með
blómum allan ársins hring og rækta
sérstaklega blómategundir til þess.
Það er svo fallegt og gerir allt svo
glaðlegt og girnilegt.
Ég elska hátíðarilminn frá Geysi
og kaupi hann alltaf fyrir jólin.“
Þegar kemur að jólagjafainn-
kaupum þá eru þau vanalega gerð á
Íslandi fyrir jólin.
„Jólagjafainnkaupin eru oftast
gerð í verslunum hér heima í okkar
fallegu sérbúðum þar sem boðið er
upp á íslenska hönnun, eitthvað
notaleg og svo kaupi ég alltaf bækur
í jólagjafir.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Upplifir
hamingjuna
í gegnum
barnabörnin
Elísa Ólöf Guðmundsdóttir leggur mikið upp úr
blómaskreytingum fyrir jólin. Hún er enn þá með stórt
jólatré heima hjá sér og skreytir það í viku fyrir jólin.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Elísa Ólöf er sérfræðingur
í að gera fallega blóm-
vendi sem minna á jólin.