Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 26
Pavloa
6 eggjahvítur
400 g sykur
1 msk. kornsterkja (maísmjöl)
1½ tsk edik
Aðferð Hitið ofninn á 120°C.
Blandið maísmjöli og sykri sam-
an.
Þeytið eggjahvítur og bætið
smám saman sykrinum saman við.
Hellið edikinu út í þegar eggja-
hvíturnar hafa náð stífum topp-
um.
Haldið áfram að þeyta þar til
marengsinn er orðinn mjög stífur.
Setjið á ofnplötu með smjör-
pappír undir og bakið í 60 mínútur
eða þar til botninn er tilbúinn.
Látið kólna við stofuhita.
Appelsínukrem
¼ bolli sykur
2 tsk. kornsterkja
2 egg
2 eggjarauður
½ bolli ferskur appelsínusafi
1 msk. sítrónusafi
85 g smjör
Aðferð Byrjið á því að skera
smjörið niður í litla kubba.
Blandið sykri og kornsterkju
saman í pott.
Bætið eggjum og eggjarauðum
saman við og setjið á miðlungs-
hita og hrærið stöðugt.
Blandið næst appelsínu- og sítr-
ónusafanum út í blönduna.
Að lokum setjið þið smjörkubb-
ana smám saman út í og hrærið
stöðugt á meðan í um það bil sjö
mínútur eða þar til blandan hefur
þykknað hæfilega.
Þegar blandan hefur náð æski-
legri þykkt skal taka hana strax
af hita og setja í annað ílát.
Kælið í 2-3 klukkustundir.
Rjómi
500 g rjómi
sérrí
Aðferð Þeytið rjóma og bætið sér-
ríi út í eftir smekk.
Þegar pavlovubotninn er tilbú-
inn setjið þá rjómann ofan á.
Hellið næst appelsínukreminu
yfir. Raðið mandarínum í miðjuna
á kökunni og sigtið flórsykur yfir.
Mandarínu-pavlóva
26 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
Ég er svo heppin að eiga þrjú yngri systkini og það
hefur verið svo gaman að vera með þeim í jólaundir-
búningnum. Baka saman kökur, velja dagatal, skreyta
heima og njóta samverunnar. Ég og yngsta systir mín,
Guðríður Lína, verjum miklum tíma saman. Við förum
á hverju ári og veljum nokkra pakka sem fara í góð-
gerðarmál.
Mér finnst fátt skemmtilegra en að vera í góðra vina
hópi og spila á þessum tíma árs, ekki verra ef það er
jólaglögg með. Annars er ég ein af þeim sem geri allt á
síðustu stundu, á Þorláksmessu er ég yfirleitt á yfir-
snúningi. Ég reyni þó alltaf að koma því við að fá mér
Kalda jólabjór í frystu glasi. Það er ákveðin hefð hjá
mér. Ég fór í fyrsta sinn í fyrra á jólasýninguna í Ás-
mundarsal. Mér fannst það æðislegt og kem til með að
gera það aftur. Ég get heldur ekki sleppt því að minn-
ast á stemninguna á Jómfrúnni í desember.“
Rjúpan besti maturinn
Hvað verður á veisluborðunum um jólin?
„Mér finnst villibráð ómissandi um jólin. Ég er ekki
mikið fyrir reyktan mat. Rjúpa er sá allra besti matur
sem ég fæ. Í minni fjölskyldu erum við oftast með
humarsúpu eða rækjukokteil í forrétt og rjúpur með
klassísku jólameðlæti í aðalrétt. Mér finnst ómissandi
að hafa waldorf-salatið hennar ömmu, með nóg af
sherrí út í! Síðan sér amma yfirleitt um að gera jólaís-
inn. Ég hugsa að það sé best að amma sjái bara um
hann, bróðir mömmu tók hann að sér eitt skiptið en
áttaði sig á því að hann setti eggjahvítur í staðinn fyrir
eggjarauður þegar fólk var byrjað að gæða sér á ísn-
um.
Þóra Margrét mamma mín sér alltaf um jólamatinn
og gerir það með glæsibrag, enda er hún einn besti
kokkur sem að ég þekki.“
Áttu góða minningu frá jólunum frá því þú varst
barn?
❄ SJÁ SÍÐU 28
Ég er svo heppin að eiga þrjú yngri
systkini og það hefur verið svo gaman
að vera með þeim í jólaundirbúningnum.
Baka saman kökur, velja dagatal, skreyta
heima og njóta samverunnar.
❄
LitlaJólabúðin
Laugaveg 8, Rvk. S. 552 2412
Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-17
Heimsókn frá ykkur
og við björgum því
Vantar ykkur
jólagjöf?