Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 50
Grafinn lax með graflaxsósu
Hjá sumum koma ekki jól nema fólk fái grafinn
lax í forrétt. Til þess að gera graflaxinn að hátíðar-
mat skaltu útbúa þína eigin graflaxsósu. Hér er
uppskrift sem er einföld og ferlega bragðgóð.
Graflaxsósa
100 g sætt sinnep
100 g sinnep
100 g púðursykur
100 g repjuolía
150 g majónes
30 g þurrkað dill
skvetta af koníaki (má sleppa)
Aðferð Sinnep og púðursykur sett í hræri-
vélarskál, olíu hellt rólega saman við. Majónesi og
dilli blandað út í.
Heitreyktur lax með
piparrótarsósu
Þú tekur heitreyktan lax frá Norðan-
fiski og skerð niður og setur á disk. Til að
toppa þennan rétt er mjög gott að hafa
heimagerða piparrótarsósu með. Best er
að útbúa hana daginn áður.
Piparrótarsósa
200 g súrmjólk
250 g majónes
30 g piparrót
60 g hunang
15 g salt
Aðferð Öllu hráefni er blandað saman í
skál og best er að leyfa sósunni að taka
sig inni í ísskáp yfir nótt.
Einfaldar en ljúffeng-
ar hugmyndir að
forréttum úr hafinu
Grafni laxinn
verður helmingi
ljúffengari ef þú útbýrð
þína eigin graflaxsósu
til að hafa með fiskinum.
Hinrik Örn Lárusson og Viktor Örn Andrésson í Sælkerabúð-
inni útbjuggu girnilega forrétti þar sem þeir notuðu fisk frá Norðan-
fiski. Hér eru tvær uppskriftir að forréttum sem er auðvelt að útbúa
en eru jafnframt mjög bragðgóðir. Annars vegar heitreyktur lax með
piparrótarsósu og grafinn lax með heimagerðri graflaxsósu.
Marta María | mm@mbl.is
Heitreyktur lax er
mjög góður í forrétt.
ÍSLENSK HÖNNUN - þú finnur réttu jólagjöfina hjá okkur
www.heklaislandi.is - S: 6993366
Fallegir postulíns bollarEnglakertastjakar
Mikið úrval af skúlptúrum
50 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
O kkur finnst spennandi aðgefa eitthvað sem færi vel íaðventuboði, mat sem fer velá borði og passar vel saman.Við erum með margar slíkar
vörur, allt íslenskar vörur sem skila fallegu
matarhandverki,“ segir Anna og bætir við:
„Íslenski maturinn á aðventunni er það
sem gefur okkur jólastemninguna og þá
nefni ég tvíreykt hangikjöt, síld, reykt og
grafið kjöt og fisk með viðeigandi sósum,
graflaxsósa og piparrótarsósu ásamt lifrar-
kæfum og kryddpylsum. Einnig eru góðir
ostar nauðsynlegir ásamt sultum og krydd-
sultum, hunangi, pestói, góðu súrdeigsbrauði,
laufabrauði og kryddsmjöri. Það er ekki erf-
itt að útbúa stórveislu með þessum ljúffengu
vörum sem virkilega er nostrað við í fram-
leiðslu. Einnig erum við með rétti fyrir þá
sem eru vegan eins og Seitan hátíðarsteik,
hnetursteik og grænmetisbuff og myndum þá
bjóða frábæra sveppasósu með og mikið úr-
val af sultuðu grænmeti. Síðan er heitt
súkkulaði með þeyttum sveitarjóma nauðsyn-
legt í frostinu og jólaamstrinu, ldquo segir
hún.
Alíslenskar
sælkeravörur
Anna Júlíusdóttir rekur vefverslunina Gott og blessað
ásamt Sveinbjörgu Jónsdóttur og Jóhönnu Björnsdóttur.
Þar eru í boði alíslenskar vörur sem lyfta boðinu upp á
næsta stig en vörurnar eru líka tilvaldar jólagjafir fyrir sælkera.
Marta María | mm@mbl.is