Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 120

Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 120
Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 Hátíðarnar nálgast, allt tilbúið í Laxdal dressin kominS ipar 120 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020 Morgunblaðið/Árni Sæberg elskum, virðum, hjálpum og finnum til á jólunum. Virðum náunga okkar, setjum aðra en okkur sjálf í forgrunn og leggjum rækt við að efla samband okkar við ástvini. Fyr- irgefum gamlar syndir og stofnum til nýrra kærleiks- sambanda. Það sem meira er; við ýkjum upp þessa hegðun í samræmi við væntingar jólasiða. Um leið eru jólin birtingarmynd mögulegra endaloka mannsins. Eyðingarhegðunar og neyslu sem gengur markvisst á auðlindir jarðar, náttúru og loftslag – hegðun sem eykur á ójöfnuð og félagslegt óréttlæti. Allt það at- ferli sem maðurinn hefur ekki stjórn á í tilliti sjálfbærni og óréttlætis tekur á sig trylltan veldisvöxt yfir jólahátíðina. Það hvílir mikil ábyrgð á kristnum sið að segja stopp. Í rauninni er mikið tækifæri fólgið fyrir hinn kristna sið í að sýna forystuhlutverk sitt, stöðu og mikilvægi og gerast hávær rödd breytinganna með aðgerðum. Jólahegðun mannsins mun líklegast breytast, með meiri áherslu á sjálfbæra kærleikshátíð ljóss, trúar og friðar. Þessa þróun á kirkjan að leiða.“ Jólin eru fjölskyldutími Hvaða hefðir eru í hávegum hafðar á jólunum hjá þér? „Jólin eru fyrst og fremst fjölskyldutími hjá okkur. Börnin okkar fæddust öll fyrir vestan, þar sem við bjugg- um í sjö ár, og fjölskyldan hafði þann jólasið að fara í skóg- ræktina, bæði á Ísafirði og í Súðavík, og fella tré fyrir jól- in. Hluti af grisjun skógarins og dásamleg jólahefð. Eftir að við fluttum aftur í bæinn höfum við reynt að halda í þessa hefð. Þá var ein af innilegustu jólahefðunum þegar ég var sveitarstjóri að keyra út jólagjafir til starfsmanna sveitar- félagsins fyrir hádegi á aðfangadag. Þetta gerði ég með börnunum og það var mikil helgistund. Þá fer ég og næ í jólarjúpu fyrir jólamatinn. Við erum alltaf með rjúpu á aðfangadag. Við förum að leiði pabba á aðfangadag og eigum þar stutta stund. Á aðfangadag erum við líka með möndlugraut og spila- gjöf, lax og graflaxsósu og ískalda rauða kók í gleri í há- deginu.“ Hver er elsta jólaminningin þín? „Ég held að það sé forkunnarfagur rauður og svartur Stigasleði. Man enn hamingjutilfinninguna.“ Erfitt að upplifa jólin eftir föðurmissinn Voru jólin skemmtileg á þínu heimili í bernsku? „Já, jólin voru mikill fjölskyldutími. Svo kom tímabil eft- ir að pabbi dó þar sem við fjölskyldan vorum aðeins að finna okkur í mistrinu. Núna eru jólin afar formföst fjöl- skyldu- og barnajól.“ Hver er besta gjöfin sem þú hefur fengið? „Þetta er hættuleg spurning. Ég er lánsamur og elsk- aður maður og hef fengið margar dásamlegar gjafir í gegnum tíðina. Fyrsta jólagjöfin mín frá Millu konunni minni er eftirminnilegust. Innihaldið sjálfsagt ekki merki- legt í samhengi sögunnar sem við vorum þá að hefja. Þá fékk ég einu ég sinni fyrir langa löngu handskrifaða bók frá Björgu Magnúsdóttur, vinkonu minni og sjón- varpskonu, en þá vorum við platónskir sambýlingar á Neshaganum. Bókin er 35 upprifjanir á ævintýrum ársins sem var þá að líða. Stundum eru óvæntar gjafir bænheyrsla – skiptir inn til og tekur út lausa í gangi lífsins.“ P étur lítur á jólin sem fjölskylduhátíð. Hannstarfaði áður sem sveitarstjóri og hefur þvísterkar taugar til landsbyggðarinnar á þess-um tíma. Pétur er giftur Margréti Lilju Vil-mundardóttur. Hún er með BA-próf í guð- fræði, sem gerir samtöl fjölskyldunnar um jólin innihaldsrík og skemmtileg. Hvernig líður þér um jólin? „Stundum finnst mér eins og jólin séu segulmögnun allra kosta mannsins og ókosta. Þau laða fram það stór- kostlegasta í fari mannsins og um leið stærstu lestina. Við Hvert er þitt hlutverk á jólunum í heimilishaldinu? „Við Milla erum afar samrýnd í jólahaldinu og göngum í störf hvort annars. Ætli eldamennskan sé ekki það hlut- verk sem ég hef yfirumsjón með.“ Hvað mælirðu með fyrir alla að gera um jólin? „Kaupa minna, borða betur, sofa meira og elska alla.“ Hvaða kirkja er í uppáhaldi hjá þér yfir hátíðina? „Ég á þrjár uppáhaldskirkjur yfir jólahátíðina: Fyrst skal nefna Súðavíkurkirkju. Þá hlustum við alltaf á Dóm- kirkjuguðþjónustu sem hefst hátíðlega klukkan 18. Svo er Fríkirkjan í Reykjavík með dásamlega miðnæturmessu.“ Samtöl við konuna fyrir jólin áhugaverð Hefurðu átt skemmtilegt spjall við prest fyrir jólin sem breytti jólunum fyrir þér? „Já, það má segja að öll samtöl við konuna mína um jól- in hafi breytt jólunum smátt og smátt í mína mestu gæfu; okkar eigin fjölskyldujól.“ Hvaða máli skiptir í lífinu að eiga æðri mátt? „Já, æðri máttur er sprungan sem leiðir ljósið inn. Það er mikilvægt að hver og einn finni sína leið að æðri mætti og viðurkenni vanmátt sinn gagnvart undri lífsins.“ Hvað vonarðu að gerist þessi jólin? „Það stórstkostlega við jólin er það að þau eiga tilveru sína undir Guði – ekki mönnum, veiru og líðan hagkerfa. Jólin í ár verða því stórskostleg, ástrík og gefandi gjöf Guðs ef við viljum.“ Bóluefni á óskalistanum Er eitthvað á óskalistanum hjá þér um jólin? „Já, bóluefni. Til í að deila með mér ef ég fæ. Já, og kannski meiri svefn.“ Kaupir þú þér alltaf nýjan fatnað fyrir jólin? „Ég er veikur fyrir fallegum fötum. Ég reyni samt að gera minna af því. Reyni. Að reyna þýðir ekki alltaf að geta.“ Hvað slær alltaf í gegn sem gjöf fyrir konuna? „Ég hef gefið Millu kjól síðan við jóluðum okkur fyrst.“ Áttu góða uppskrift að skemmtilegum aðfangadegi sem þig langar að deila með lesendum? „Uppskrift að góðum aðfangadegi er fjölskylduvenja sem verður til og mótast með árum og áratugum. Dag- skráin þarf alls ekki að vera ítarleg. Við eigum að forðast að skipuleggja allt annað á aðfangadag.“ Hvað gerir þú á aðventunni? „Ég les Aðventu, um Benedikt og myndarpáfann Leó. Aðventan er síðan smekkfull af menningar- og fé- lagsviðburðum sem gera hana bæði stórkostlega og stór- kostlega krefjandi.“ Fólk með mismunandi lykla að æðri mætti Áttu þér uppáhaldstónleika fyrir jólin? „Ég held að mannfólkið eigi sér mismunandi lykla að æðri mætti – við finnum Guð með alls konar leiðum. Fyrir mér er menning djúpsamtal við æðri mátt – þá sérstak- lega tónlist. Alls konar tónlist! Þannig eru jólin í mínum anda hljómatjáning með orðum. Þar ægir öllu saman, allt frá sálminum Nóttin var sú ágæt ein yfir í River með Joni Mitchell og þaðan í Mín bernskujól eftir Jórunni Viðar og í bestu jólaplötu allra tíma; Christmas með Low. Alveg stórkostleg! Svo er Jólahjól þarna einhvers staðar líka. Ég get samt ekki hlustað á jólaútvarpsstöðvar – þá er- um við farin að tala um eyðingarmátt mannsins.“ Pétri Georg Markan, samskipta- stjóra Biskupsstofu, finnst jólin stundum eins og segulmögnun allra kosta og ókosta mannsins. Þau laði fram það stórkostlegasta í fari mannsins og um leið stærstu lestina. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Pétur segir jólin hátíð barnanna og fjölskyldunnar. „Jólin eru alls konar“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.