Morgunblaðið - 26.11.2020, Qupperneq 120
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
Hátíðarnar nálgast,
allt tilbúið í Laxdal
dressin kominS ipar
120 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
Morgunblaðið/Árni Sæberg
elskum, virðum, hjálpum og finnum til á jólunum. Virðum
náunga okkar, setjum aðra en okkur sjálf í forgrunn og
leggjum rækt við að efla samband okkar við ástvini. Fyr-
irgefum gamlar syndir og stofnum til nýrra kærleiks-
sambanda. Það sem meira er; við ýkjum upp þessa hegðun
í samræmi við væntingar jólasiða.
Um leið eru jólin birtingarmynd mögulegra endaloka
mannsins. Eyðingarhegðunar og neyslu sem gengur
markvisst á auðlindir jarðar, náttúru og loftslag – hegðun
sem eykur á ójöfnuð og félagslegt óréttlæti. Allt það at-
ferli sem maðurinn hefur ekki stjórn á í tilliti sjálfbærni og
óréttlætis tekur á sig trylltan veldisvöxt yfir jólahátíðina.
Það hvílir mikil ábyrgð á kristnum sið að segja stopp. Í
rauninni er mikið tækifæri fólgið fyrir hinn kristna sið í að
sýna forystuhlutverk sitt, stöðu og mikilvægi og gerast
hávær rödd breytinganna með aðgerðum.
Jólahegðun mannsins mun líklegast breytast, með meiri
áherslu á sjálfbæra kærleikshátíð ljóss, trúar og friðar.
Þessa þróun á kirkjan að leiða.“
Jólin eru fjölskyldutími
Hvaða hefðir eru í hávegum hafðar á jólunum hjá þér?
„Jólin eru fyrst og fremst fjölskyldutími hjá okkur.
Börnin okkar fæddust öll fyrir vestan, þar sem við bjugg-
um í sjö ár, og fjölskyldan hafði þann jólasið að fara í skóg-
ræktina, bæði á Ísafirði og í Súðavík, og fella tré fyrir jól-
in. Hluti af grisjun skógarins og dásamleg jólahefð. Eftir
að við fluttum aftur í bæinn höfum við reynt að halda í
þessa hefð.
Þá var ein af innilegustu jólahefðunum þegar ég var
sveitarstjóri að keyra út jólagjafir til starfsmanna sveitar-
félagsins fyrir hádegi á aðfangadag. Þetta gerði ég með
börnunum og það var mikil helgistund.
Þá fer ég og næ í jólarjúpu fyrir jólamatinn. Við erum
alltaf með rjúpu á aðfangadag.
Við förum að leiði pabba á aðfangadag og eigum þar
stutta stund.
Á aðfangadag erum við líka með möndlugraut og spila-
gjöf, lax og graflaxsósu og ískalda rauða kók í gleri í há-
deginu.“
Hver er elsta jólaminningin þín?
„Ég held að það sé forkunnarfagur rauður og svartur
Stigasleði. Man enn hamingjutilfinninguna.“
Erfitt að upplifa jólin eftir föðurmissinn
Voru jólin skemmtileg á þínu heimili í bernsku?
„Já, jólin voru mikill fjölskyldutími. Svo kom tímabil eft-
ir að pabbi dó þar sem við fjölskyldan vorum aðeins að
finna okkur í mistrinu. Núna eru jólin afar formföst fjöl-
skyldu- og barnajól.“
Hver er besta gjöfin sem þú hefur fengið?
„Þetta er hættuleg spurning. Ég er lánsamur og elsk-
aður maður og hef fengið margar dásamlegar gjafir í
gegnum tíðina. Fyrsta jólagjöfin mín frá Millu konunni
minni er eftirminnilegust. Innihaldið sjálfsagt ekki merki-
legt í samhengi sögunnar sem við vorum þá að hefja.
Þá fékk ég einu ég sinni fyrir langa löngu handskrifaða
bók frá Björgu Magnúsdóttur, vinkonu minni og sjón-
varpskonu, en þá vorum við platónskir sambýlingar á
Neshaganum.
Bókin er 35 upprifjanir á ævintýrum ársins sem var þá
að líða. Stundum eru óvæntar gjafir bænheyrsla – skiptir
inn til og tekur út lausa í gangi lífsins.“
P étur lítur á jólin sem fjölskylduhátíð. Hannstarfaði áður sem sveitarstjóri og hefur þvísterkar taugar til landsbyggðarinnar á þess-um tíma. Pétur er giftur Margréti Lilju Vil-mundardóttur. Hún er með BA-próf í guð-
fræði, sem gerir samtöl fjölskyldunnar um jólin
innihaldsrík og skemmtileg.
Hvernig líður þér um jólin?
„Stundum finnst mér eins og jólin séu segulmögnun
allra kosta mannsins og ókosta. Þau laða fram það stór-
kostlegasta í fari mannsins og um leið stærstu lestina. Við
Hvert er þitt hlutverk á jólunum í heimilishaldinu?
„Við Milla erum afar samrýnd í jólahaldinu og göngum í
störf hvort annars. Ætli eldamennskan sé ekki það hlut-
verk sem ég hef yfirumsjón með.“
Hvað mælirðu með fyrir alla að gera um jólin?
„Kaupa minna, borða betur, sofa meira og elska alla.“
Hvaða kirkja er í uppáhaldi hjá þér yfir hátíðina?
„Ég á þrjár uppáhaldskirkjur yfir jólahátíðina: Fyrst
skal nefna Súðavíkurkirkju. Þá hlustum við alltaf á Dóm-
kirkjuguðþjónustu sem hefst hátíðlega klukkan 18. Svo er
Fríkirkjan í Reykjavík með dásamlega miðnæturmessu.“
Samtöl við konuna fyrir jólin áhugaverð
Hefurðu átt skemmtilegt spjall við prest fyrir jólin sem
breytti jólunum fyrir þér?
„Já, það má segja að öll samtöl við konuna mína um jól-
in hafi breytt jólunum smátt og smátt í mína mestu gæfu;
okkar eigin fjölskyldujól.“
Hvaða máli skiptir í lífinu að eiga æðri mátt?
„Já, æðri máttur er sprungan sem leiðir ljósið inn. Það
er mikilvægt að hver og einn finni sína leið að æðri mætti
og viðurkenni vanmátt sinn gagnvart undri lífsins.“
Hvað vonarðu að gerist þessi jólin?
„Það stórstkostlega við jólin er það að þau eiga tilveru
sína undir Guði – ekki mönnum, veiru og líðan hagkerfa.
Jólin í ár verða því stórskostleg, ástrík og gefandi gjöf
Guðs ef við viljum.“
Bóluefni á óskalistanum
Er eitthvað á óskalistanum hjá þér um jólin?
„Já, bóluefni. Til í að deila með mér ef ég fæ. Já, og
kannski meiri svefn.“
Kaupir þú þér alltaf nýjan fatnað fyrir jólin?
„Ég er veikur fyrir fallegum fötum. Ég reyni samt að
gera minna af því. Reyni. Að reyna þýðir ekki alltaf að
geta.“
Hvað slær alltaf í gegn sem gjöf fyrir konuna?
„Ég hef gefið Millu kjól síðan við jóluðum okkur fyrst.“
Áttu góða uppskrift að skemmtilegum aðfangadegi sem
þig langar að deila með lesendum?
„Uppskrift að góðum aðfangadegi er fjölskylduvenja
sem verður til og mótast með árum og áratugum. Dag-
skráin þarf alls ekki að vera ítarleg. Við eigum að forðast
að skipuleggja allt annað á aðfangadag.“
Hvað gerir þú á aðventunni?
„Ég les Aðventu, um Benedikt og myndarpáfann Leó.
Aðventan er síðan smekkfull af menningar- og fé-
lagsviðburðum sem gera hana bæði stórkostlega og stór-
kostlega krefjandi.“
Fólk með mismunandi lykla að æðri mætti
Áttu þér uppáhaldstónleika fyrir jólin?
„Ég held að mannfólkið eigi sér mismunandi lykla að
æðri mætti – við finnum Guð með alls konar leiðum. Fyrir
mér er menning djúpsamtal við æðri mátt – þá sérstak-
lega tónlist. Alls konar tónlist! Þannig eru jólin í mínum
anda hljómatjáning með orðum. Þar ægir öllu saman, allt
frá sálminum Nóttin var sú ágæt ein yfir í River með Joni
Mitchell og þaðan í Mín bernskujól eftir Jórunni Viðar og í
bestu jólaplötu allra tíma; Christmas með Low. Alveg
stórkostleg! Svo er Jólahjól þarna einhvers staðar líka.
Ég get samt ekki hlustað á jólaútvarpsstöðvar – þá er-
um við farin að tala um eyðingarmátt mannsins.“
Pétri Georg Markan, samskipta-
stjóra Biskupsstofu, finnst jólin
stundum eins og segulmögnun allra
kosta og ókosta mannsins. Þau laði
fram það stórkostlegasta í fari
mannsins og um leið stærstu lestina.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Pétur segir jólin
hátíð barnanna og
fjölskyldunnar.
„Jólin
eru alls
konar“