Morgunblaðið - 26.11.2020, Side 10
10 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
hæfileikaríkum listakon-
um og mér finnst að þær
mættu fá aukið vægi í
umræðunni.“
Hugarðu mikið að
fatnaði og tísku fyrir jól-
in?
„Ég huga ekkert
meira að tísku fyrir jólin
en aðra tíma ársins. Ég
nota hins vegar tækifærið
og nota sparilegri fatnað eins
og kjólana mína meira. Mér
finnst gaman að klæða mig upp,
fara í bæinn, á safn og svo á kaffihús
eða út að borða. Eins er ég duglegri að
vera sparilega klædd í vinnunni.“
Hvað keyptir þú síðast í fataskápinn?
„Síðast keypti ég mér geggjaða dúnkápu frá Filippu
K og stóran ullartrefil frá Acne Studios. Dásamlegar
flíkur fyrir kuldaskræfuna mig. Ég nota þær mjög mikið
þessa dagana.“
Besta gjöfin frá börnunum um jólin
Hver er besta gjöfin sem þú hefur fengið á jólunum?
„Gjafirnar frá strákunum mínum slá alltaf í gegn. Það
er alltaf jafn yndisleg tilfinning að upplifa tilhlökkunina í
augum þeirra þegar ég opna gjöfina sem þeir hafa vand-
að sig að gera í skólanum og pakkað fallega inn. Ég á
marga fallega muni eftir þá og þeir eru í sérstöku uppá-
haldi.“
Hvað er í mat á jólunum?
„Á jólunum elda ég alltaf hreindýr og er með humar-
súpu í forrétt. Það sem er í eftirrétt er hins vegar breyti-
legt. Með hreindýrinu hef ég villisveppasósu, trönu-
berjasultu, heimagert rauðkál, waldorfsalat og
hvítlaukssteikt rósakál. Á síðasta ári breytti ég aðeins út
af vananum og ákvað að grilla bæði hreindýr og dádýr.
Það var alveg ofboðslega gott og mikil stemning sem
fylgdi því að grilla á aðfangadag.“
Þegar kemur að hefðum úr barnæsku þá er Jóhanna
frekar frjáls frá þeim.
„Ég held svei mér þá að eina jólahefðin sem ég held í
sé að hlusta á þegar jólin eru hringd inn klukkan sex.
Það þykir mér mikil stemning. Ég var á Íslandi um jólin
eru opnir og ófeimnir að tjá sig, hvort sem það er í kjör-
búðinni eða umferðinni, og það heillar mig alltaf að fylgj-
ast með fólkinu og stemningunni.“
Er mikið jólabarn
Hvaða hug berðu til jólanna?
„Ég er mikið jólabarn og hef gaman af því að sjá um-
hverfið lýsast upp með fallegum skreytingum og þessari
sérstöku stemningu sem er einhvers konar blanda af eft-
irvæntingu og stressi. Ég skreyti sjálf ekki mikið heldur
set upp hluti sem eru mér kærir og hafa fylgt mér lengi.
Ég hef mikið af kertum, set greni í vasa og spila jólalög
frá 1. desember.“
Hvað gerir þú alltaf fyrir jólin?
„Ég nýt aðventunnar. Byrja
snemma að skreyta, baka og hlusta á
jólalög. Í raun er aðventan mér mik-
ilvægari en jólin sjálf. Ég fer mikið á
söfn og kaffihús og hef sérstaklega
haft gaman af því að fara á jólamark-
aðinn í Ásmundarsal þar sem ýmsir
listamenn sýna verk sín og bjóða til
sölu. Jólamarkaðurinn er skemmtileg
uppákoma sem ég vona að sé orðin að
hefð því það er svo gaman að fá tæki-
færi til að sjá fjölbreytileika íslenskrar myndlistar sam-
ankominn á einum stað. Ég er mikill aðdáandi íslenskrar
myndlistar og á mér uppáhaldslistamenn, jafnt samtíma
sem liðna.“
Ætlar að prófa að steikja laufabrauð
Jóhanna hefur aldrei steikt laufabrauð fyrir jólin.
„Í ár stendur til að bæta úr því. Enda er laufa-
brauðsgerð skemmtileg hefð sem gaman er að halda í og
gera að sérstakri samverustund fjölskyldu og vina.“
Ertu dugleg að kaupa handa þér eitthvað fallegt um
jólin?
„Það stendur til að fjárfesta í listaverki eftir unga ís-
lenska listakonu, við erum með nokkrar í huga sem við
ætlum að heimsækja og skoða verk hjá. Ég hef und-
anfarið mikið verið að skoða samtímaverk íslenskra
listakvenna. Við eigum fjöldann allan af einstaklega
í fyrra en mörg undanfarin ár hef ég verið erlendis og
þykir skemmtilegt að upplifa jólastemninguna á hverj-
um stað. Það er til dæmis mikill munur á jólastemningu í
Kaupmannahöfn eða Los Angeles eins og gefur að skilja
en hver staður hefur sinn sjarma og það er gaman að fá
tækifæri til að upplifa ólíkar hefðir og menningu.“
Berst fyrir bættum aðbúnaði heimilislausra
Hvað dreymir þig um að gerist þessi jólin?
„Undanfarið hef ég verið að beita mér fyrir bættum
aðbúnaði heimilislausra í borginni. Þetta er hópur sem
hefur orðið út undan í umræðunni á tímum kórónuveir-
unnar að mínu mati en er mikilægt að halda vel utan um,
því oft á tíðum er þetta fólk sem ekki lætur mikið í sér
heyra. Mér þætti virkilega gott að sjá úrbætur fyrir
þennan hóp sem allra fyrst og vonandi verða komnar
varanlegar lausnir á ýmsum þáttum sem að þessum hópi
snúa fyrir jól.“
Hlakkar til ferðalaga á næsta ári
Til hvers hlakkar þú á nýju
ári?
„Við maðurinn minn eig-
um skútu í Karabíska haf-
inu. Hún er núna á eyj-
unni Grenada en til
stendur að sigla henni
yfir til Martinique. Ég
hlakka mikið til þess.
Ég hef mest gaman
af því í mínu starfi að
fylgja fólki frá upphafi
söluferlis til enda. Að
veita persónulega þjón-
ustu sem felst í því að að-
stoða við uppröðun fyrir
ljósmyndatöku sem er mjög
mikilvægur þáttur söluferlis og
snýr að því að hámarka virði eign-
arinnar. Það er einna mikilvægast í
söluferlinu að myndirnar endurspegli það
besta sem eignin hefur upp á að bjóða og því getur und-
irbúningur fyrir myndatöku skipt sköpum. Að undirbún-
ingi loknum mæti ég svo á staðinn með atvinnu-
ljósmyndara sem sérhæfir sig í myndatöku húsnæðis.
Þessu ferli er svo fylgt eftir með opnu húsi eftir að eign-
in er komin á netið og ég er sjálf á staðnum í opnu húsi.
Þá fer ég með mínum viðskiptavinum að skoða vænt-
anlegt nýtt heimili, aðstoða við ákvörðunartöku og velti
upp möguleikum hverrar eignar fyrir sig. Það er virki-
lega gaman að fá að taka þátt í því ferli að aðstoða fólk
að finna sér nýtt heimili og því mjög gefandi að fá tæki-
færi til að veita persónulega þjónustu.“
Elskar vinnuna sína
Jóhanna hefur séð um sölu á virkilega fallegum hús-
um, bæði á höfuðborgarsvæðinu og fyrir austan fjall.
„Auk þess er ég aðstoða við hönnun innanhúss á íbúð
sem verið er að gera upp, mjög skemmtilegt verkefni
þar sem ég fæ nokkuð frjálsar hendur um val á innrétt-
ingum, gólfefnum og litum ásamt uppröðun innbús og
vali á listaverkum.“
Jóhanna er búsett á tveimur stöðum í dag.
„Annars vegar bý ég í Garðabæ þar sem drengirnir
mínir ganga í Sjálandsskóla og hins vegar á eyjunni
Traustholtshólma. Þar er ég einmitt stödd núna þar sem
við erum að ganga frá húsinu okkar fyrir veturinn. Í eyj-
unni, sem er 23 hektarar að stærð, er laxveiði, mikið
fuglalíf og fjölbreyttur gróður – sannkölluð paradís.“
„Undanfarið hef
ég beitt mér fyrir
bættum aðbúnaði
heimilislausra í borginni.
Þetta er hópur sem hefur
orðið út undan í umræð-
unni á tímum kórónuveir-
unnar en er mikilvægt
að halda vel utan um.“
❄
Ljósmynd/Hákon Kjalar
Stílhreinum hlut-
um er raðað upp á
huggulegan hátt.
Jóhanna Íris segir mikilvægt
að kaupa listaverk af íslensk-
um konum fyrir jólin.
Jóhanna ásamt Bellu
hundinum sínum.
Heimili Jóhönnu Írisar
er stílhreint og fallegt.