Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 62
M ér finnst dásamlegt að fá að vera til staðar,vera eyru, axlir og klappstýra dætra minna.Þess á milli er ég með hausinn ofan í alls kon-ar verkefnum sem ég hrindi í framkvæmdeða ekki. Ég er menntaður viðskiptafræð-
ingur með master í fjármálum og reyni að finna mér verkefni
sem eru þannig að ég geti verið eilítið laus við líka,“ segir
Lovísa um verkefnin sín um þessar mundir.
Lovísa lenti í alvarlegu bílslysi í febrúar á þessu ári þar sem
bíll ók í veg fyrir hana á þjóðvegi og mátti litlu muna að illa færi.
„Ég er búin að vera að finna út úr umbreytingunum í lífinu.
Þetta hefur verið niðurbrjótandi og mikill tími farið í endurhæf-
ingu, sjúkraþjálfun, sálfræðinga- og læknisheimsóknir. Slysið
var á sama tíma mikill vendipunktur og uppvakning. Lífið var
allt í einu hverfult og þó að ég, líkt og allir, viti hvernig þetta
endar að lokum, þá var það í mínum huga mjög fjarlægt á þess-
um tíma. Þannig hristi þessi lífsreynsla vel upp í mér og ég fór
að líta lífið öðrum augum. Kannski af því að ég var föst og
komst ekkert nema inn á við.“
Lovísa segir að áður en hún lenti í slysinu hafi hlutirnir geng-
ið út á að láta allt ganga upp.
„Í dag spyr ég mig frekar: Af öllu því sem ég get verið að
gera í lífinu, langar mig að vera að gera þetta?
Ég er ótúrlega þakklát fyrir að hafa fengið að stíga upp úr
hjólastól og fá að eignast með tímanum heilbrigðar hendur og
fætur. Það er bara svo mögnuð gleði í því.“
Gaman að undirbúa jólin með fjölskyldunni
Lovísa heldur í margar hefðir jólanna.
„Ég, mamma og systir mín höfum bakað sörur saman fyrir
jólin sem er æðisleg samvera. Við gerum jólakrans og erum
með piparkökukeppni á heimilinu sem vindur upp á sig á hverju
ári. Við höfum látið það eftir pabba að fara í skötu sem okkur
finnst öllum alveg hræðileg. Á sama tíma hafa dætur mínar
gaman af því að halda fyrir nefið og lifa þetta af og horfa á afa
og ömmu borða svo þennan illa lyktandi mat og jafnvel látið sig
hafa það að smakka. Mér þykir vænt um þá hefð að tendra ljós
á leiðinu hennar ömmu á Þorláksmessukvöld eftir góða hnet-
usteik og jafnvel rölt um bæinn. Á aðfangadag förum við alltaf í
möndlugraut hjá mömmu í hádeginu, sem er alveg ómissandi.“
Lovísa er handavinnukona og þegar blaðamann bar að garði
hafði hún saumað jólanáttföt á stelpurnar sínar.
„Amma mín var mikil handavinnukona. Það lék einhvern veg-
inn allt í höndunum á henni. Á unglingsárunum settu búkhlut-
föllin mín strik í reikninginn í tískuinnkaupum. Hún kippti því í
liðinn, lagaði öll fötin og endursaumaði heilu flíkurnar á mig.
Þessi dásamlega samvera hefur líklega verið kveikjan að því að
pæla í sniðum og efnum. Svo hef ég gaman af því að sauma sjálf.“
Það er auðséð að dætur Lovísu eru mikil jólabörn.
„Já, þær eru mikil jólabörn og hafa gaman af öllu þessu
stússi. Þær velta því samt stundum fyrir sér hvenær það væri
tímabært að hætta að setja skóinn út í glugga. En jólasvein-
arnir koma hingað með 39 gjafir dagana fyrir jól, sem þær
kunna ósköp vel. Helst vilja þær svo hafa jólatré inni í öllum
herbergjum.“
Nýtir tímann í dag til að læra eitthvað nýtt
Jólin snúast að mati Lovísu um huggulegheit. Á jólunum
klæðir húr sig í klassískan fatnað og velur sér gjarnan eitthvað
úr fataskápnum.
Lovísa hefur nýtt stundirnar á kórónuveirutímum vel. Hún
er mikið fyrir að dunda sér heima og mælir með því að læra
eitthvað nýtt í þessu ástandi og njóta þess að vera með börn-
unum.
Hvað mælirðu með að gera með börnunum?
„Fara með þau til ömmu og læra að steikja kleinur eða taka
slátur. Leggja flísar og prjóna peysur, skrifa sögur eða dag-
bækur og tala við þau og veita þeim athygli.
Besta uppeldisráð sem ég hef fengið er að börn fæðast full-
komin. Það eina sem þarf að gera er að skemma þau ekki. Sem
hljómar frekar einfalt en er flóknasta verkefnið sem ég hef tek-
ist á við. Hvenær ertu að leiðbeina og ala upp og hvenær ertu að
stjórna og taka fram fyrir hendur þeirra? Tilfinningar eru
flóknar, margbrotnar og síbreytilegar bæði hjá okkur sjálfum
og börnum. Öll erum við ekkert nema mannleg.
Ég held að það sé gagnlegt sem foreldri að taka upplýsta
ákvörðun um hvaða hegðun eða venjum úr eigin reynsluheimi
er gott að miðla áfram til barna sinna. Þannig tel ég mikilvægt
að æða ekki áfram af hugsunarleysi og gömlum vana.“
Lovísa segir gaman að vaxa og þroskast í lífinu og vellíðan sé
orð sem hún leggur aðra merkingu í en hún gerði áður.
„Þegar börnin voru lítil fólst vellíðan í því að eyða tíma á gólf-
inu að leika með þeim. Púsla, lesa, setja saman eða raða dóti
sem þær fengu í jólagjöf. Reyna að halda rútínu, þannig að
svefn barnanna færi ekki úr skorðum og þar með dagarnir þar
á eftir. Eftir því sem börnum fjölgaði komu búferlaflutningar.
Þeim fylgdi oft þráhyggja um að laga þetta og klára hitt fyrir
jólin. Þegar ég horfi til baka get ég ekki annað en brosað yfir
metnaðinum og dugnaðinum og á sama tíma hrist hausinn yfir
ruglinu. Misskilningurinn fólst í því að þetta gæfi af sér ein-
hverja vellíðan en staðreyndin var fjarverandi móðir vegna
þreytu. Núna nenni ég engum stórræðum fyrir jólin. Ef ein-
hverjar frábærar hugmyndir koma upp, þá eru þær tímasettar
og framkvæmdar í janúar. Núna veit ég ekkert betra en að
njóta aðventunnar og hitta fjölskyldu og vini. Lesa góðar bæk-
ur, borða smákökur og hendast í heitt bað með jólafroðuilmi.“
Mikið jólabarn
Það er auðséð að Klara Bryndís Gunn-
arsdóttir, yngsta barn Lovísu, er mikið jóla-
barn. Í raun má segja að Klöru Bryndísi líði
aldrei eins vel og á jólunum.
„Á jólunum líður mér vel í hjartanu. Það er
svo mikill friður og ró og það finnst mér bara
svo gaman. Það skemmtilegasta við jólin er að
hafa gaman og vera með fjölskyldunni. Að
skreyta og kaupa pakka og að gera allt tilbúið
er einnig það skemmtilegasta.“
Strax eftir hrekkjavökuna fer Klara Bryn-
dís af stað í að skreyta.
„Ég myndi vilja byrja að skreyta í sept-
ember, en ég byrja alltaf að skeyta strax eftir
hrekkjavökuna. Mamma segir að ég þurfi að
bíða eftir að það sé búið áður en ég fer að
skreyta fyrir jólin. Ég byrja svona snemma
því þá eru jólin lengri fyrir mér.“
Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður
stór?
„Ég ætla að vinna í jólabúðinni á Akureyri
eða stofna mína eigin jólabúð. Kannski verð ég svo leikkona
á sumrin,“ segir Klara Bryndís.
Hana dreymir um candy-floss-vél í jólagjöf, himnasæng
og að fá fimleikasalinn leigðan svo hún geti haldið áfram að
æfa sig.
Besta gjöfin sem hún hefur gefið er skraut sem hún bjó
til sjálf í skólanum.
„Ég gerði jólakúlu í skólanum sem var rosalega fín.
Hanna systir mín var rosalega glöð einu sinni þegar ég
pakkaði inn pening og gaf henni. Hún var alltaf að tala um
hvað hana vantaði pening. Ég fékk einu sinni 10.000 króna
pening frá ömmu og afa í afmælisgjöf og mamma mín var
ekkert búin að leyfa mér að nota hann. Ég mátti ekki kaupa
nammi fyrir hann og ekki fara í ísbúðina og ekki kaupa dót
þannig að ég hafði ekkert að gera við hann svo ég bara
pakkaði honum inn og gaf henni.“
Hver er uppáhaldsjólasveinninn? „Þeir eru allir geggj-
aðir. Mér finnst betra að vera ekki að metast með þá og
móðga. Það er ekki gott út af því að þá eru þeir sem ég
nefni ekki ekkert að vanda sig með gjafirnar.“
Áttu góða uppskrift sem þú gerir alltaf á jólunum sem þú
værir til í að deila með lesendum?
„Mér finnst skemmtilegast að gera pipakökur og skreyta
þær en ég kann ekki að búa til deigið. Mamma mín gerir
það. Við fletjum út og bökum og svo erum við með keppni
hver gerir flottustu piparkökuna. Hanna systir mín vann í
fyrra. Ég hef líka unnið og Björg systir mín og mamma en
aldrei pabbi.“
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Lovísa lenti í alvarlegu slysi í
upphafi ársins sem fékk hana til
að endurskoða lífið og tilveruna.
„Slysið var á sama tíma mikill
vendipunktur og uppvakning.“
❄
Klöru Bryndísi Gunnars-
dóttur finnst ekkert
skemmtilegra en jólin.
62 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020