Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 74
N atalie byrjaði á að setja Clarins Plant Gold á andlitAnítu en það er fullkomið fyrir þurra vetrarhúð.„Kremið er blanda af hreinni ilmkjarnaolíu og rot-varnarefnalausu rakakremi og veitir húðinni djúpanæringu og fallegan ljóma. Því næst
setti ég augnkremið Shiseido Vital Perfection Eye
Cream í kringum augun en það birtir, þéttir og slétt-
ir. Grunnurinn að förðun skiptir öllu máli og þá sér-
staklega á augnsvæðinu. Vital Perfection-augnkremið
dregur úr bláma og þrota sem leyfir mér að komast
upp með að nota töluvert minni hyljara,“ segir
Natalie.
Mattur farði á upp á pallborðið um þessar mundir.
Chanel Ultra Le Teint Velvet er léttur og vatns-
kenndur og veitir húðinni næga þekju til að fullkomna
húðtón án þess að vera gervilegur. Farðinn endist
allan daginn og sléttir yfirborð húðarinnar. Því
næst setti hún augnskuggablýantinn frá Guerlain
sem heitir Mad Eyes Shadow Duo.
„Þeir eru fljótlegir, endast vel og auðvelt að blanda þá út
með fingrunum. Ég notaði Mad Eyes Shadow Duo í litnum
Warm Brown, dekkri litinn til að ramma inn augun og bland-
aði svo út með fíngrunum til að mýkja hann.
Ég setti svo örlítið af sanseraða ljósari litn-
um yfir miðju augnloksins og í innri krók
til að lýsa augnsvæðið. Þar sem förðunin
er mjög eðlileg og fersk fannst mér mik-
ilvægt að velja góðan maskara til að
skerpa vel á augunum. Clarins Wonder
Perfect-maskarinn lengir mikið og þétt-
ir augnhárin vel. Ekki verra að hann nærir augnhárin
og örvar hárvöxt,“ segir hún.
„Til að fá hlýrri húðtón og skerpa kinnbein
notaði ég kremsólarpúður frá Chanel. Krem
hentar sérstaklega vel á veturna þar sem
það veitir húðinni aukaraka. Liturinn á
Les Beiges Bronzing Cream er gylltur og
hlýr og hentar fullkomlega til að fríska
upp á gráa vetrarhúð,“ segir Natalie, sem
setti svo uppáhaldskinnalitinn sinn á Anítu.
„Clarins Glow 2 Go í litum 02 Golden Peach er í uppá-
haldi og nota ég hann daglega. Ég nota hann með fingr-
unum og blanda hann hátt á kinnbein til að móta andlit
og veita frískleika. Liturinn er hinn fullkomi ferskjulitur
sem hentar flestum húðtónum,“ segir hún og að lokum
setti hún gloss frá Clarins á varirnar.
„Léttur gloss að lokum sem veitir raka og léttan lit.
Clarins Lip Perfector er í miklu uppáhaldi hjá mér þar
sem hann kemur í veg fyrir þurrk en á sama tíma
veitir hann fallegan glans og léttan lit. Á Anítu notaði
ég lit 02, sem er ljós ferskjulitur, af því hann tónaði vel
við kinnalitinn en litur 16 er einnig í miklu uppáhaldi
og mikið notaður.“
Leikkonan Aníta Briem er stödd á Íslandi þessa dagana vegna
kórónuveirunnar en lungann úr fullorðinsárunum hefur hún verið búsett
í Bandaríkjunum. Natalie Kristín Hamzenhpour, förðunarmeistari
hjá Nathan og Olsen, farðaði Anítu með látlausri hátíðarförðun.
Marta María | mm@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Farðinn Ultra
Le Teint Velvet
frá Chanel er
þunnur en
þekur þó vel.
Wonder Perfect mask-
arinn frá Clarins gefur
augnhárunum meiri dýpt.
Látlaus hátíðarförðun
Þetta augnkrem
frá Shisheido gerir
kraftaverk fyrir
þreytt augnsvæði.
Natalie
dýrkar
þetta gloss
frá Clarins.
Stundum á
hún það til að
nota það sem
kinnalit ef hún
er í miklu
stuði.
„Til að fá hlýrri húðtón og skerpa
kinnbein notaði ég kremsólar-
púður frá Chanel. Krem hentar
sérstaklega vel á veturna þar
sem það veitir húðinni aukaraka.
❄
Augnskugga-
blýanturinn Mad
Eyes Shadow Duo
frá Guerlain er auð-
veldur í notkun.
Það er mjög
auðvelt að
skyggja andlitið
með þessum
kinnalit.
Clarins Plant Gold
er fullkomið efni
fyrir þurra húð.
74 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
kollurinn/margir litir
Ljós íslenskrar náttúru/Eldgos
sjá nánar á fuzzy.is
Hvað er fegurra en Ísland í margbreytilegri birtu.
Hver
glerkúpull
hefur fyrirmynd
úr íslenskri náttúru.
Tímalaus íslensk hönnun eftir
Sigurð Má Helgason
fuzzy gjöf ástar og góðra tækifæra
Nú þegar dimm-
ustu vikur ársins
eru framundan
gerir það mikið
fyrir geðheils-
una að líta
ekki út eins
og grápoka-
rotta. Fátt gerir
meira fyrir
sjálfstraustið en
að skrúbba sig vel í
sturtunni og bera svo
á sig gullfallegt brúnku-
krem.
Nýja brúnkuvatnið frá St. Tropez
gerir líka meira en bara að gefa þér
fallegt sólkysst útlit, það gefur húð-
inni þinni D-vítamínið sem hana
sárlega vantar á þessum tíma árs. Í
St. Tropez Self Tan Purity Vitamins
er að finna bæði D-vítamín og C-
vítamín. C-vítamínið hjálpar til við
að gera húðina bjartari og líflegri á
meðan D-vítamínið hressir þig við.
Það er einnig undursamleg lykt
af vatninu sem flytur þig beint til
suðrænna landa. Það er engum
blöðum um það að fletta að það
eru fáir á leið í sólina um jólin. Það
er samt alveg hægt
að vera brúnn í
mesta skamm-
deginu.
Samhliða
brúnkuvatninu
er fullkomið að
nota brúnku-
serumið frá St.
Tropez Purity Vi-
tamins. Mælt er
með því að skrúbba
líkamann og andlitið
vel að kvöldi til og bera svo
vatnið og serumið á. Það er best að
bera brúnkuna á með þar til gerð-
um brúnkuhanska og nota svo þétt-
an förðunarbursta til að bera létt lag
á hendurnar. Serumið getur þú bor-
ið á með höndunum en mundu að
þvo hendurnar strax á eftir.
Brúnkan er ekki lengi að þorna,
aðeins nokkrar mínútur. Síðan er
best að skella sér í náttfötin og
morguninn eftir vaknar þú eins og
þú hafir verið að koma frá Tenerife.
Brúnkan smitast ekki í náttfötin né
rúmfötin og það besta við hana er
að þú þarft ekki að skola hana af.
sonja@mbl.is
Frískleg og heilbrigð
húð í skammdeginu