Morgunblaðið - 26.11.2020, Qupperneq 90

Morgunblaðið - 26.11.2020, Qupperneq 90
tíma. Þá losar hún sig við pöddur, fær góða lykt og köngl- arnir opnast. Hún spreyjar könglana til dæmis í litum eða leyfir þeim að vera náttúrulegum. Rósa býður fólki í kaffi í garðskálanum og segir að krakkarnir hennar sem eru 17 og 20 ára noti líka skálann til að hitta vini. „Þetta er fínn staður til þess að hittast, borða og hlusta á tónlist. Á kvöldin er myrkur og maður sér stjörnurnar, það er svo geggjað að vera inni í svona glerhúsi. Þótt það sé brjálað rok og rigning úti þá er alltaf logn og þurrt inni í gróðurhúsinu,“ segir Rósa. Sköpunarkraftur Rósu kemur bersýnilega í ljós á fal- legu heimili hennar og í starfinu í blómabúðinni en líka í eldhúsinu. Rósa á erfitt með að fara eftir uppskriftum og segist alltaf vera að bæta og breyta, líka á jólunum. Alltaf að prófa eitthvað nýtt í eldhúsinu „Mér finnst gaman að prófa eitthvað nýtt. Ég er ekkert fyrir stress en er samt vön að vera á síðustu stundu með allt. Fer jafnvel að versla í matinn á Þorláksmessu með engan miða og kaupi bara eitthvað. Mér finnst spennandi að vera ekki með uppskrift þegar ég elda og baka og ef svo ólíklega vill til að ég sé með uppskrift þá er ég alltaf búin að bæta einhverju við af því þá kemur eitthvað óvænt út úr ofninum sem er skemmtilegt. Það skiptir ekki máli þótt maður klúðri einhverju stöku sinnum. Jólin eru í mínum huga sambland af stemningu og nostalgíu. Þessi tími kem- ur alltaf svo það er um að gera að njóta hans bara og tapa sér ekki í einhverjum þrifum og stressi.“ Rósa segir það algjör forréttindi að fá að vinna innan um blóm og fallega hluti á hverjum degi í blómabúðinni. Aðventan er háannatími og er Rósa spennt fyrir því að standa vaktina í Blómum og fiðrildum. „Ég er mjög spennt fyrir jólavertíðinni. Við erum með alls konar fallegar skreytingar og gott úrval af íslenskri hönnun og gjafavöru. Suðurver er í alfaraleið með gott að- gengi svo það er þægilegt að koma við og kaupa sér blóm- vönd, pottaplöntu í safnið eða fallegar gjafir. Við erum einnig með kerti, luktir og skreytingar á leiði. Við útbúum skreytingar við öll tækifæri og auk afskorinna blóma bjóð- um við upp á mikið úrval af þurrkuðum blómum og stráum sem eru svo vinsæl núna. Ég hef alltaf verið umkringd blómum. Mamma mín er mikil blómakona og nú er sonur minn búinn að fylla gluggakistuna hjá sér af pottaplöntum. Ég elska að hafa fersk blóm í vasa, bæði þau sem koma úr búðinni en ekki síður þau sem maður tínir úti í garði. Allt í lagi að hafa smá drasl því blómin gleðja og lyfta andanum. Þetta á mjög vel við mig, að vera í blómabúð.“ I nnan um grenitré á stórri lóð hafa Rósa Björg Óla-dóttir og fjölskylda hreiðrað um sig í 23 ár. Í sum-ar bættust aukafermetrar við litla timburhúsiðþegar Rósa fékk gamalt gróðurhús að gjöf frá vin-konu sinni. Jólin í ár verða fyrstu jólin í gróðurhús- inu en líka fyrstu jólin sem verslunarstjóri í nýrri blóma- búð í Suðurveri sem heitir Blóm og fiðrildi. „Gróðurhúsið hafði staðið í garði vinkonu minnar í um 25 ár en hún hafði ekki not fyrir það og bauð mér að koma og sækja það. Ég var auðvitað himinlifandi með það og sumarið fór svo í að taka það í gegn og púsla því aftur sam- an. Það þurfti að endurnýja nokkur gler en annars voru gömlu glerin bara pússuð upp. Þetta var alltaf draumur- inn, að eignast svona gróðurhús. Ég er alltaf eitthvað að rækta blóm og annað en svo er þetta tilvalið til að rækta sjálfan sig og vinskap líka,“ segir Rósa sem lagði á borð í gróðurhúsinu með áherslu á náttúrulegar skreytingar. Skreytir ekki með hefðbundnu jólaskrauti Bleiki liturinn er áberandi á dúkuðu borði Rósu en hún er ekki endilega vön að skreyta með hefðbundnu jóla- skrauti og hinum klassíska rauða lit. Bleik sessa og bleikir púðar gera gróðurhúsið notalegt ásamt lifandi potta- plöntum. Á borðinu er bleikur dúkur, bleik kerti og munstrað stell setur svip á borðið ásamt greni og köngl- um. „Þessa stundina er ég dálítið hrifin af bleiku en ég hef alveg fengið svona gullæði og spreyjað allt gyllt. Ég er mikið fyrir að skreyta en kaupi ekki mikið af jólaskrauti. Ég er með stór grenitré hérna í kring sem þarf oft að grisja og tek bara rosa mikið úr náttúrunni. Mér finnst það flottasta skrautið. Ég er mjög hrifin af könglum, steinum, skeljum, greinum og trjám,“ segir Rósa. Rósa á mikið af hlutum síðan hún byrjaði að búa og seg- ist vera nýtin. Í stað þess að kaupa nýtt reynir hún að breyta því sem hún á. Málar og pússar upp. Fyrir utan húsið stendur fallegt gamalt reiðhjól sem Rósa skreytti með seríum og notar undir blóm. Hjólið keypti hún á þrjú þúsund krónur í Sorpu og málaði bleikt. „Stellið mitt sem ég er með í gróðurhúsinu keypti ég í Miklagarði þegar ég var 16 ára. Ég man að vinkonum mín- um fannst pínu spes að kaupa sér matar- og kaffistell á þessum aldri. Ég sé dóttur mína sem er 17 ára ekki alveg í anda vera að spá í nokkuð svoleiðis.“ Rósa notaði greni úr garðinum hjá sér til þess að skreyta borðið í gróðurhúsinu. Hún fór svo í Elliðaárdal- inn og tíndi köngla þar. Hún er dugleg að tína köngla til þess að skreyta með. Áður en hún býr til skreytingar bak- ar hún könglana í ofni með kanil á lágum hita í um tvo Fékk gróðurhús að gjöf frá vinkonu sinni Rósa Björg Óladóttir býr í sannkölluðu ævintýrahúsi í Blesugróf. Hún setti nýverið upp gróðurhús sem hún notar á alls konar spennandi vegu. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir | gudrunselma@mbl.is Rósa fékk 25 ára gamalt gróðurhús frá vinkonu sinni sem hún hefur skreytt fallega fyrir jólin. Garðhúsið á lóðinni er frábær viðbót við fallega húsið hennar Rósu. 90 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020 Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning, hver og einn eftir bestu getu. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur er hafin Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma S. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is Jólasöfnun
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.