Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 98

Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 98
É g er að æfa mig í að setjamig í fyrsta sæti, en áþað til að ofhlaða á migverkefnum. Ég reyni aðflokka og raða hverju ég set í forgang og hvað má bíða; svo ég geti notið augnabliksins og lifað í deg- inum í dag.“ Hvað ertu að fást við þessa dagana? „Fyrir utan að vera búin að vera í heimavinnu vegna kórónuveirunnar er ég að passa upp á mig með því að fara út í langa göngutúra. Mér finnst það mjög gott því ég á það til að sitja bara við vinnuna og gleyma mér og svo allt í einu er komið myrkur. Það er ekki gott fyrir mig því þá rennur dag- urinn einhvern veginn út í eitt. Ég er mikil sundkona og sakna þess alveg svakalega að komast ekki í daglega sundið mitt. Annars reyni ég ávallt að velja mér viðhorf inn í daginn og segja mér að hver dagur er gjöf fyrir mig og hamingja mín felst í því að vera hér og nú.“ Var áður óstjórnlega spennt fyrir pökkunum Hvaða hug berðu til jólanna? „Mér finnst jólin yndislegur tími, það kemur alltaf einhver spenningur í mig eins og þegar ég var lítil stelpa. Þegar ég var lítil var ég óstjórnlega spennt fyrir pökkum og ekki skrýtið því ég fékk og fæ enn alltaf svo fal- legar gjafir frá mínum nánustu. Í dag felst tilhlökkunin meira í því að njóta þessa dásamlega tíma með góðum mat, samveru og hvíld. Ég vinn mikið og það er svo gott að eiga þessa jóla- daga í hvíld. Ég hef það líka einnig að markmiði um hver jól að lesa í það minnsta eina bók sem ég óska mér í jólagjöf.“ Jenný segir börn einstök fyrir margra hluta sakir. „Börn eru snillingar í að njóta í núinu og hafa gaman. Þau eru ekki í neinu lífsgæðakapphlaupi líkt og fullorðnir. Þau eru líka svo þakklát og við verðum ávallt að leyfa þeim að hlakka til en foreldrar verða að passa að láta þau ekki bíða, sér- staklega þegar kemur að að- fangadegi, því börn eiga erfitt með að bíða og tímaskyn þeirra er allt öðru vísi en fullorðinna. Tíminn þeirra er mun lengur að líða. Einnig er samvera fjölskyldna mjög mikilvæg. Að börn fái að njóta örygg- is og vellíðunar ekki bara á jólum heldur alltaf. Það færir þeim öryggi og vellíðan til frambúðar. Þegar ég var lítil lét mamma okkur systkinin leggja okkur um miðjan daginn til að stytta biðina en það virkaði nú ekki alveg.“ Hvernig hefur gengið að gera upp íbúðina? „Ég er búin að vera að stússa í því í haust að gera upp íbúðina mína og er það búið að vera sannkallað ævintýri. Það var löngu kominn tími á að ég gerði eitthvað við íbúðina. Húsið var byggt árið 1990 og allt upprunalegt í því. Ég hugsaði alveg út í það að kaupa nýrri eða jafnvel nýja íbúð en svo fór ég að hugsa að ég tímdi alls ekki að fara úr hverfinu svo þá var ekkert annað að gera en fara í þessar framkvæmdir, sem ég sé sé ekki eftir núna.“ Fagfólk gerir kraftaverk Jenný mælir með því fyrir alla að fá fagfólk í verkin. „Það gerði algjörlega gæfumuninn fyrir mig að fá mér arkitekt, Rakel Hafberg hjá Berg hönnun. Hún teiknaði allt og kom með hugmyndir og fór með mér í allar búðir. Eins kom hún með prufur og í raun fylgdi hún mér í ferlinu frá upphafi til enda. Ég held að það sé nauðsynlegt þegar maður er einn í svona fram- kvæmdum; að hafa sérfræðinga á sín- um snærum.“ Hvað kom á óvart varðandi breyt- ingarnar? „Það sem kom á óvart er hvað iðn- aðarmenn eru flinkir og vandvirkir og allt hefur staðist hjá þeim. Einnig hve margt er hægt að gera og hvað það eru til margar alls konar lausnir og hvað það er margt skemmtilegt og spennandi til og mikið úrval af. Mér fannst erfitt að velja, að ákveða hvernig ég vildi skreyta og gera heimilið fallegt. Ég hef aldrei hugsað um neitt þessu líkt, hvað þá farið inn í flísabúðir eða verslanir sem selja alls konar dót inn á bað. Svo hefur Elvar Gunnarsson bróðir minn aðstoðað mig við alla málningarvinnu. Ég gæti ekki verið með meiri fagmann í því.“ Jenný er ein af þeim sem gera hlutina sjálf. Hvaðan er það komið? „Ég er ekki viss um hvaðan það er komið. Ég hef bara alltaf verið svona. Gert allt og skipulagt sjálf. Líklega er ég alin þannig upp en ég á harð- duglega foreldra sem héldu alltaf áfram og byggðu upp allt sitt með mikilli vinnu. Ég tel að fái maður slíkt veganesti þá geri maður slíkt hið sama. Svo er það einhvern veginn þannig að líklega gefst ég aldrei upp.“ Skynsöm í fjármálum Jenný segir ýmislegt hafa komið sér á óvart við að gera íbúðina upp og þá peningalega. „Ég hef búið í þessari íbúð síðan árið 2003 en ég keypti hana með fyrr- verandi manninum mínum. Við skild- um árið 2006 og þá héldum ég og börnin okkar tvö áfram að búa hér. Ég hef ekkert gert hérna fyrr en nú því ég átti fullt í fangi með að greiða af lánunum en ég er frekar skynsöm og hef lítið verið í því að eyða um efni fram heldur látið það duga það sem ég hef haft á milli handanna. Ég var aldrei neitt að hreyfa lánin, skuld- breyta né neitt, þannig að ég borgaði alltaf af þeim í öll þessi ár. Verðgildi íbúðarinnar hefur auðvitað aukist jafnt og þétt eftir því sem árin líða og þegar ég fór svo að skoða þetta allt saman sá ég að ég skuldaði orðið mjög lítið í henni og lánin sem verið er að bjóða í dag eru mjög hagstæð Hillurnar í borðstofunni eru úr IKEA. Arinninn inni í stofu er úr Húsgagnahöllinni. Fékk sér draumaíbúðina fyrir jólin Jenný er langt komin með jólaundirbún- inginn á þessu ári. Innréttingar í eldhúsinu eru úr HTH innréttingum. Jennýju Dagbjörtu Gunnarsdóttur þróunarfulltrúa leikskóla Hafnarfjarðar langaði að búa í draumaíbúðinni sinni fyrir jólin. Hún íhugaði að festa kaup á nýju húsnæði, en tók svo ákvörðun um að gefa íbúðinni sinni andlitslyftingu sem tókst heldur betur vel hjá henni. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is 98 JÓLABLAÐ MORGUNBLAÐSINS 26. NÓVEMBER 2020
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.