Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2020 Um skeið mátti halda að Ís-land væri orðið 51. ríkiBandaríkjanna, svo mikill var áhuginn og fréttaflutningurinn af forsetakosningunum í Banda- ríkjunum. Svo mikill að stundum virtust aðrar fréttir vart komast að. Var þó margt annað í fréttum. Liðna helgi var kynnt ný reglugerð um sóttvarnir og skólastarf, en Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra sagði markmiðið að tryggja mennt- un og halda skólahaldi eins óbreyttu og unnt væri, án þess þó að slaka á sóttvörnum í nokkru. Var skólum því hólfaskipt, í 50 manna hópa í yngstu bekkjunum en 25 manna í hinum eldri, svo ekki þyrfti að loka heilu skólunum ef til smits kæmi. Grímuskylda er í eldri bekkjum, þar sem tveggja metra reglunni verður ekki við komið og tíu manna fjölda- takmörk í framhaldsskólum. Bandaríski aðmírállinn Robert Burke og sagði varnarsamstarfið við Ísland svo mikilvægt að til greina kæmi að koma upp varanlegum um- svifum á Íslandi til að treysta varnir á Norður-Atlantshafi. Nefndi svo að það kynni að vera ábatasamt fyrir Íslendinga, rétt eins og hann væri nýbúinn að ræða málin við Aron heitinn í Kauphöllinni. Fyrirætlanir borgarinnar um Nýja- Skerjafjörð, nýtt íbúahverfi við sjó- inn skammt frá flugvellinum, kunna að verða flóknari í framkvæmd eftir að Heilbrigðiseftirlit borgarinnar varaði við því að gert væri ráð fyrir skóla ofan í olíumenguðum jarðvegi. Hann þyrfti að flytja eða hreinsa, enda ótækt að hafa athafnasvæði barna þar. Á Íslandi er engin mót- tökustöð fyrir slíkan jarðveg. Kosningabaráttan í Bandaríkjunum náði hámarki um liðna helgi og fram á mánudag, þótt eftir æ færri at- kvæðum væri að slægjast. Um 90 milljónir manna höfðu annaðhvort neytt atkvæðaréttar síns eða a.m.k. fengið póstatkvæði í hendur fyrir kjördag, svo þá þegar stefndi í met- kjörsókn. Skoski leikarinn Sean Connery lést níræður að aldri. *** Bandaríkjamenn gengu að kjörborð- inu á þriðjudag og voru Joe Biden, félagar hans í Demókrataflokknum og velflestir fjölmiðlar nokkuð vissir um stórsigur. Donald Trump Bandaríkjaforseti lét það þó ekki draga úr sér kjark eða kjaft. Hryðjuverk var framið í Vínarborg þegar vopnaður íslamisti lét til skar- ar skríða skammt frá bænahúsi og safnaðarheimili gyðinga í borginni og skaut fólk nokkuð handahófs- kennt, fjóra til bana og særði 23 aðra, suma lífshættulega. Hann var felldur af lögreglu í skotbardaga. Vínarlögreglan taldi upphaflega að um hóp hryðjuverkamanna væri að ræða, en tilræðismaðurinn reyndist vera einn, austurrískur fylgismaður ISIL af albönskum uppruna. Landspítalinn tók nýja kórónu- veirudeild í gagnið á Landakoti, en hún er ætluð fólki á batavegi, sem enn þarf þó á sjúkrahúsvist að halda. Varðskipið Ægir var auglýst til sölu af Ríkiskaupum, en það var smíðað í Danmörku árið 1968 og á því langa og frækilega sögu að baki við land- helgisgæslu og björgunarstörf. Klippunum svonefndu, sem notaðar voru til þess að skera á togvíra land- helgisbrjóta í þorskastríðunum um 50 mílurnar og 200 mílurnar, beitti fyrst Guðmundur Kærnested skip- herra á Ægi haustið 1972. Fram kom í samtali við Gunnar Egil Sigurðsson, framkvæmdastjóra hjá Samkaupum, að netverslun hjá Nettó hefði haldist stöðug síðan þriðja bylgja kórónuveirunnar reigði sig. Telur hann að neysluhættir dag- vöru hér á landi hafi breyst til fram- búðar. Sögð var frétt af því að rannsóknir á 245 ára gömlum hákarli, sem veidd- ist í haustralli Hafrannsóknastofn- unar árið 2017, leiddu ekki í ljós nein þekkt einkenni hrörnunar, líkt og mannskepnan þarf að glíma við, hvorki í heila né taugakerfi. Bara í fullu fjöri fyrir utan að vera dauður. Í Hafnarfirði hafa verið settir skynjarar í rusladalla bæjarins. Nefnast þeir síðan snjalldallar. Ísfélagið í Vestmannaeyjum hefur fest kaup á norsku skipi, sem heitir því frábæra nafni Harðhaus. Það verður þriðja uppsjávarskip útgerð- arinnar þegar það verður afhent í febrúar. Örlygur Hálfdánarson, bókaútgef- andi og Viðeyingur, lést níræður að aldri. *** Alls reyndist um 101 milljón Banda- ríkjamanna hafa greitt atkvæði utan kjörfundar en samt mynduðust víða miklar raðir við kjörstaði, enda kosningaþátttaka þar meiri en gerst hefur í 120 ár. Viðbúið var að talning myndi víða taka tíma og staðan að lokinni kosninganótt enn í algerri tvísýnu, þótt ljóst væri að fylgi Donalds Trump Bandaríkja- forseta væri talsvert meira en skoð- anakannanir höfðu gefið til kynna. Í ljós kom samkvæmt tölfræði Eurostat, hagstofu Evrópusam- bandsins, að Ísland var í öðru sæti á Norðurlöndum á eftir Svíþjóð, þegar horft var til fjölda umsókna um al- þjóðlega vernd miðað við höfðatölu. Hið sama var upp á teningnum þeg- ar fjöldi dvalarleyfa var skoðaður, en nær þriðji hver umsækjandi fékk hér hæli. Forysta verkalýðshreyfingarinnar vísaði á bug öllum hugmyndum um frestun umsamdra launalækkana, hvað sem liði rekstraráföllum í at- vinnulífi vegna kórónuveirunnar. *** Áhrif kórónuveirunnar brjótast víða fram en allt að þriðjungsaukning hefur verið á sölu í verslunum Krón- unnar undanfarna mánuði, miðað við sama tímabil í fyrra. Ásta Fjeld- sted, framkvæmdastjóri Krón- unnar, segir það ekki koma á óvart, mun fleiri vinni og borði heima hjá sér, mötuneyti og veitingastaðir að mestu lokuð. Sagt var frá því að þörf væri á mik- illi og hraðri uppbyggingu hjúkrunarheimila á næstu árum vegna hlutfallslegrar fjölgunar aldr- aðra. Talið er að íbúum landsins, 80 ára og eldri, fjölgi úr 13 þúsund í 34 þúsund árið 2050. Verði áform stjórnvalda um byggingu hjúkr- unarheimila óbreytt gætu biðlistar sjöfaldast, en nú bíða 400 manns eft- ir hjúkrunarrými. Það þýðir að byggja þyrfti eitt meðal- hjúkrunarheimili á ári. Efnahags- og viðskiptanefnd Al- þingis leggur til verulega útvíkkun á tekjufallsstyrkjum, sem kostað gæti um eða yfir 23 milljarða króna. Óli Björn Kárason formaður nefndar- innar segir að samkvæmt tillögunni muni styrkirnir þá ekki lengur ein- skorðast við allra minnstu fyrir- tækin. Valkvæðar aðgerðir á Landsspítal- anum hefjast tæplega á ný fyrr en í fyrsta lagi 17. nóvember. Nú eru gerðar þar um 35 aðgerðir á dag, sem er rúmur þriðjungur af því sem vanalega gerist. Það verður því tölu- verður stabbi að vinna upp þegar þar að kemur. Þrátt fyrir að úrslit í forsetakosning- unum á þriðjudag væru ljós í flestum ríkjum Bandaríkjanna í lok miðviku- dags, vantaði enn nokkur ríki upp á og svo var mjótt á mununum, bæði í einstökum ríkjum og á heildina litið. Eftir því sem fleiri póstatkvæði voru talin styrktist staða Joe Biden, en það þótti Trump forseta tómt svindl og sakaði demókrata um að reyna að stela kosningunum. Þjóð- málaumræða vestanhafs batnaði ekki við það. *** Fyrsta bylgja kórónuveirunnar kostaði hjúkrunarheimili í landinu um 450 milljónir króna, bæði í bein- um kostnaði og glötuðum tekjum vegna færri innlagna á heimilin. Forvarsmenn þeirra gagnrýna rík- isvaldið fyrir að hafa ekki viljað taka þátt í þeim kostnaði en styðji við eig- in stofnanir. Spenna var á sumum stöðum í borg- inni vegna varaformannskosningar á rafrænum landsfundi Samfylking- arinnar, en þar leiða saman hesta sína þær Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og núverandi varafor- maður, og Helga Vala Helgadóttir alþingismaður. Kosningabaráttan var aðallega á Facebook. Haldið var áfram að skera fé vegna riðu í Skagafirði, sem kom upp á fjórum sauðfjárbúum þar nyrðra. Það er þó ekkert hjá því sem gerist í Danmörku, þar sem verið er að slagta hverjum einasta minki í land- inu vegna kórónuveirusmits. Hér verður ekki sagður brandari um að það hafi minkað. Kosningar í Kanalandi AFP 1.11.-6.11. Andrés Magnússon andres@mbl.is Allt var að verða vitlaust við talningu póstatkvæða í stálborginni Pittsburgh í Pennsylvaníu á föstudag. 20% afsláttur af herra hönskum og húfum um helgina 7. - 8. nóvember FEÐRADAGURINN ER Á MORGUN Verslun | Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | Feldur. is VIÐ SENDUM FRÍTT INNANLANDS - FELDUR.IS

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.