Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Síða 8
Það eru ekki nema 12 ár síðan Apple settiiPhone fyrst á markað, tækið sembreytti heiminum. Tæki okkar tíma,
tækið sem við erum aldrei án. Þetta undratæki
var sími og myndavél, spiladós og tölva; í hvers
manns vasa og hvers manns lófa, síkvik tenging
við netið og umheiminn. Nú eru í heiminum 5,7
milljarðar fullorðins fólks, en af því eiga fjórir
milljarðar snjallsíma.
Í liðinni viku kom út iPhone 12, en hann má fá
í fjórum gerðum, misstórum, misfullkomnum
og misdýrum. Eins og lesa má um að neðan er
mikið varið í tækniundrin í honum, en það er þó
ekki síst útlitið, sem menn dásama. Talað er um
að hann sé tímalaus hönnun, sem vafalaust
verði komin á stall í MoMA innan skamms, að
þar sameinist stílhrein fágun og íburður, ein-
stæður gripur, sem tugmilljónir munu þó hafa
um hönd áður en jólin eru liðin.
En það er þetta með tímalausu hönnunina.
Hönnunin er nefnilega hin sama og upphaflega
kom fram með iPhone 4 fyrir tíu árum, sími sem
þeir Steve heitinn Jobs og sir Jony Ives áttu all-
an heiður af, og var einnig sú hin sama og í
iPhone 5: Gler að framan og aftan, en sam-
felldur málmkantur á hliðunum með lítillega
rúnnuð horn.
Sumir hafa raunar muldrað að þetta beri vott
um ófrumleika hjá hönnuðum Apple, en þá eru
þeir ekki að ná punktinum með tímalausri
hönnun, þar sem saman fer fegurð og nytsemd.
Tímalaus, varanleg (iðn)hönnun kallar ekki á
endalausa endurtúlkun, hvað þá endurhönnun.
Nei, hún kallar á fágun og fínlegar endurbætur,
nýjar útgáfur sem eru tilbrigði við stef.
Þetta má vel sjá á hinum tímalausu hönn-
unargripum 20. aldar hér fyrir neðan. Þeir eru
allir enn í framleiðslu og hönnunarmálið er
óbreytt frá fyrstu gerð. Enginn þeirra er nú
samt alveg óbreyttur og alla má þá fá í fleiri en
einni gerð án þess að hin upprunalega hönnun
gjaldi fyrir.
Um margt eru endurbæturnar (líkt og í
iPhone 12) minnst á yfirborðinu, því sem augað
sér, og hendur snerta. Þær eru aðallega hvað
varðar innri gerð – sem kann að vera allt önnur
– íhluti eða framleiðsluaðferð, en einnig hvað
varðar útgáfur. Kollurinn hans Alvars Aaltos er
samur hvort sem setan er birkiljós eða svört, og
911 er 911 hvort sem hann er beinskiptur eða
með tiptronic-skiptingu.
Raunar er 911-hönnunin svo tímalaus, að hún
smitast yfir í aðrar gerðir Porsche, Cayenne,
Boxterinn og hvað þær allar heita. Hið sama er
upp á teningnum hjá Apple, þar sem bæði
iPhone og iPad fylgja þessu hönnunarmáli og
Macintosh-tölvur líklega senn. Af því að hönn-
unin er meira en góð, hún er tímalaus og þolir
að henni sé varpað yfir á önnur tæki svipaðrar
gerðar og með sams konar not.
En þó að hönnunin sé greinilegust á yfirborð-
inu, þá nær hún dýpra. Hún felst einnig í tilfinn-
ingu. Tilfinningunni við að handleika gripinn og
tilfinningunni við að nota hann, hvort sem menn
skruna niður skjáinn eða skipta fyrirhafnar-
laust um gír.
Þetta finna menn vel á símum. Stærð þeirra
skiptir máli (bæði lengd, breidd og þykkt), svo
þeir fari vel í hendi og séu nothæfir með einni
hendi. Áferðin skiptir máli, ekki aðeins vegna
útlitsins, heldur hvernig hann er viðkomu, að
það sé létt að strjúka fingri um skjáinn, án þess
að hann kámist eða síminn sé of sleipur. Þyngd-
in skiptir líka máli, því hann má ekki vera of
léttur eða of þungur og það þarf að vera jafn-
vægi í þyngdardreifingu. Allt þetta er ekki bara
vandamál verkfræðinganna, heldur snýst það
líka um hönnun: Hvernig verkfærið fer í hendi.
Af því að síminn er framlenging á okkur;
hluti af okkur, fallegur og notadrjúgur. Það
snýst um samband okkar við tækið, hughrifin,
snertinguna og á sinn hátt söguna, fortíðina,
sem vísar okkur þannig veginn til framtíðar.
Það er meira en góð hönnun, það er arfleifð.
Tæki vorra tíma
Enski listamaðurinn og hönnuðurinn William Morris sagði
á sínum tíma, að menn skyldu ekkert hafa í sínum húsum
nema það, sem þeir vissu að væri nytsamt eða þætti vera
fallegt. Hann lét vera að bæta við hinu augljósa, að best
væri auðvitað að þetta færi saman í nytsamri fegurð.
Apple hefur tekist það með hinum nýja iPhone 12.
Andrés Magnússon andres@mbl.is
HÖNNUN
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2020
Í gamla daga kom bara ein útgáfa af iPhone,
en þeir dagar eru liðnir. iPhone 12 kemur í
fjórum útgáfum, sjálfum iPhone 12 (hér til
hægri), iPhone 12 Mini, iPhone 12 Pro og
iPhone 12 Pro Max. Munurinn er bæði á
stærð og áferð, 12 og 12 Mini eru úr áli og
gleri, en Pro-símarnir eru úr stáli og gleri.
Fólk þarf að meta það sjálft hvaða stærð
hentar því og eins eru litatónarnir mismun-
andi. Það sést að Pro-línan er munaðarvara
og það endurspeglast líka í verði.
Að innri gerð og getu eru símarnir mun
líkari en ætla mætti. Þeir eru allir með 5G,
frábærum Super Retina XDR-skjá (OLED),
nýju og miklu sterkara gleri og A14 Bionic-
örgjörva, sem er sá hraðvirkasti í nokkrum
síma. Það er munur á síbatnandi mynda-
vélum þeirra, Pro-línan er betur búin, er
með Lidar-skanna (þrívídd fyrir myndatök-
ur eða aukveruleika) og Pro Max með
stærri ljósnema og aðdráttarlinsu.
Þetta eru í stuttu máli einhverjir tækni-
lega fullkomnustu símar sem völ er á. Hið
helsta sem einhver kynni að sakna er að
skjáirnir eru enn 60Mhz en ekki 120Mhz
eins og finna má í dýrari Android-símum,
sennilega til þess að hlífa rafhlöðunni, sem
annars spændist upp helmingi hraðar.
Eins fylgja hvorki heyrnartól né hleðslu-
tæki með, en sannast sagna eigum við flest
skúffufyllir af þeim fyrir.
Að sumu leyti eru iPhone 12-símarnir
nánast of tæknilega fullkomnir. Þeir eru
klárir í 5G, en 5G er ekki alveg klárt fyrir þá.
Þeir eru fullbúnir í aukveruleika (AR), en sú
tækni er rétt að fara af stað.
Eftir að hafa notað iPhone 12 Pro í viku
verður að játa að upplifunin er frábær og
undan nákvæmlega engu að kvarta. Nema
kannski því að andlitsskynjarinn sér ekki í
gegnum grímur. Þá saknar maður fingra-
farahnappsins. – AM
Fullkominn framtíðarsími
Zippo Aalto Jakkara 60 Fender Stratocaster Porsche 911 Braun ET66