Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Page 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Page 13
8.11. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Löggiltur heyrnarfræðingur Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Heyrnarþjónusta í alfaraleið Heyrðu umskiptin með háþróuðum ReSound gæðaheyrnartækjum. Margir verðflokkar, SÍ niðurgreiðir heyrnartæki. Heyrnargreining, ráðgjöf og heyrnartæki til reynslu afgreidd samdægurs. Mæðgurnar tala alltaf íslensku saman, auk þess sem Guðný heyrir reglulega í vinum sín- um heima á Íslandi. „Jóhanna Jónsdóttir vin- kona mín hringir yfirleitt í mig einu sinni í viku. Eins heyri ég oft í vini mínum Tryggva Helgasyni á Akureyri og fleirum. Svo er ég auðvitað í sambandi við bræður mína hérna úti, sérstaklega Kristján.“ – Hvað er að frétta af honum? Er hann hættur að stela bílum? „Já, fyrir lifandis löngu,“ svarar Guðný og hlær sem aldrei fyrr. „Hann er sjómaður í Seattle og gengur vel.“ Slasaðist á sjónum Árið 2006 lét Guðný undan þrýstingi Kristjáns og var einn vetur með honum á sjó sem kokkur á báti sem að sjálfsögðu hét því ágæta nafni Lady Guðný. „Ég hafði verkað síld í gamla daga en aldrei verið á sjó og þetta var mikil lífsreynsla. Veitt var í Beringshafi og þar geta veður orðið alveg rosaleg.“ Einn túrinn er Guðnýju sérstaklega minnis- stæður. Afar vont var í sjóinn á útstíminu og hún búin að binda allt niður nema sjálfa sig. „Það breytti ekki því að í einni öldunni sveifl- aði báturinn mér átta fet á járnstaur langt frammi á gangi. Þar lá ég óvíg eftir en náði þó að færa mig frá hurð en hefði hún opnast hefði ég örugglega fótbrotnað. Ég átti erfitt með að anda og gat ekki kallað eftir hjálp. Ætli ég hafi ekki legið þarna í þrjá eða fjóra tíma áður en sonur Kristjáns kom fram til að fara á næstu vakt. „Pabbi, pabbi,“ gólaði hann. „Guðný frænka liggur hérna á gólfinu.“ Heldurðu að sé nú.“ Feðgarnir vildu ná strax í landhelgisgæsl- una en þar sem hjúkrunarfræðingurinn taldi sig sjálfur ekki vera með rifið lunga, aðeins brákuð eða brotin rifbein, var látið nægja að hringja í lækni sem tók undir þá greiningu út frá lýsingum. „Þess utan gat ég ekki hugsað mér að vera hífð í járnkörfu upp í þyrlu; það hefði farið endanlega með mig að sveiflast þar til í þessu ofsaveðri.“ Guðný hvíldi sig í nokkra daga en hóf svo störf að nýju, eins og ekkert hefði í skorist. Þegar komið var í land eftir um mánuð á sjó fór hún beint til læknis og reyndist vera með fjögur mölbrotin rif. „Svona var maður alinn upp,“ segir hún. „Það dugði ekkert að barma sér.“ Fyllir ferðatöskuna af mat Guðný á ekki von á því að búa aftur á Íslandi en reynir að koma heim á hverju ári og dvelj- ast hér í um mánuð til að hitta vini og ættingja. Þetta ár datt þó út, eins og gefur að skilja. „Ís- lendingar fara utan til að versla föt en ég fer til Íslands til að versla mat,“ segir Guðný sem fyllir allar ferðatöskur af hangikjöti, harðfiski og öðru góðgæti. „Núna er ég að reyna að redda mér grásleppu.“ – Hvernig hugsar þú til Íslands eftir allan þennan tíma í burtu? „Ég hugsa alltaf hlýlega til Íslands. Það er mitt land. Ég fylgist ágætlega með á Fésinu en er ekki nógu vel inni í þjóðmálaumræðunni til að hafa skoðun á henni. Kaus þó einu sinni heima, að mig minnir. Núna fylgist maður auð- vitað mest með baráttunni við Covid.“ – Hvernig hefur faraldurinn komið við ykkur? „Þetta hefur ekki verið svo slæmt hér, bara átta dáið í Ava. Maður heldur sig þó mest heima; hittir fáa sem engan og verslar á netinu. Bandaríkin eru að fara illa út úr faraldrinum og mér sýnist þjóðin skiptast nokkurn veginn í tvær fylkingar; annars vegar þá sem nota grím- ur, eru skynsamir og halda sig frá hópum og hins vegar þá sem halda því fram að þessar var- úðarráðstafanir séu tómt rugl. Sjálf þekki ég fólk sem hélt þessu fram en er nú dáið úr Covid. Það er ótrúleg þrjóska. En vonandi fer þetta að lagast og lífið verður aftur normal. Ef það er þá eitthvað til sem telst normal.“ Það var Baldvin Nielsen, starfsmaður Rúmfatalagersins og grjótharður aðdáandi Elvis Presleys, sem vakti athygli Morg- unblaðsins á Guðnýju Laxfoss og hvatti blað- ið til að eiga við hana viðtal. Það kom þannig til að Baldvin hitti Guð- nýju heima hjá móður sinni, Eygló Kristjáns- dóttur, þegar hún var hér í heimsókn síðasta haust en þær Guðný eru skóla- og ferming- arsystur úr Keflavík. Baldvin var ekki fyrr kominn inn úr dyrunum en móðir hans bað Guðnýju að segja honum söguna af kynnum þeirra Elvis. Baldvin kveðst hafa fallið í stafi enda ekki kunnugt um að nokkur Íslendingur hefði kynnst Elvis persónulega. „Ég get rétt ímyndað mér að Guðný sé sú eina,“ segir Baldvin, sem tók samtal þeirra, einhverjar þrjátíu mínútur, upp á símann sinn. Skýringin á því að Elvis barst í tal milli Guðnýjar og Eyglóar er sú að þriðja ferming- arsystirin, Guðný Fisher, sem býr í Bandaríkj- unum eins og nafna hennar, var með mynd af sér og einhverri Elvis-eftirhermu á facebook- síðu sinni um þær mundir. Guðnýju Laxfoss þótti að vonum ekkert sérlega mikið til þess koma! Ekki svo að skilja að stöllurnar þrjár hafi ekki verið vanar rokkstjörnum en í ferming- arárgangi þeirra í Keflavík voru bæði Gunnar Þórðarson og Rúnar Júlíusson. Þótti ekki mikið til eftirhermunnar koma Baldvin með Elvis-plötur sem hann fékk í jólagjöf 1977. Með honum er Kristján bróðir hans.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.