Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Qupperneq 14
VIÐTAL
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2020
H
ún er kölluð glæpadrottningin
en það er ekkert myrkt við
Yrsu Sigurðardóttur þar sem
hún opnar dyrnar brosandi og
býður í bæinn á fallegu heimili
sínu á Seltjarnarnesi. Hún skenkir kaffi í bolla
og á borðinu liggur glænýtt eintak af bókinni
hennar Herra Bóbó, Amelía og ættbrókin.
Blaðamaður hafði gluggað í þá bók og leist vel
á, en aðalpersónan er köttur. Það er ekki að
spyrja að því þegar tvær kattarkonur koma
saman; fyrsta korterið fer í að ræða ketti og
þeirra margbrotnu persónuleika.
Við snúum okkur svo að bókum Yrsu, en
þær eru ófáar á löngum og farsælum ferli.
Sautján ár eru liðin frá því að Yrsa skrifaði
síðast barnabók og sneri sér að glæpasögum.
Bráðin er sextánda bókin í röð ætluð full-
orðnum. Nú hefur hún bætt um betur og skrifað
ekki eina, heldur tvær bækur; eina fyrir börn og
aðra mun óhugnanlegri fyrir fullorðna. Yrsa við-
urkennir að hún hafi verið á haus undanfarna
mánuði að klára þessar tvær skáldsögur. Það er
ekki að sjá á henni; hún er yfirveguð og slök.
Ósköp einmanalegt
Ferill Yrsu hófst á barnabókum árið 1998 og
gaf hún þá út fimm í röð áður en hún sneri sér
að glæpunum árið 2005 með Þriðja tákninu.
Yrsa vinnur einnig hjá Verkís en hún er verk-
fræðingur að mennt.
„Ég er ekki í fullu starfi þar lengur og það
er misjafnt eftir árstímum hvað ég vinn mik-
ið,“ segir Yrsa og segist alls ekki vilja sleppa
þeirri vinnu. Enda finnst henni gaman að
vinna innan um fólk; ekki bara ein með ímynd-
unaraflið.
„Það er skemmtileg vinna og ég hitti margt
fólk. Við vinnum oft mörg saman í tengslum
við verkefnavinnu. Það að skrifa er ósköp ein-
manalegt. Ég þarf á mannlegum samskiptum
að halda og ég fæ þau meðal annars í gegnum
vinnuna.“
Hvað varð til þess í upphafi að verkfræðing-
urinn settist niður við skriftir?
„Ég sem barn var alltaf lesandi. Ég kaus það
fram yfir allt. Þegar sonur minn var tíu ára
fannst mér hann ekki lesa nóg og fannst vanta
bækur fyrir þann aldur,“ segir hún og settist
því niður og skrifaði Þar lágu Danir í því.
Hún telur afar mikilvægt fyrir alla, ekki síst
börn, að lesa.
„Þegar maður les bækur er maður að setja
sig í spor annarra og fær tækifæri til þess að
setja sig í aðstæður sem maður myndi sjálfur
aldrei lenda í. Og sú persóna sem þú lest um er
inni í höfðinu á þér og þú færð að lesa hugsanir
hennar en á meðan maður horfir á sjónvarps-
efni eða bíómynd er maður áhorfandi og upplif-
unin önnur. Það er hægt að lifa sig meira inn í
bók og skilja betur sögupersónur. Mín kenning
er sú að börn sem lesa mikið verði skilningsrík-
ari manneskjur. Því hafði ég áhyggjur af syni
mínum og ákvað að skrifa barnabók. Ég hugs-
aði að þetta gæti ekki verið erfitt, og það reynd-
ist ekki vera. Ég hef alltaf verið með ríkt
ímyndunarafl. Þannig byrjaði þetta allt saman.“
Ástardrama og hryllingsmyndir
Yrsa segir að skapandi skrif hafi ekkert endi-
lega verið í forgangi á hennar yngri árum, en
þó hafi hún og vinkona hennar skrifað bók í
menntaskóla.
„Okkur leiddist í tíma og við skrifuðum sam-
an rosalegt ástardrama. Það væri ekki birting-
arhæft,“ segir Yrsa og hlær.
„Ég fann hana um daginn og hún er mjög
fyndin,“ segir hún og brosir.
„En ég var aðallega bara að lesa sjálf sem
barn og unglingur. Sem barn las ég mikið um
börn sem leystu glæpi og svo var alltaf eitthvað
sem heillaði við hið óhugnanlega. Draugasögur
og ráðgátur voru í uppáhaldi en ég las allt; líka
bækur frá pabba og mömmu. Svo fór ég að lesa
Agöthu Christie og dáðist mikið að henni og svo
var það Stephen King,“ segir hún.
Yrsa viðurkennir að hún hafi einnig verið
með nefið ofan í læknisfræðibókum föður síns,
aðallega til að skoða ógeðfelldar myndir af
fólki sem þjáðist af ýmsum smitsjúkdómum.
„Mér hefur alltaf þótt óhugnaður áhuga-
verður. Það kom ekkert slæmt fyrir mig í
æsku en þessi læknabók um smitsjúkdóma er
klárlega rótin að þessu,“ segir hún og hlær.
„Ég man líka að hryllingsmyndir heilluðu.
Þegar ég var lítil bjuggum við í Ameríku og ég
man að eitt sinn voru frænkur mínar í heim-
sókn. Fullorðna fólkið fór út að borða og það
átti að sýna í sjónvarpinu The Birds en það
vildi ekkert hinna barnanna horfa með mér.
Ég hefði auðvitað ekkert fengið að horfa ef
foreldrarnir hefðu verið heima því ég var bara
tíu ára, en ég endaði á að horfa á hana ein og
fannst hún æðisleg.“
Ekki gera þig að fífli
Alveg síðan 2005 hefur Yrsa verið iðin við
glæpasöguskriftirnar. Bækur hennar hafa ver-
ið þýddar á fleiri tungumál en hún getur talið.
„Þegar ég skrifaði síðustu barnabókina árið
2003 fannst mér þetta bara orðið gott og ætlaði
ekkert að skrifa aftur,“ segir Yrsa.
Hvað var þá kveikjan að glæpaskrifunum?
„Áður en Arnaldur sló í gegn held ég að
hvorki útgefendur né lesendur hafi þá verið
búnir að átta sig á að það væri hægt að skrifa
góða glæpasögu sem gerist á Íslandi. En hon-
um tókst að sýna fram á það svo um munaði og
gott betur en það. Þá opnaðist þessi möguleiki
að skrifa glæpasögu. Ég hafði eitt sinn byrjað
á glæpasögu en vinkona mín sem var í útgáfu-
bransanum sagði þá við mig; „Ekki gera þig að
fífli að reyna að skrifa íslenska glæpasögu, þú
getur gleymt því.“ Við höfum oft hlegið að
þessu síðan,“ segir hún og brosir.
„Á þessum tíma voru þetta gild heilræði, en
þetta breyttist sem betur fer. En það er nú
þannig að glæpir í glæpasögum þurfa ekkert
endilega að endurspegla algengustu glæpi
hvers samfélags. Til að skrifa áhugaverða
glæpasögu verður glæpamaðurinn að reyna að
fela slóð sína; það þarf að vera meira en bara
Jói drepur Kalla. Það þarf að setja upp trú-
verðugar aðstæður til þess að lesandinn trúi að
mögulega gæti þetta gerst.“
Að halda utan um plott
„Mér fannst svo gaman að breyta til og skrifa
glæpasögur, en í barnabókunum er meiri húm-
or,“ segir Yrsa og segist hafa skrifað í raun
tvær seríur; sex bækur um lögreglukonuna
Þóru og sex um Freyju og Huldar, og inn á
milli eru þrjár stakar. Nú hefur Yrsa aftur
skrifað bók þar sem alveg nýjar persónur stíga
fram á sjónarsviðið.
„Bráðin er líka svona stök bók og fjallar um
fólk sem fer inn í Lónsöræfi um miðjan vetur
og finnst látið. Svo gerist hluti bókar á ratsjár-
stöðinni á Stokksnesi og einnig á Höfn í
Hornafirði,“ segir Yrsa.
„Ég er svona tíu mánuði að skrifa bók, allt
frá því ég fæ hugmynd. Skrifin gerast mjög
misþétt en ég þarf að fara á alla staðina og
skoða aðstæður. Maðurinn minn kemur alltaf
með mér. Ég ætlaði upphaflega að fara austur
um páskana, en þá komu tilmæli um að ferðast
innanhúss. Ég vildi ekki brjóta þá reglu þann-
ig að ég endaði á að komast ekki á staðina fyrr
en í júní,“ segir hún og viðurkennir að hún hafi
setið stíft við síðustu tvo mánuði.
„Ég notfæri mér excel til að halda utan um
kaflana og skrifa mikið minnispunkta. Verk-
fræðinámið hjálpar örugglega. Að halda utan
um plott fyrir einn glæp er auðvelt miðað við að
halda utan um stærri verk sem verkfræðingur.
Þar þarf maður að vera með marga bolta í lofti í
einu. Eitt stykki glæpur er ekki neitt.“
Séð með augum kattarins
En hvað kom til að þú ákvaðst að skrifa aftur
barnabók eftir svona langt hlé, og leggja það á
þig þá að skrifa tvær bækur á einu ári?
„Þetta er búið að standa til í tíu ár, að skrifa
tvær bækur á einu ári. Það kom þannig til að
einhver karlugla sagði mér eitt sinn að ég ætti
ekki að skrifa eina bók á ári, heldur ætti ég að
taka tvö ár í eina bók eins og margir aðrir rit-
höfundar. Hann var varla búinn að sleppa orð-
inu þegar ég ákvað að ég ætlaði að gefa út
tvær bækur á einu ári. En það tók mig tíu ár
að koma mér í það. En ég ætla að gera það
sama á næsta ári því mér fannst virkilega
gaman að skrifa barnabók aftur,“ segir Yrsa.
„Sérstaklega þótti mér gaman að fá tæki-
færi til að vinna bókina með dóttur minni
Kristínu Sól en hún teiknaði myndirnar, sem
ég gæti ekki verið ánægðari með. Hún er há-
tækniverkfræðingur í framhaldsnámi í róbót-
um og gervigreind en býr yfir þessum leynda
hæfileika sem ég nýtti mér. Það samstarf var
yndislegt,“ segir hún.
„Þessi bók er skrifuð þannig að foreldrum
sem lesa hana fyrir börnin sín mun ekki leiðast
frekar en börnunum. Það er húmor í henni
sem ég vona að fullorðnir kunni líka að meta,“
segir Yrsa og segir bókina vera um kött sem
eignast mús að vini.
„Sagan er um kött sem telur sig vera rosaleg-
an fínan. Svo flytur flott læða, angóruköttur, í
næsta hús og hann verður skotinn í henni en
henni finnst hann frekar púkó. Þannig að hann
reynir að verða sér úti um ættbók og lendir í
ýmsu. Þetta er líka stúdía á mannfólkinu séð með
augum kattarins,“ segir hún og segist hafa notað
sína eigin reynslu af köttum við skriftirnar.
„Bókin er líka um vináttu og hvað skiptir
máli í þessu lífi.“
Yrsa segist hafa skrifað báðar bækurnar
samtímis.
„Það var frábært. Það ruglaði mig ekki
neitt. Eina sem speglast þarna á milli er að það
er líka köttur í Bráðinni, þó ekkert líkur Herra
Bóbó,“ segir Yrsa og brosir.
Á mikið safn af hryllingsmyndum
Blaðamanni verður á orði að það hljóti að vera
fleiri tímar í sólarhringnum hjá Yrsu en öðrum.
„Þetta var erfiðara þegar börnin voru lítil.
Nú er þetta bara spurning um að nýta frítím-
ann í að skrifa, frekar en til dæmis að horfa á
sjónvarpið; þá er þetta ekkert flókið. Ég get
skrifað nánast hvar sem er. Það er ekkert sem
truflar mig, jafnvel ekki þótt einhver á heim-
ilinu sé að horfa á eitthvað í sjónvarpinu eða
stilli útvarpið hátt,“ segir Yrsa og segist jafnvel
nota bíómyndir sem stemningu við skriftirnar.
„Ég á mikið safn af hryllingsmyndum og set
þær gjarnan á þegar ég skrifa. Sixth sense er í
uppáhaldi þegar kemur að sögufléttunni og
svo held ég upp á margar fleiri sem eru mun
óhugnanlegri. Ég nota þær til að skapa and-
rúmsloft. Ég er ekkert að horfa, heldur hlusta
á tónlistina og hljóðin. Af og til kemur öskur.
Það hentar mjög vel til að búa til stemningu.“
Hvernig koma hugmyndir til þín?
„Það er bara misjafnt. Það var til dæmis
vinnufélagi sem benti mér á að Stokksnes væri
fullkominn staður fyrir einhvern hrylling. Svo
sækir Bráðin einnig innblástur til óleystrar ráð-
gátu frá gömlu Sovétríkjunum sem kallast
Dyatlov Pass Incident. Sá atburður varð átta
jarðfræðinemum og kennara þeirra að bana en
þau yfirgáfu tjöld sín nánast klæðalaus um miðja
nótt að vetri til í Úralfjöllunum, án þess að það
hafi nokkru sinni fundist skýring á því hvað þeim
gekk til. Það er oft eitthvert lítið fræ sem setur
hugmynd af stað; það getur verið staður, frétt
eða einhver karakter. Svo þarf að byggja ofan á
fræ þar til maður er kominn með kjöt á beinin.“
Skrifa fyrir Ísland
Yrsa segist fyrst og fremst vera að skrifa fyrir
Íslendinga og viðurkennir að gagnrýni geti
tekið á taugarnar.
„Auðvitað er frábært að fá góða gagnrýni og
það er aldrei skemmtilegt að fá slæma gagn-
rýni. Síðasta sem maður vill er að lesandinn
verði fyrir vonbrigðum,“ segir hún.
Við ræðum frægðina sem fylgir því að vera
metsöluhöfundur.
„Mér finnst ég ekkert vera merkilegri við það
að teljast fræg hér á landi. Frægð er ekki annað
en það að fólk sem þú þekkir ekki kannast við
þig í sjón. Ég er bara ég, og frægð breytir engu
varðandi mína persónu. Frægur rithöfundur í
útlöndum þarf svo að vera massafrægur til að
þekkjast úti á götu. Og þótt ég sé kannski þekkt
einhvers staðar utan Íslands er það ekki hluti af
lífi mínu og ég hugsa aldrei um það. Velgengni
er aldrei komin til að vera. Er á meðan er. Þeg-
ar hún dvín má maður ekki fara á límingunum.
Ég er afskaplega „chilluð“ með þetta. Þegar ég
skrifa, skrifa ég fyrir Ísland og það er eina vitið.
Ég er að skrifa fyrir upphaflegu lesendurna,
sem eru íslenskir,“ segir Yrsa.
„Það kostar smá viðbótarvinnu þegar kemur
að þýðingum en það koma fyrir atriði í
bókunum sem ég er látin útskýra betur fyrir
þeim sem ekki eru kunnugir á Íslandi.“
Nú ertu oft titluð hér glæpadrottningin.
Hvernig finnst þér það?
„Já, einmitt,“ segir hún og hlær.
Af og til kemur öskur
Rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir hefur ekki setið auðum höndum en nýjasta glæpasaga
hennar, Bráðin, kemur út síðar í vikunni. Yrsa hefur skrifað glæpasögur sextán ár í röð en
bætir nú um betur og gefur einnig út barnabók um köttinn Bóbó og músina Amelíu. Yrsa
segist alltaf hafa haft áhuga á óhugnaði og skrifar oft undir óminum frá hryllingsmyndum.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is